Fréttablaðið - 01.12.2015, Síða 32
Hyundai Tucson
Finnur Thorlacius reynsluekur
B
L hefur nýlega kynnt
til sögunnar kunn-
uglegan bíl sem þó
hefur ekki verið í sölu
í nokkur ár. Hann
heitir Hyundai Tuc-
son, er jepplingur
og á forvera í bíl sem Hyundai
nefndi i35 til margra ára, en hét
áður Tucson. Nú hefur Hyundai
aftur tekið þetta nafn upp á bíln-
um. Hann hefur reyndar borið
þetta nafn í Bandaríkjunum frá
upphafi. Með nýrri kynslóð þessa
bíls er kominn fram gersamlega
útlitsbreyttur bíll sem sannast
sagna er heilmikið fyrir augað.
Hann er orðinn afar sportlegur
og á mjög lítið sameiginlegt með
þeim Tucson-bíl sem seldur var
hér á árum áður og var einkar
ljótur bíll. Nú eru línurnar í bíln-
um sterklegar og upphækkandi
gluggalínan ásamt afturhallandi
þaklínu gerir þennan jeppling að
einum þeim sportlegasta og fríð-
asta jepplingi sem er í boði í dag.
Þennan snaggaralega bíl má fá frá
kr. 4.790.000, en einnig á 7.490.000
í sinni allra flottustu útfærslu og
er það ansi mikið verðbil.
Eyðslutölur frá framleiðanda réttar
Hyundai Tucson má fá bæði
framhjóladrifinn og fjórhjóladrif-
inn, en þar eru valmöguleikarnir
ekki upptaldir. Til dæmis má fá
hann í 4 mismunandi útfærslum
innréttingar, Classic, Style, Com-
fort og Premium. Ennfremur má
fá í hann 3 gerðir véla, 1,7 og 2,0
lítra dísilvélar og 1,6 lítra bens-
ínvél sem er 175 hestöfl. Dísilvél-
arnar eru 156 og 136 hestöfl og sú
aflmeiri með minna sprengirým-
ið, hvernig sem á því stendur. Sá
bíll sem reyndur var var fram-
hjóladrifinn og með 2,0 lítra dísil-
vélinni. Þar fer dugmikill rokkur
sem ekki eyðir þó miklu. Það er
reyndar sérstakt gleðiefni þegar
uppgefin eyðsla frá framleiðanda
stenst og það í borgarumferðinni.
Uppgefin eyðsla hans er 6,1 lítri
og það er einmitt það sem bíllinn
var að eyða í borgarumferðinni.
Er það frábær niðurstaða fyrir
svo myndarlegan jeppling.
Er bensínútgáfan betri kostur?
Ég fékk tækifæri til að prófa bens-
ínútgáfu bílsins líka og hann eyðir
engu meira en dísilbíllinn og vakti
það bæði gleði og furðu. Þar sem
bensínútgáfan er 200.000 kr. ódýr-
ari má spyrja sig að því hvort ekki
séu einmitt betri kaup í honum
og ekki spýr hann nituroxíðsam-
böndum út í loftið, svona til að líða
enn betur með kaupin. Auk þess
er hann aflmeiri og tekur sprett-
inn í hundraðið á 7,6 sekúndum og
stingur af flesta aðra jepplinga.
Akstur Tucson er svo enn til að
gleðja ökumann, hann er hrika-
lega lipur og meðfærilegur bíll og
ekki er hægt að kvarta yfir góðri
fjöðrun hans. Hún fer ákaflega
vel með ökumann, er slaglöng sem
prófa má með því að fara hratt
yfir hraðahindranir og stuðlar að
litlum hliðarhalla í beygjum. Stýr-
ingin er hæfilega létt og nákvæm
og fyrir vikið verður þessi bíll
afar ánægjulegur í akstri. Svo að
kvarta megi nú yfir einhverjum
ókostum þá gerist eiginlega ekki
neitt fyrstu sekúnduna ef stigið er
hressilega á eldsneytisgjöfina og á
það bæði við dísil- og bensínútgáf-
una. Forþjöppuhik er líklega söku-
dólgurinn.
Bestu kaupin í ódýrustu útgáfunni
Mikil jákvæð breyting hefur
átt sér stað í innréttingu bíls-
ins frá forveranum i35. Án þess
að hér sé komin lúxusinnrétt-
ing má segja að hún sé engu að
síður lagleg og greinilega mjög
vel frá gengin. Nokkuð er vand-
að til efnisvals og framsætin eru
með flott áklæði auk þess að vera
góð. Bíllinn er prýðilega búinn
og kemur nú í sinni ódýrustu út-
færslu með LED dag- og parkljós-
um, leður klæddu aðgerðastýri,
hraðastilli, hita í stýri og fram-
sætum, USB-, AUX- og Blueto-
oth-tengingum og það sem miklu
máli skiptir, alvöru varadekki. Í
dýrari útfærslum bílsins bætist
heilmikið við. Þó verður að segja
að mikill ókostur við Tucson sé
hve farangursrýmið er lítið, með
því minnsta í þessum flokki bíla.
Að mati undirritaðs eru bestu
kaupin, sem oft fyrr, í einföld-
ustu og ódýrustu gerð þessa bíls,
helst beinskiptum. Enda hækk-
ar verðið hratt eftir því sem betri
útfærsla er valin. Það munar jú
miklu á 4.790.000 og 7.490.000 kr.
Tucson verður fullorðinn og fríður
Hét áður Hyundai i35, en með nýrri kynslóð hefur hann bæði skipt um nafn og karakter og er orðinn
aðlaðandi bíll. Eyðslutölur frá framleiðanda stóðust og er það sjaldgæft.
2,0 1 l dísilvél 136 hestöfl
Framhjóladrif
Eyðsla 6,1 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 156 g/km CO2
Hröðun 12,0 sek.
Hámarkshraði 184 km/klst.
Verð 4.790.000 kr.
Umboð BL
l Aksturseiginleikar
l Eyðsla
l Staðalbúnaður
l Lítið farangursrými
l Forþjöppuhik
l Hátt verð bestu
útfærslna
Hyundai
Tucson
Hyundai Tucson leysir af hólmi Hyundai i35 og er nú orðinn hinn fríðasti bíll og örlítið stærri en forverinn. fréTTablaðið/gva
1 Hin ágætasta hurðaropnun og gott aðgengi að rýru flutningsplássi.
2 Afar jákvæðar breytingar á inn-réttingu bílsins.
3 Mjög ljúft var að sjá að eyðslu-tölur frá framleiðanda stóðust.
1
3
2
Bílar
Fréttablaðið
10 1. desember 2015 ÞRIÐJUDAGUR
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
4
9
-8
F
0
8
1
7
4
9
-8
D
C
C
1
7
4
9
-8
C
9
0
1
7
4
9
-8
B
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K