Fréttablaðið - 01.12.2015, Síða 8
Til mín hefur leitað X og falið mér að gæta hagsmuna sinna vegna æru-
meiðandi ummæla sem þú viðhafðir um hann á Facebook, nánar tiltekið í
umræðuhópi með nafninu X en ummælin virðist þú hafa látið falla í byrjun X 2015.
Í bréfinu lýsir þú því að það var ekki „einn af draumum mínum að vera læst inn í
herbergi meðan drengirnir skiptust á að uppfylla sínar óskir“. Af tilvitnuðum orðum
verður ekki betur séð en að þarna sért þú að lýsa frelsissviptingu og nauðgun.
„Margir fengu nú leyfi frá X til að gera það sem þeir vildu. Það var nú fínt þar sem
hann gerði sama hlutinn. Það fékk enginn leyfi frá mér.“
Í tilvitnuðum ummælum felst ásökum um að umbj. minn hafi nauðgað þér og
stuðlað að sambærilegum brotum gegn þér. Um er að ræða ásakanir um refsiverða
háttsemi sem margra ára fangelsi liggur við samkvæmt íslenskum lögum sbr.
meðal annars 1. mgr. 194 gr. laga nr. 19/1940. Ummæli hafa að geyma ærumeið-
andi aðdróttun í garð umbjóðanda míns og varða við 235. gr laga nr. 19/1940.
Úr kröfubréfi til konu sem sagði frá meintum kynferðisbrotum á Facebook.
Ég er með tugi mála
á mínu borði sem
tengjast ærumeiðingum.
Óvandaður fréttaflutningur
kyndir undir svona hlutum.
Fólk sér stríðsfyrirsögn um
það að það sé einhver íbúð
útbúin til nauðgana. Það sér
eitthvað fyrir hugskots-
sjónum sér og missir stjórn
á sér.
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
hæstaréttarlög-
maður
Úr bréfi til konu sem nafngreindi meintan geranda
Dómsmál Konu sem sagði frá meintu
kynferðisbroti á lokaðri umræðu-
síðu á Facebook var sent kröfubréf í
sumar og á hún yfir höfði sér máls-
höfðun.
Í ummælum hennar telur lög-
fræðingur kæranda, Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson, felast ásökun um
að kærandi hafi nauðgað henni
og stuðlað að sambærilegum
brotum annarra gegn konunni.
Í kröfubréfi Vilhjálms til konunnar
er þess krafist að hún biðjist afsök-
unar á ummælunum og leiðrétti þau
á þeim stað sem hún lét þau falla. Þá
er þess krafist að hún greiði kæranda
sínum 200.000 krónur í miskabætur
og lögmannskostnað, 150.000 krón-
ur, auk virðisauka. Henni voru gefnir
fjórir dagar til að bregðast við bréf-
inu. Bréfið barst henni í almennri
póstsendingu degi fyrir kröfufrest.
Hjartað tekur völdin
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæsta-
réttarlögmaður segir múgæsingu í
fjölmiðlum verða til þess að fólk tali
og hegði sér með óábyrgari hætti
en annars. Hann sækir fleiri æru-
meiðingamál, þeirra á meðal nokkur
sem tengjast meintum nauðgunum
tveggja karlmanna í Hlíðahverfi eftir
bekkjarskemmtanir í Háskólanum
í Reykjavík. „Ég er með tugi mála á
mínu borði sem tengjast ærumeið-
ingum. Óvandaður fréttaflutningur
kyndir undir svona hlutum. Fólk sér
stríðsfyrirsögn um það að það sé ein-
hver íbúð útbúin til nauðgana. Það
sér eitthvað fyrir hugskotssjónum sér
og missir stjórn á sér. Nauðgaraum-
mæli sem verða kærð urðu undir
hughrifum fjölmiðlaumfjallana um
málið. Þegar þetta gerist, þá tekur
hjartað völdin. Fólk gjörsamlega
missir sig.“
Vilhjálmur telur bæði fólk og fjöl-
miðla ekki átta sig á ábyrgð sinni.
„Þetta er samspil fjölmiðla og ein-
staklinga á samfélagsmiðlum á borð
við Facebook, Snapchat, Twitter,
WhatsApp og Instagram. Einstak-
lingar verða að hugsa um þessa
miðla sem sinn fjölmiðil. Svo eru
kommentakerfin líka vettvangur þar
sem þarf að gæta ábyrgðar. Það hefur
svo margt breyst á stuttum tíma, fólk
hafði áður ákveðinn umþóttunar-
tíma. En í dag er fólk fljótt til ef það er
í geðshræringu að láta ummæli falla
sem hafa afleiðingar.“
Vilhjálmur segist ekki eltast við
mál af þessu tagi nema þau séu alvar-
leg. „Til mín leitar fólk sem hefur
sannarlega ástæðu til að verjast
ummælum á netinu. Mörg málanna
fara ekki í gegnum dómskerfið held-
ur eru leyst manna á milli.“
Tugir mála vegna ærumeiðinga
Málshöfðunum vegna ærumeiðandi ummæla hefur fjölgað vegna opnari umræðu um kynferðisbrot, segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
hæstaréttarlögmaður. Fólk viti ekki alltaf þegar það brjóti lög. Það missi stjórn á sér í geðshræringu og átti sig ekki á afleiðingum þess.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson segir tugi mála á sínu borði vegna ærumeiðandi um-
mæla sem hafi fallið á netinu. NordicpHoTos/geTTy
Kristjana Björg Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
CRÉATIVE TECHNOLOGIE
Frábær vinnuaðstaða með góðu aðgengi fyrir farm og farþega. 180° opnun á afturhurðum, rennihurð, þægileg hleðsluhæð, há sætisstaða og fjöldi geymslu-
hólfa. Öflug en sparneytin 90 hestafla dísilvél ásamt spólvörn og ESP stöðugleikakerfi gera Berlingo Van að öruggum og hagkvæmum kosti fyrir þinn rekstur.
Veldu traust umboð með einstöku þjónustuframboði fyrir bíla- og tækjaflota.
KOMDU OG PRÓFAÐU CITROËN BERLINGO VAN - NÚNA Á LÆGRA VERÐI
citroen.is
• 3,3 M - 4,1 M HLEÐSLURÝMI • 850 KG BURÐARGETA • 3JA MANNA • SPARNEYTINN •3 3
Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
BETRI REKSTUR OG AUKIN ÞÆGINDI
CITROËN BERLINGO VAN 1,6 HDi 90 hö dísil
FRÁ: 2.950.000 KR. MEÐ VSK
FRÁ: 2.850.000 KR. MEÐ VSK
FRÁ: 2.379.032 KR. ÁN VSK
FRÁ: 2.298.387 KR. ÁN VSK
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
15á
ra afmæli
Citroënhjá Brimborg
Citroen_Berlingo_5x20_20150923_END.indd 1 24.9.2015 10:49:47
Ærumeiðandi ummæli
konunnar segir Vilhjálmur
brjóta í bága við 1. mgr. 194.
gr. laga nr. 19/1940.
1 . D e s e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A Ð I Ð
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
4
9
-9
8
E
8
1
7
4
9
-9
7
A
C
1
7
4
9
-9
6
7
0
1
7
4
9
-9
5
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K