Fréttablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 24
Nú heyrir framleiðsla Trabantsins sögunni til, en bíllinn er þó víða enn í
hávegum hafður og til dæmis er hægt að leigja sér bílferð um Berlín á
Traböntum. Þessum Trabant 601 hefur sannarlega verið vel við haldið
og pólskur eigandi hans hefur ótal sinnum skipt um vél í bílnum og
sífellt hefur hann orðið öflugri. Bílinn hefur hann átt í 14 ár, en hann var
framleiddur á níunda áratug síðustu aldar. Fyrst skipti hann 0,6 lítra og
tveggja strokka upphaflegu vélinni út fyrir 1,1 lítra vél úr Volkswagen Polo
sem síðan fékk að fjúka fyrir 1,3 lítra vél.
Það þótti eigandanum ekki nóg og í fór 1,8 lítra vél og síðan 2,0 lítra
vél úr Golf GTI. Nokkrum árum seinna eyðilagði eigandinn Audi TT bíl
sinn og notaði hann þá 270 hestafla vélina úr honum í Trabantinn. Þann-
ig búinn er hann 4,5 sekúndur í hundraðið og 15,5 sekúndur í 200. Það
hjálpar náttúrulega til hversu léttur þessi bíll er. Bremsurnar eru einnig
úr Audi og 312 mm diskar að framan og 256 mm að aftan, enda dugar
ekkert minna fyrir svo öflugan bíl. Bíllinn er einnig útbúinn ABS- og ESP-
kerfum.
Flottasti og öflugasti
Trabantinn og er 270 hestöfl
Bílasafnarar ættu að kætast yfir
þeirri ákvörðun Mercedes Benz
að fækka hjá sér gömlum safn-
gripum og selja almenningi marga
gamla Merc edes Benz bíla. Þetta
eru bílar allt frá árinu 1929 til
1995 og hafa verið í eigu bílasafns
Mercedes Benz í Fellbach í ná-
grenni Stuttgart. Þessa bíla kalla
þeir Mercedes-menn „All Time
Stars“ og flokka þá bíla sem selja
á í þrjá flokka: „Premium Edition,
Collectors Edition og Drivers Edi-
tion“. Þar má finna bíla eins og
1994 árgerðina af Mercedes Benz
E 60 AMG Limited með 6,0 lítra
V8 og 381 hestafla bensínvél, en
aðeins 12 slíkir bílar voru fram-
leiddir. Bíllinn er fær um að taka
sprettinn í 100 á 5,4 sekúndum og
hámarkshraði hans er takmarkað-
ur við 250 km/klst. Að sjálfsögðu
fellur þessi bíll í flokkinn „Collec-
tors Edition“ og verð hans er í takt
við það, eða 189.000 evrur. Það er
um 26,7 milljónir króna. Þessum
bíl hefur aðeins verið ekið 74.800
kílómetra. Elsti bíllinn er 1929 ár-
gerðin af Type 630 Kompressor,
en sá nýjasti E 320 blæjubíll frá
árinu 1995. Allir bílarnir sem
seldir verða fara í gegnum grand-
skoðun þar sem 160 atriði eru
yfir farin. Bílarnir eru ennfrem-
ur allir með nákvæmlega skráða
sögu.
Mercedes Benz selur gamla safnbíla
S
tofnuð hefur verið vef-
síðan sjalfsalinn.is
með það markmiði að
fólk geti nú loks selt
bíla sína milliliða-
laust og án þess kostn-
aðar sem því fylgir að
þiggja þjónustu bílasala. Á vefn-
um gefst almenningi kostur á að
auglýsa bíla sína til sölu, en það
er frítt til áramóta. Þeir sem eru
í kauphugleiðingum geta skoðað
auglýsingarnar og leitað í þeim
að ákveðnum tegundum og gerð-
um bíla, náð sambandi við aug-
lýsendur og loks gengið frá milli-
liðalausum kaupum.
Af hverju ekki að kaupa bíl
milliliðalaust?
Hugmyndin að þessum nýja vett-
vangi milliliðalausra bílavið-
skipta kviknaði hjá skólafélögum
í háskólanum að Bifröst í apríl í
fyrra eftir að annar þeirra hafði
selt bílinn sinn í gegnum bílasölu
og greitt tilheyrandi þóknun fyrir
viðvikið. Þá vaknaði spurningin:
„Af hverju er ekki til auglýsinga-
miðill á netinu þar sem fólk sem
er í söluhugleiðingum getur aug-
lýst farartæki til sölu á einfald-
an hátt og væntanlegir kaupend-
ur leitað að faratækjum í gegn-
um öfluga leitarvél, keypt og selt
milliliðalaust á eigin ábyrgð?“
Einfaldur vefur í notkun
Sjálfsalinn.is er fyrir alla. Það
var meginmarkmið við uppsetn-
ingu hans að hann væri sem ein-
faldastur í allri notkun. Seljend-
ur þurfa að skrá sig inn á vefinn
undir nafni, heimilisfangi, síma-
númeri og netfangi til að fá virk-
an aðgang. Til að skrá farartæki
til sölu er fastanúmerið slegið
inn og í kjölfarið sækir sjalfsal-
inn.is grunnupplýsingar um far-
artækið í gagnagrunn Ökutækja-
skrár. Hugsanlegir kaupendur
geta, eftir að hafa séð auglýsing-
una og skoðað upplýsingarnar
frá Ökutækjaskrá og frá seljanda
um farar tækið, haft samband við
seljanda um síma eða í tölvupósti.
Í stuttu spjalli við Stefán Þór Sig-
fússon, umsjónarmanns vefjar-
ins, kemur í ljós að fjölmargir
bílar hafa nú þegar skipt um eig-
endur og aðeins komið jákvæð
viðbrögð frá viðskiptavinum.
Borist hefur töluvert af ábend-
ingum, hugmyndum og spurning-
um og það þykir forsvarsmönnum
vefjarins mjög vænt um. Á síð-
unni er fólk ýmist að skipta á far-
artækjum jafnvel með milligjöf,
eða selja farartækin sín beint.
gerir mögulegt að selja
bílinn án kostnaðar
Hugmyndin að sjalfsalinn.is kviknaði hjá skólafélögum á
Bifröst í fyrra. Fríar auglýsingar á vefnum til áramóta.
Margir bíða spenntir eftir Volvo S90 bílnum sem leysa mun af hólmi S80
á næsta ári. Volvo hefur ekki sýnt endanlegt útlit bílsins en það fá gestir
á bílasýningunni í Detroit að berja augum er sýningin verður opnuð í
janúar. Þarna er á ferðinni flaggskip Volvo í fólksbílaflokki og bíllinn er
það stór að hann er með sama undirvagn og XC90-jeppinn nýi. Það er
ekki það eina sem bílarnir munu eiga sameiginlegt því drifrásir bílanna
verða að mestu þær sömu, meðal annars Plug-In-Hybrid útgáfan sem
er um 400 hestöfl. Volvo mun einnig bjóða V90-langbaksútgáfu nýja
fólksbílsins og hugsanlega verður einnig í boði Cross Country útgáfa af
bílnum, eins og svo títt er með bílgerðir Volvo þessa dagana. Núverandi
Volvo S80 bíll er orðinn ansi gamall, eða frá árinu 2006 og því verður
hann orðinn 10 ára þegar kemur að sölu á S90.
Volvo kynnir nýja S90
flaggskipið í Detroit
Mercedes Benz E 60 AMG Limited er einn dýrgripanna sem seldir verða.
Hlutskipti bíleigenda landsins um þessar mundir. fréttABLAðið/GvA
Vel gengur hjá sportbíladeild Fiat, Abarth, og hefur hún selt 50% fleiri bíla
í ár en í fyrra og ætlar að tvöfalda sölukerfi sitt og auka úrval bíla sinna.
Salan er þó ekki neitt stórvægileg ennþá, en það stefnir í um 10.000 bíla
sölu hjá deildinni í ár. Ekki er úrvalið sem deildin býður þó mikið, heldur eru
það aðeins mismunandi gerðir Fiat 500 Abarth bíla. Abarth ætlar þó að
kynna á næstunni nýjan bíl sem ekki er komið nafn á og meiningin er einnig
að bjóða nýjan Fiat 124 Spider í Abarth-útgáfu.
Fiat er nú með um 300 sölustaði Abarth-bíla en ætlar að fjölga þeim í 750
og selja þá á stöðum sem þegar selja venjulega Fiat-bíla. Fiat telur að sala
Abarth-bíla á sölustöðum Fiat hjálpi ímynd Fiat og að sala þeirra komi til
með að hjálpa þessum sölustöðum mikið, þar sem mikil eftirspurn er eftir
öflugum smábílum nú. Abarth-bílarnir eru talsvert dýrari en grunngerðir
Fiat 500. Hefðbundinn Fiat 500 kostar 13.600 evrur, en Abarth-útgáfur
þeirra byrja í 18.000 evrum. Þeir allra dýrustu kosta 40-50.000 evrur.
Fiat ætlar einnig að hefja keppni í ralli á Fiat Abarth bílum og hefur valið
til þess Fiat 124 Abarth, sem er þó mikið breyttur til akstursins. Fiat átti
góðu gengi að fagna í World Rally Championship á áttunda og níunda ára-
tugnum með Fiat 131 Abarth bílum. Stærstu markaðir Abarth-bíla eru í Bret-
landi og á Ítalíu og eru þeir tveir markaðir svo til jafn stórir. Þriðji stærsti
markaðurinn er svo í Japan.
Fiat Abarth með 50%
söluaukningu og vill meira
bílar
Fréttablaðið
2 1. desember 2015 ÞRIÐJUDAGUR
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
4
9
-9
D
D
8
1
7
4
9
-9
C
9
C
1
7
4
9
-9
B
6
0
1
7
4
9
-9
A
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K