Fréttablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 32
Hyundai Tucson Finnur Thorlacius reynsluekur B L hefur nýlega kynnt til sögunnar kunn- uglegan bíl sem þó hefur ekki verið í sölu í nokkur ár. Hann heitir Hyundai Tuc- son, er jepplingur og á forvera í bíl sem Hyundai nefndi i35 til margra ára, en hét áður Tucson. Nú hefur Hyundai aftur tekið þetta nafn upp á bíln- um. Hann hefur reyndar borið þetta nafn í Bandaríkjunum frá upphafi. Með nýrri kynslóð þessa bíls er kominn fram gersamlega útlitsbreyttur bíll sem sannast sagna er heilmikið fyrir augað. Hann er orðinn afar sportlegur og á mjög lítið sameiginlegt með þeim Tucson-bíl sem seldur var hér á árum áður og var einkar ljótur bíll. Nú eru línurnar í bíln- um sterklegar og upphækkandi gluggalínan ásamt afturhallandi þaklínu gerir þennan jeppling að einum þeim sportlegasta og fríð- asta jepplingi sem er í boði í dag. Þennan snaggaralega bíl má fá frá kr. 4.790.000, en einnig á 7.490.000 í sinni allra flottustu útfærslu og er það ansi mikið verðbil. Eyðslutölur frá framleiðanda réttar Hyundai Tucson má fá bæði framhjóladrifinn og fjórhjóladrif- inn, en þar eru valmöguleikarnir ekki upptaldir. Til dæmis má fá hann í 4 mismunandi útfærslum innréttingar, Classic, Style, Com- fort og Premium. Ennfremur má fá í hann 3 gerðir véla, 1,7 og 2,0 lítra dísilvélar og 1,6 lítra bens- ínvél sem er 175 hestöfl. Dísilvél- arnar eru 156 og 136 hestöfl og sú aflmeiri með minna sprengirým- ið, hvernig sem á því stendur. Sá bíll sem reyndur var var fram- hjóladrifinn og með 2,0 lítra dísil- vélinni. Þar fer dugmikill rokkur sem ekki eyðir þó miklu. Það er reyndar sérstakt gleðiefni þegar uppgefin eyðsla frá framleiðanda stenst og það í borgarumferðinni. Uppgefin eyðsla hans er 6,1 lítri og það er einmitt það sem bíllinn var að eyða í borgarumferðinni. Er það frábær niðurstaða fyrir svo myndarlegan jeppling. Er bensínútgáfan betri kostur? Ég fékk tækifæri til að prófa bens- ínútgáfu bílsins líka og hann eyðir engu meira en dísilbíllinn og vakti það bæði gleði og furðu. Þar sem bensínútgáfan er 200.000 kr. ódýr- ari má spyrja sig að því hvort ekki séu einmitt betri kaup í honum og ekki spýr hann nituroxíðsam- böndum út í loftið, svona til að líða enn betur með kaupin. Auk þess er hann aflmeiri og tekur sprett- inn í hundraðið á 7,6 sekúndum og stingur af flesta aðra jepplinga. Akstur Tucson er svo enn til að gleðja ökumann, hann er hrika- lega lipur og meðfærilegur bíll og ekki er hægt að kvarta yfir góðri fjöðrun hans. Hún fer ákaflega vel með ökumann, er slaglöng sem prófa má með því að fara hratt yfir hraðahindranir og stuðlar að litlum hliðarhalla í beygjum. Stýr- ingin er hæfilega létt og nákvæm og fyrir vikið verður þessi bíll afar ánægjulegur í akstri. Svo að kvarta megi nú yfir einhverjum ókostum þá gerist eiginlega ekki neitt fyrstu sekúnduna ef stigið er hressilega á eldsneytisgjöfina og á það bæði við dísil- og bensínútgáf- una. Forþjöppuhik er líklega söku- dólgurinn. Bestu kaupin í ódýrustu útgáfunni Mikil jákvæð breyting hefur átt sér stað í innréttingu bíls- ins frá forveranum i35. Án þess að hér sé komin lúxusinnrétt- ing má segja að hún sé engu að síður lagleg og greinilega mjög vel frá gengin. Nokkuð er vand- að til efnisvals og framsætin eru með flott áklæði auk þess að vera góð. Bíllinn er prýðilega búinn og kemur nú í sinni ódýrustu út- færslu með LED dag- og parkljós- um, leður klæddu aðgerðastýri, hraðastilli, hita í stýri og fram- sætum, USB-, AUX- og Blueto- oth-tengingum og það sem miklu máli skiptir, alvöru varadekki. Í dýrari útfærslum bílsins bætist heilmikið við. Þó verður að segja að mikill ókostur við Tucson sé hve farangursrýmið er lítið, með því minnsta í þessum flokki bíla. Að mati undirritaðs eru bestu kaupin, sem oft fyrr, í einföld- ustu og ódýrustu gerð þessa bíls, helst beinskiptum. Enda hækk- ar verðið hratt eftir því sem betri útfærsla er valin. Það munar jú miklu á 4.790.000 og 7.490.000 kr. Tucson verður fullorðinn og fríður Hét áður Hyundai i35, en með nýrri kynslóð hefur hann bæði skipt um nafn og karakter og er orðinn aðlaðandi bíll. Eyðslutölur frá framleiðanda stóðust og er það sjaldgæft. 2,0 1 l dísilvél 136 hestöfl Framhjóladrif Eyðsla 6,1 l/100 km í bl. akstri Mengun 156 g/km CO2 Hröðun 12,0 sek. Hámarkshraði 184 km/klst. Verð 4.790.000 kr. Umboð BL l Aksturseiginleikar l Eyðsla l Staðalbúnaður l Lítið farangursrými l Forþjöppuhik l Hátt verð bestu útfærslna Hyundai Tucson Hyundai Tucson leysir af hólmi Hyundai i35 og er nú orðinn hinn fríðasti bíll og örlítið stærri en forverinn. fréTTablaðið/gva 1 Hin ágætasta hurðaropnun og gott aðgengi að rýru flutningsplássi. 2 Afar jákvæðar breytingar á inn-réttingu bílsins. 3 Mjög ljúft var að sjá að eyðslu-tölur frá framleiðanda stóðust. 1 3 2 Bílar Fréttablaðið 10 1. desember 2015 ÞRIÐJUDAGUR 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -8 F 0 8 1 7 4 9 -8 D C C 1 7 4 9 -8 C 9 0 1 7 4 9 -8 B 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.