Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 6

Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 6
1 . d e s e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U d A G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð Í jólagjafahandbók Lyfju finnur þú fjölbreytt úrval af fallegum og nytsamlegum gjafavörum fyrir alla fjölskylduna. Nældu þér í eintak af jólagjafahandbókinni í næstu verslun Lyfju. - Lifi› heil Allir fá þá eitthvað fallegt... Lágmúla Laugavegi Nýbýlavegi Smáralind Smáratorgi Borgarnesi Grundarfirði Stykkishólmi Búðardal Patreksfirði Ísafirði Blönduósi Hvammstanga Skagaströnd Sauðárkróki Húsavík Þórshöfn Egilsstöðum Seyðisfirði Neskaupstað Eskifirði Reyðarfirði Höfn Laugarási Selfossi Grindavík Keflavík www.lyfja.is sveItArstJórnArmáL Borgarlögmaður segir tillögu Hilmars Sigurðssonar, full- trúa Samfylkingarinnar í lýðræðis- og stjórnsýslunefnd Reykjavíkurborgar, um að borgin efni til íbúakosningar um hvort Reykjavík skuli stofna sjálf- stætt borgríki ekki standast sveitar- stjórnarlög. „[Það er] ekki á valdsviði Reykja- víkur borgar né gert ráð fyrir þeim möguleika að íslenskum lögum að sjálf- stæð borgarríki verði stofnuð í land- inu,“ segir í umsögn borgarlögmanns. Í kjölfar umsagnarinnar dró Hilmar tillögu sína til baka og lagði fram bókun um málið. Þar segir meðal annars: „Eftir stendur sú staðreynd að íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa skertan atkvæðisrétt á við íbúa í öðrum landshlutum.“ Og hvetur hann borgaryfirvöld til að leita leiða til að jafna atkvæðavægi. – srs Borgríki ekki heimilt í lögum Tillaga um borgríki var dregin til baka. FréTTablaðið/GVa stórIÐJA Hafist verður handa á miðnætti við að loka álverinu í Straumsvík. Samningafundi var slitið í gær án árangurs og ekki boðað til nýs fundar í deilu starfs- manna. Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfsmanna, segir engan vilja fyrir- tækisins til að semja við starfsfólk sitt. „Það er enginn vilji hjá Alcan til að ganga til samninga, það er á hreinu. Því er vilji þeirra ein- hver annar. Nú mun brátt fara í hönd lokunarferli álversins. Það er greinilega það sem forsvarsmenn fyrirtækisins vilja. Við munum í samninganefnd starfsmanna halda fund í fyrramálið (dag) til að fara yfir stöðuna,“ segir Gylfi. Hann segir evrópska blaðamenn hafa haft samband við sig vegna málsins þar sem orðrómur er um að Alcan sé með þessu móti að koma sér hjá kaupskyldu á rafmagni frá Landsvirkjun. Komið hefur fram að núverandi samningur Landsvirkj- unar við eigendur álversins sé á þá leið að Alcan skuldbindi sig til þess að kaupa raforku til ársins 2036. Í samningum um álver í Straums- vík við íslenska ríkið hefur einn- ig verið ákvæði um óviðráðanleg öfl. Í upprunalega samningnum milli stjórnvalda og AluSuisse var kveðið á um að vinnudeilur og verkföll væru hluti af svokölluðum óviðráðanlegum öflum ásamt styrjöldum, náttúruhamförum og öðrum þáttum. Yrði þetta ákvæði virkjað losnaði fyrirtækið undan kaupskyldu á rafmagni. Gylfi segist óttast að eitthvað slíkt sé uppi á teningnum. „Þetta hafa erlendir blaðamenn allavega viljað ræða við mig og telja áhugaleysi Alcan til að semja við okkur vera hluta af stærri sögu,“ segir Gylfi. Hvorki Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi, né Magnús Þór Gylfason, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, vildu staðfesta hvort umrætt ákvæði væri í núgildandi samningi sem undirrit- aður var í fyrra. Samningurinn væri að öllu leyti trúnaðarmál. „Staðan er alvarleg, því er ekki að neita en markmið okkar er að semja, það er alveg ljóst,“ segir Ólafur Teitur. „Kostnaðurinn við að endurræsa álverið eftir lokun sem þessa gæti numið hundruðum milljóna króna.“ Fram kemur í minnisblaði Hafnarfjarðarbæjar að viðskipti álversins við fyrirtæki í Hafnarfirði nemi allt að tveimur milljörðum á ári. Að sama skapi eru beinar tekjur Hafnarfjarðarbæjar af álverinu í Straumsvík 1,7 milljarðar á ári. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, sagði bæjaryfirvöld fylgjast með gangi mála. „Við vonum að það verði hægt að finna lausn á þessari deilu. Það eru miklir hagsmunir í húfi fyrir alla aðila að samningar náist,“ sagði Haraldur. Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, veiti ekki viðtal þegar eftir því var leitað. sveinn@frettabladid.is Alcan sagt vilja losna við raforkukaup Fundi fulltrúa starfsmanna álversins í Straumsvík með fulltrúum fyrirtækisins hjá ríkissáttasemjara var slitið í gær án árangurs. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Byrjað verður að loka álverinu að óbreyttu. Starfsmenn telja deiluna leikrit í stærri áformum Rio Tinto. Staðan er alvarleg, því er ekki að neita en markmið okkar er að semja, það er alveg ljóst. Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Alcan Boðberi friðar á feigðarslóð Frans páfi mætti til Mið-Afríkulýðveldisins í gær sem sendiboði friðar og tók þátt í friðarmessu í höfuðborginni Bangui. Borgarastyrjöld geisar í Mið-Afríkulýðveldinu og er landið hættulegasti viðkomustaður Frans páfa í Afríkuferð hans. NordicphoTos/aFp 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 4 9 -8 5 2 8 1 7 4 9 -8 3 E C 1 7 4 9 -8 2 B 0 1 7 4 9 -8 1 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.