Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 26

Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 26
V olkswagen hefur fram- leitt Caddy frá árinu 1980 og þá aðallega sem sendibíl og var hann í fyrstu byggð- ur á Golf-bílnum. Svo er þó ekki lengur og er hann nú nýkominn af fjórðu kyn- slóð. Caddy hefur í nokkurn tíma einnig verið í boði sem hefðbund- inn fólksbíll því þar fer rúmgóð- ur bíll með mikið notagildi. Nú má fá Volkswagen Caddy bæði sem 5 og 7 manna bíl og er sá stærri með þremur sætaröðum. Öll sætin í þessum bílum eru fyrir fullorðna og hátt þak bílsins tryggir að það er mikið höfuðrými og reynd- ar er fótarýmið yfrið líka. Sætin eru auk þess stór og góð í bílnum, ætluð fyrir fullorðna og framsæt- in með óvenjulegri og góðri setu. Síðan er ekkert mál að taka sætis- bekkina úr bílnum og búa til ótrú- lega stórt flutningsrými. Það gæti verið afar praktískt fyrir hjól- reiðafólk sem getur látið hjólin sín standa upprétt sökum lofthæðar- innar og mikils rýmis og vel má koma fyrir 3-4 hjólum sem standa þá hlið við hlið. Caddy er því heppilegur bíll fyrir fólk með alls konar ævintýraþrá þar sem notast er við fyrirferðarmikinn búnað. Mikið notagildi og þægileg umgengni Greinarritari fékk tækifæri á að prófa þennan kostagrip og það í 5 manna útfærslunni. Í prufu- akstri yfir helgi sannaðist nota- gildi og gæði þessa bíls. Fyrir það fyrsta er bíllinn greinilega ákaflega vel smíðaður og þéttur. Bara þarf að opna og loka sterk- legum hurðunum til að fá þá til- finningu strax. Talandi um hurð- ir á Caddy þá hefur þessi bíll þann kost að vera með renni- hurðum á báðum hliðum, en það er ákaflega þægilegt í vinda- sömu landi og þar sem þröngt er um vik. Þessi bíll er örugg- lega kjörinn fyrir barnmargar fjölskyldur með öll sín sæti auk góðs flutningsrýmis, sem er 750 lítrar í 5 manna bílnum og 530 lítrar í þeim 7 manna. Öll um- gengni um bílinn er svo þægi- leg og ekki skortir á festingarn- ar fyrir barnabílstólana. Þessi fjórða kynslóð Caddy er mikið uppfærð, með meiri staðalbún- aði, öryggi og aðstoðarkerfum fyrir ökumann. Fá má bílinn með dísil-, bensín-, og metanvél- um, beinskiptan eða sjálfskiptan, framhjóladrifinn eða fjórhjóla- drifinn. Eyðslugrönn en dugleg dísilvél Bíllinn sem prófaður var er með 102 hestafla 1,4 lítra dísilvél sem togar ansi vél þrátt fyrir hóf- lega hestaflatölu. Fyrir vikið er hann hvorki nein spyrnukerra né letingi og vel má spretta úr spori ef liggur á. Bíllinn reynd- ist einkar þægilegur í akstri og afar þéttur. Fjöðrunin er þægi- leg en ekki sportleg og á það vel við þessa gerð bíls. Í hóflegum bæjarakstri er vel mögulegt að halda þessum dísilbíl í um 5 lítra eyðslu og gaman væri að reyna að ná honum nálægt 4 lítrum ut- anbæjar, þó það hafi ekki verið reynt. Í venjulegum akstri þar sem stundum er reynt á vélina er hann með á milli 6 og 7 lítra í eyðslu og er það afar viðunandi með svo stóran bíl. Það sem vakti einna helst furðu mína við akstur Caddy var hve hljóðlátur bílinn var og greinilegt er að Volkswa- gen hefur lagt mun meiri áherslu á einangrun bílsins en í sendi- bílaútgáfum hans. Annað gott sem segja má um bílinn er verð hans en þennan myndar lega og praktíska bíl má fá frá 3.770.000 kr. Það er í sjálfu sér ekki skrít- ið að margir leigubílstjórar þessa lands hafi valið Caddy sem vinnu- tæki sitt. Stór bíll með mörgum sætum, stóru flutningsrými og eyðslugrönnum en dugmiklum vélum hlýtur að vera ágæt upp- skrift að leigubíl. Caddy fyrir athafnamanninn Einn praktískasti bíll sem fá má fyrir jafnt barnmargar fjölskyldur sem athafnafólk. Volkswagen Caddy er ferlega praktískur í fjölskylduútgáfu jafnt sem sendibíll. fréttablaðið/gVa J ón Hafþór Marteins- son stofnaði fyrirtæk- ið Tækniþjónustu bif- reiða fyrir 16 árum. Auk þess að vera bifvélavirki er hann menntaður kerfis- tæknir (Systemtechn iker) frá Bosch í Þýskalandi. Fyrir tækið tók fyrst um sinn að sér viðgerðir og þjónustu við þýska bíla, en fljót- lega bættist við sala á varahlut- um. Nú eru fyrirtækin tvö, annars vegar Tækniþjónusta bifreiða sem sér um viðgerðir á þýskum bílum og svo bifreid.is sem er varahluta- verslun og sérhæfir sig einnig í þýskum bifreiðum. Mikil reynsla liggur að baki fyrirtækinu, bæði í þjónustu og verslun með vara- hluti. Fyrirtækin tvö eru til húsa í Hjallahrauni í Hafnarfirði. Flestir í fjölskyldunni í fyrirtækinu Tækniþjónusta bifreiða er fjöl- skyldufyrirtæki. Margir sem vinna innan fyrirtækisins hafa í raun alist þar upp og er það enn þannig að allir í fjölskyldunni, ungir sem aldnir, leggja hönd á plóginn þegar álagið er mikið eða breytingar standa yfir. „Hér eru börnin aldrei fyrir ef þau heim- sækja foreldra í vinnuna heldur finna þau verkefni við sitt hæfi og því oft líf og fjör hjá okkur. Stór hluti af föstum starfsmönn- um er einnig í fjölskyldunni,“ segir Jón Hafþór. Í hádeginu hittast starfsmenn á efri hæð verslunarinnar og gæða sér á heimatilbúnum fjölskyldu- mat, framreiddum af ættmóður- inni. Oft er um að ræða mat sem fæstir eiga að venjast dagsdag- lega, sérstaklega ungu drengirnir sem hafa starfað í styttri tíma, en t.d. þegar viðtalið var tekið var siginn fiskur á boðstólum. Árleg vestfirsk skötuveisla Fjölskyldan er ættuð úr Ísa- fjarðardjúpi og á þar sterk- ar rætur. Faðir Jóns Hafþórs er uppalinn í Kálfavík í Skötufirði. Þessar rætur liggja skemmtilega í fjölskyldumeðlimum, t.d. starf- ar sonur Jóns Hafþórs í verslun bifreid.is. Hann er uppalinn í Hafnarfirði og man varla eftir sér öðruvísi en með annan fótinn í fyrirtæki föður síns. Í frístund- um rappar hann með hljómsveit sinni, Valby bræðrum, en á sumr- in gerir hann út strandveiðibát frá Bolungarvík með afa sínum. Önnur tenging við Vestfirði er sú að síðastliðin 10 ár hefur fyrir tækið haldið skötuveislu fyrir viðskiptavini sína. Skat- an kemur úr djúpinu, nánar til- tekið frá Dána Kálfi, frænda Jóns Hafþórs, og er framreidd af föður hans. Veislan er mjög óhefðbundin þar sem hún er hald- in inni í fyrirtækinu sjálfu og er hún orðin fastur liður í jóla- undirbúningi margra viðskipta- vina. Er þá oft slegið á létta strengi og í fyrra komu t.d. Fjallabræður og sungu, en Jón Hafþór syngur einmitt með þeirri skemmtilegu söngsveit. Óvenjulegt viðmót og innréttingar Varahlutaverslunin bifreid.is er nýbúin að greina sig frá við- gerðarþjónustunni. „Við höfum nú opnað nýja verslun, þó í sama húsi, og bjóðum nú upp á enn skil- virkari og sérhæfðari þjónustu. Við höfum ákveðið að viðmót þessarar nýju verslunar sé allt annað en það sem almennt geng- ur og gerist. Við viljum að við- skiptavinum líði vel þegar þeir koma inn, að þetta sé eins konar vin í daglegu amstri. fjölskyldufyrirtæki með vestfirsk tengsl Hjá Tækniþjónustu bifreiða starfar svo til öll fjölskyldan saman og þar ríkir vinalegt viðmót. bílaverkstæðið tækniþjónusta bifreiða og bifreið.is eru undir sama þaki. Bílar Fréttablaðið 4 1. desember 2015 ÞRIÐJUDAGUR 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 4 9 -8 A 1 8 1 7 4 9 -8 8 D C 1 7 4 9 -8 7 A 0 1 7 4 9 -8 6 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.