Fréttablaðið - 01.12.2015, Síða 2

Fréttablaðið - 01.12.2015, Síða 2
Gengur í austanhvassviðri eða -storm með snjókomu eða skafrenningi, fyrst suðvestanlands, en búist er við mikilli ofankomu og skafrenningi á höfuðborgarsvæðinu. Snýst í mun hægari suðvestanátt sunnan- og vestanlands og rofar til seinni partinn. Ekkert ferðaverður er því á morgun. Sjá Síðu 24 Veður Fimm klukkan fimm Enn snjallara heyrnartæki heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN Nýja Beltone Legend heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Pantaðu ókeypis heyrnarmælingu í síma 568 7777 og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýriker. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Ókeypisheyrnarmælingsíðan 2004 DANMÖRK Grípa þarf til aðgerða vegna stækkandi selastofns við strendur Danmerkur. Þetta segir umhverfisráðherra landsins, Eva Kjer Hansen. Í skýrslu Tækni­ háskólans í Danmörku segir að selir éti í miklum mæli fisk sem þegar er kominn í net sjómanna. Það er mat danska umhverfis­ ráðherrans að það sé einkum í Sví­ þjóð sem hægt sé að ráðast gegn vandanum þar sem það sé við suð­ vesturströnd Svíþjóðar sem selirnir fjölga sér. Mögulega þurfi að skjóta fleiri seli. – ibs Ráðherra á selaveiðar LÖgRegLuMáL Fyrir viku var vopna­ væðing lögreglu í bílum kynnt fyrir yfirstjórn lögreglunnar. Í kjöl­ farið átti að kynna fyrirætlunina fyrir starfsmönnum, sveitarstjórnum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þjónar ásamt fjölmiðlum. „Síðan fengum við fyrirspurn Fréttablaðinu morguninn eftir þann­ ig að kynningarplanið fór úr bönd­ unum,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn en skammbyssur verða settar í læst öryggishólf í sex lögreglubíla um miðjan mánuðinn. Gagnrýnt er að fyrirætlunin var ekki kynnt fyrir almenningi og þingi. Ásgeir bendir á að samkvæmt reglum ráðherra um meðferð vald­ beitingartækja og vopna hafi lög­ reglustjórar heimild til að ákveða þetta sjálfir. „Það hafa nokkrir lögreglustjórar á landinu nýtt sér þessa heimild í nokkur ár. Það hefur verið gert án athugasemda eða kynningar,“ segir Ásgeir. Breytingin kemur í kjölfar þriggja ára þjálfunaráætlunar lögreglunnar. Sú áætlun hófst eftir útgáfu skýrslu innanríkisráðherra um stöðu lög­ reglunnar árið 2012 sem gerð var eftir  skotárásina í Útey í Noregi. Í skýrslunni segir að viðbúnaðargeta lögreglu sé óviðunandi varðandi Skammbyssur aðeins í sex af 60 lögreglubílum Kynning á byssum í lögreglubílum var fyrirhuguð en fjölmiðlar voru fyrri til. Innanríkisráðuneytið telur viðbúnaðargetu lögreglunnar vera óviðunandi. Til að stytta viðbragðið var meðal annars ákveðið að setja byssur í lögreglubíla. 6 bílar verða með skamm- byssur í læstu öryggishólfi. 60 lögreglubílar eru á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins fimm mættu í gær á boðuð mótmæli gegn aukinni vopnavæðingu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tveir lögreglumenn stigu út úr lög- reglustöðinni á Hverfisgötu og ræddu stuttlega við hópinn sem tók sér stöðu úti í kuldanum klukkan fimm síðdegis. Fréttablaðið/anton brink fyrstu viðbrögð og vegna öryggis ríkisins. „Lögreglunni var gert að taka sig í gegn í þessum málum. Alþingi kom að þessu öllu saman og úthlutaði fjármagni fyrir þjálfun og búnaði,“ segir Ásgeir og bendir á að breyt­ ingin sé ekki stórvægileg. Í stað þess að byssur séu geymdar á lögreglu­ stöðinni verði þær geymdar í bílum. „Lögreglumenn munu ekki hafa óheftan aðgang að byssum og meta sjálfir notkun. Það er eingöngu verið að stytta tímann sem það tekur að vopnast ef yfirmenn ákveða það. Skotárásir í nágrannalöndunum hafa sýnt okkur hve mikilvægt er að við­ bragðið sé gott.“ Ásgeir bendir á að samkvæmt könnun sem var gerð meðal lög­ reglumanna árið 2012 hafi 83,5 prósent lögreglumanna viljað hafa skotvopn í læstum hirslum í bílum og  70 prósent vilji alls ekki ganga með vopn á sér. „Við verðum ánægð ef við þurfum ekki að endurskoða neitt af þessu og getum látið staðar numið með þessa sex bíla. En við skulum ekki gleyma því að borgarar treysta á vernd lög­ reglu og vilja ekki að hún sé van­ búin í erfiðum aðstæðum sem leiðir til þess að hún þurfi að fara af vett­ vangi.“ erlabjorg@frettabladid.is veðuR Fárviðri mun ganga yfir sunnan og vestanvert landið og ná hámarki rétt eftir hádegi SV­lands með miklum vindi og áframhaldandi ofankomu. Veðrið mun leika höfuð­ borgarsvæðið grátt fram eftir degi og snjóa líklega fram undir kvöld. Haraldur Eiríksson,  veður­ fræðingur á Veðurstofu Íslands, segir lítið sem ekkert ferðaveður í kortunum í dag. „Það bætir í vind þegar líður á daginn með snjó­ komu. Einnig er mikið af lausum snjó sem mun fara af stað og spilla færð á tiltölulega skömmum tíma,“ segir Eiríkur.  „Síðan mun  veðrið ganga yfir landið en það verður að öllum líkindum verst á suðvestan­ verðu landinu.“  Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu til að vara fólk við veðrinu á morgun og biðlar til einstaklinga á illa útbúnum bifreiðum til vetraraksturs að halda kyrru fyrir og bíða af sér storminn. „Skólar verða opnir í fyrramálið en hvert og eitt foreldri verður að meta hvort að börnin skuli fara í skóla eða hvort að þau skuli halda sig heimavið,“ segir í tilkynningu lög­ reglunnar. Í kvöld mun svo draga  mjög úr vindi og ofankomu sunnan og vest­ anlands, en hvessir norðan og austan til. Það eru því líkur til að lítið ferða­ veður verði á landinu í dag.– sa Ekki viðrar til ferðalaga Ekki er von á góðu í dag. Fréttablaðinu/StEFán 1 . D e S e M b e R 2 0 1 5 Þ R I ð j u D A g u R2 f R é t t I R ∙ f R é t t A b L A ð I ð 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 4 9 -5 D A 8 1 7 4 9 -5 C 6 C 1 7 4 9 -5 B 3 0 1 7 4 9 -5 9 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.