Fréttablaðið - 01.12.2015, Side 6
1 . d e s e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U d A G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð
Í jólagjafahandbók Lyfju finnur þú fjölbreytt úrval af fallegum
og nytsamlegum gjafavörum fyrir alla fjölskylduna.
Nældu þér í eintak af jólagjafahandbókinni í næstu verslun Lyfju.
- Lifi› heil
Allir fá þá eitthvað fallegt...
Lágmúla
Laugavegi
Nýbýlavegi
Smáralind
Smáratorgi
Borgarnesi
Grundarfirði
Stykkishólmi
Búðardal
Patreksfirði
Ísafirði
Blönduósi
Hvammstanga
Skagaströnd
Sauðárkróki
Húsavík
Þórshöfn
Egilsstöðum
Seyðisfirði
Neskaupstað
Eskifirði
Reyðarfirði
Höfn
Laugarási
Selfossi
Grindavík
Keflavík
www.lyfja.is
sveItArstJórnArmáL Borgarlögmaður
segir tillögu Hilmars Sigurðssonar, full-
trúa Samfylkingarinnar í lýðræðis- og
stjórnsýslunefnd Reykjavíkurborgar,
um að borgin efni til íbúakosningar
um hvort Reykjavík skuli stofna sjálf-
stætt borgríki ekki standast sveitar-
stjórnarlög.
„[Það er] ekki á valdsviði Reykja-
víkur borgar né gert ráð fyrir þeim
möguleika að íslenskum lögum að sjálf-
stæð borgarríki verði stofnuð í land-
inu,“ segir í umsögn borgarlögmanns.
Í kjölfar umsagnarinnar dró Hilmar
tillögu sína til baka og lagði fram
bókun um málið. Þar segir meðal
annars: „Eftir stendur sú staðreynd
að íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa
skertan atkvæðisrétt á við íbúa í
öðrum landshlutum.“ Og hvetur hann
borgaryfirvöld til að leita leiða til að
jafna atkvæðavægi. – srs
Borgríki ekki
heimilt í lögum
Tillaga um borgríki var dregin til baka.
FréTTablaðið/GVa
stórIÐJA Hafist verður handa á
miðnætti við að loka álverinu í
Straumsvík. Samningafundi var
slitið í gær án árangurs og ekki
boðað til nýs fundar í deilu starfs-
manna. Gylfi Ingvarsson, talsmaður
starfsmanna, segir engan vilja fyrir-
tækisins til að semja við starfsfólk
sitt.
„Það er enginn vilji hjá Alcan
til að ganga til samninga, það er
á hreinu. Því er vilji þeirra ein-
hver annar. Nú mun brátt fara í
hönd lokunarferli álversins. Það er
greinilega það sem forsvarsmenn
fyrirtækisins vilja. Við munum í
samninganefnd starfsmanna halda
fund í fyrramálið (dag) til að fara
yfir stöðuna,“ segir Gylfi.
Hann segir evrópska blaðamenn
hafa haft samband við sig vegna
málsins þar sem orðrómur er um að
Alcan sé með þessu móti að koma
sér hjá kaupskyldu á rafmagni frá
Landsvirkjun. Komið hefur fram að
núverandi samningur Landsvirkj-
unar við eigendur álversins sé á þá
leið að Alcan skuldbindi sig til þess
að kaupa raforku til ársins 2036.
Í samningum um álver í Straums-
vík við íslenska ríkið hefur einn-
ig verið ákvæði um óviðráðanleg
öfl. Í upprunalega samningnum
milli stjórnvalda og AluSuisse var
kveðið á um að vinnudeilur og
verkföll væru hluti af svokölluðum
óviðráðanlegum öflum ásamt
styrjöldum, náttúruhamförum og
öðrum þáttum. Yrði þetta ákvæði
virkjað losnaði fyrirtækið undan
kaupskyldu á rafmagni. Gylfi segist
óttast að eitthvað slíkt sé uppi á
teningnum. „Þetta hafa erlendir
blaðamenn allavega viljað ræða við
mig og telja áhugaleysi Alcan til að
semja við okkur vera hluta af stærri
sögu,“ segir Gylfi.
Hvorki Ólafur Teitur Guðnason,
upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi,
né Magnús Þór Gylfason, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, vildu
staðfesta hvort umrætt ákvæði væri
í núgildandi samningi sem undirrit-
aður var í fyrra. Samningurinn væri
að öllu leyti trúnaðarmál.
„Staðan er alvarleg, því er ekki
að neita en markmið okkar er að
semja, það er alveg ljóst,“ segir
Ólafur Teitur. „Kostnaðurinn við
að endurræsa álverið eftir lokun
sem þessa gæti numið hundruðum
milljóna króna.“
Fram kemur í minnisblaði
Hafnarfjarðarbæjar að viðskipti
álversins við fyrirtæki í Hafnarfirði
nemi allt að tveimur milljörðum á
ári. Að sama skapi eru beinar tekjur
Hafnarfjarðarbæjar af álverinu
í Straumsvík 1,7 milljarðar á ári.
Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, sagði bæjaryfirvöld
fylgjast með gangi mála.
„Við vonum að það verði hægt að
finna lausn á þessari deilu. Það eru
miklir hagsmunir í húfi fyrir alla
aðila að samningar náist,“ sagði
Haraldur.
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á
Íslandi, veiti ekki viðtal þegar eftir
því var leitað. sveinn@frettabladid.is
Alcan sagt vilja losna við raforkukaup
Fundi fulltrúa starfsmanna álversins í Straumsvík með fulltrúum fyrirtækisins hjá ríkissáttasemjara var slitið í gær án árangurs. Ekki
hefur verið boðað til nýs fundar. Byrjað verður að loka álverinu að óbreyttu. Starfsmenn telja deiluna leikrit í stærri áformum Rio Tinto.
Staðan er alvarleg,
því er ekki að neita
en markmið okkar er að
semja, það er alveg ljóst.
Ólafur Teitur
Guðnason,
upplýsingafulltrúi
Alcan
Boðberi friðar á feigðarslóð
Frans páfi mætti til Mið-Afríkulýðveldisins í gær sem sendiboði friðar og tók þátt í friðarmessu í höfuðborginni Bangui. Borgarastyrjöld geisar í
Mið-Afríkulýðveldinu og er landið hættulegasti viðkomustaður Frans páfa í Afríkuferð hans. NordicphoTos/aFp
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
4
9
-8
5
2
8
1
7
4
9
-8
3
E
C
1
7
4
9
-8
2
B
0
1
7
4
9
-8
1
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K