Fréttablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 10
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Nú er vetur!
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
S805-10D 135cm
ál snjóskófla
2.595
S805-4L 170CM
ál snjóskafa
2.190
Rúðuskafa
165Hálkusalt 5 kg
585
Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar
740
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Sími 555 4789
SELFOSS
Sími 482 3949
Bættu árangurinn!
Íþróttagleraugu með og án styrkleika.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og g
læsileiki e
ndalaust ú
rval af há
gæða flísu
m
Tekjur af erlendum ferðamönnum
námu um 303 milljörðum króna á
síðasta ári. FréTTablaðið/Vilhelm
efnahagsmál Í dag birtir Hagstofan
upplýsingar um þjónustujöfnuð
við útlönd á þriðja ársfjórðungi. Að
mati Hagfræðideildar Landsbank-
ans er ekki ástæða til annars en að
ætla að tekjur af erlendum ferða-
mönnum aukist verulega á milli ára.
Tekjur af erlendum ferðamönn-
um námu um 303 milljörðum króna
á síðasta ári, eða 28 prósentum alls
útflutnings frá landinu. Í fréttabréfi
sínu í gær gerði hagfræðideildin
grein fyrir því hvernig tekjur af
ferðamönnum hafa haldist í hendur
við fjölda og fjölgun ferðamanna
sem fer í gegnum Keflavíkurflug-
völl. Talsverð fjölgun varð á ferða-
mönnum á þriðja ársfjórðungi frá
því á sama tímabili fyrir ári og gera
má því ráð fyrir að tekjurnar verði
eftir því. – sg
Búist við meiri
tekjum af
ferðamönnum
Velferðarmál Af fjórtán sjúkling-
um á réttar- og öryggisgeðdeildum
Landspítala hefur helmingur náð
nægilega góðri heilsu til að útskrif-
ast af spítalanum en ónæg búsetuúr-
ræði koma í veg fyrir það.
„Þessir sjúklingar þurfa að vera
hjá okkur því annars fara þeir á
götuna. Við getum ekki leyft það af
siðferðislegum ástæðum. Varðandi
sjúklinga á réttargeðdeild höfum
við ekki heldur leyfi til þess því
við vinnum eftir dómi,“ segir Guð-
mundur Sævar Sævarsson, deildar-
stjóri öryggis- og réttargeðdeildar-
þjónustu spítalans.
Sumir hafa beðið í að minnsta
kosti ár eftir viðeigandi búsetuúr-
ræði en húsnæðið þarf að bjóða upp
á aðhald, ramma og eftirlit.
„Það er ekki í boði að þessir ein-
staklingar fari inn á aðstandendur.
Þetta er fólk með langa sögu veik-
inda og getur valdið skaða eða gert
eitthvað af sér ef það veikist aftur.
Það þarf að vera undir eftirliti og
það er á ábyrgð samfélagsins að sjá
til þess,“ segir Sævar.
Á öryggisgeðdeild eru sjúklingar
sem sviptir hafa verið sjálfræði lagð-
ir inn og eru rúm fyrir átta sjúklinga.
Í dag eru þó níu manns á deildinni.
„Við sinnum ekki lengur meðferð
á þessum sjúklingum og þannig eru
deildirnar notaðar sem geymslur.
Um leið getum við ekki tekið á móti
sjúklingum sem við ættum að vera
að sinna. Þeir eru fastir á Hring-
braut,“ segir Guðmundur.
Alls bíða 30 til 40 geðfatlaðir eftir
búsetuúrræði í Reykjavík og þar af
tveir af þessum tveimur deildum.
Stefán Eiríksson, sviðsstjóri vel-
ferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir
átak hafa verið gert með samstarfi
velferðarsviðs og geðsviðs spítalans.
Um áramót voru sextán sjúklingar
Meðferð lokið en sitja
fastir á geðdeildunum
Dæmi eru um sjúklinga á réttar- og öryggisgeðdeildum sem hafa beðið í ár eftir
búsetuúrræði. Deildarstjóri á Landspítalanum segir fólk dæmt til geymslu og að
samfélagið beri ábyrgð. Þriðjungur sjúklinganna bíður húsnæðis í Reykjavík.
14 sjúklingar eru á réttar- og öryggisgeðdeild landspítalans. helmingur hefur lokið
meðferð en hefur engan samastað. FréTTablaðið/anTon
Það er ekki í boði að
þessir einstaklingar
fari inn á aðstandendur.
Þetta er fólk með langa sögu
veikinda og getur valdið
skaða eða gert eitthvað af sér
ef það veikist aftur.
Guðmundur Sævar
Sævarsson
deildarstjóri
öryggis- og réttar-
geðdeildarþjón-
ustu Landspítalans
sem höfðu lokið meðferð settir á
lista og hafa fimmtán af þeim fengið
búsetuúrræði. Þar af fjórir af örygg-
is- og réttargeðdeild.
„Síðan hafa tveir sjúklingar af
þessum deildum bæst við á listann á
síðustu mánuðum. Þeir bíða nú eftir
úrræði hjá okkur eða öðru úrræði
sem ríkið þyrfti að sjá um þar sem
venjuleg úrræði á vegum sveitar-
félaga duga ekki í sumum tilfellum,“
segir Stefán. erlabjorg@frettabladid.is
7
sjúklingar hafa lokið með-
ferð og bíða húsnæðis.
1 . d e s e m b e r 2 0 1 5 Þ r I ð J U d a g U r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
4
9
-9
3
F
8
1
7
4
9
-9
2
B
C
1
7
4
9
-9
1
8
0
1
7
4
9
-9
0
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K