Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 34

Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 34
Volkswagen Golf, sem nú er af áttundu kynslóð, mun fá andlitslyftingu á næsta ári og kemur í sölu um lok næsta árs eða í síðasta lagi í byrjun árs 2017. Þessi háttur var einnig hafður á með sjöttu og sjöundu kynslóð Golf, svo ekkert kemur á óvart með þessa tilhögun. Búist er við því að ytra útlit Golf verði með sterkari línum en breytingin verði meiri innanborðs, þar sem meiningin er að skipta út mörgum tökkum fyrir snertiskjá og að öll stjórntæki bílsins verði stafræn. Golf R er nú þegar kominn með þessa nýju tækni og því mun hefðbundinn Golf erfa hana frá þessari öflugustu og tæknilegustu gerð bílsins. Ekki er þó víst hvort þessi breyting verði staðalbúnaður eða valbúnaður og verður tíminn að leiða það í ljós. Búist er við því að Volkswagen muni kynna þennan breytta bíl á bílasýningunni í París á næsta ári. Þeir bílar sem hvíla á sama MQB-undirvagni og Golf, þ.e. Audi A3, Seat Leon og Skoda Octavia, munu einnig fá and- litslyftingu á svipuðum tíma og Golfinn. Andlitslyftur Golf seint á næsta ári Þýski lúxusbílaframleiðandinn BMW hefur aldrei selt jafn marga bíla í október og nú. Salan nam 164.915 bílum og jókst um 6,3% á milli ára. Auk þess seldust 26.392 Mini-bílar, en Mini er í eigu BMW. Sala Mini-bíla gekk ekki eins vel og á BMW-bílum í október og minn- kaði um 8,5% á milli ára. Góð sala á BMW-bílum er helst að þakka góðri sölu á jepplingum og jeppum BMW, sem og á nýrri BMW 7-línu. Mikil eftirspurn er eftir nýja BMW X1 jepplingnum og einnig góð sala í BMW X3 og X5. Heildarsala BMW og Mini á árinu er 1,84 milljónir bíla og hefur aukist um 7%. Er söluaukningin um 5,8% á BMW og 15% á Mini. Mestur vöxtur hefur orðið í Evrópu, eða um 10%, en í Bandaríkjunum er hann 5,4% og 2,3% í Kína, en þar hefur heldur betur hægst á vexti í bílasölu á árinu. BMW seldi 2.553 eintök af rafmagns- bílunum i3 og i5 í október og heildarsalan á þeim á árinu er komin upp í 23.133 bíla. Nemur þessi aukning um 80% frá fyrra ári. BMW með metmánuð Honda kynnti nýtt útlit Civic Coupe á bílasýningunni í Los Angeles seint í síðasta mánuði. Þessi bíll er með tveimur hurðum og mjög sportlegur í útliti. Hann verður með sama val í vélbúnaði og fjögurra hurða útgáfa Civic, eða 1,5 lítra vél með forþjöp- pu og 2,0 lítra vél sem einnig brennir bensíni. Honda lofar að nýr Civic verði langflottasti og best tæknilega búni Civic í 43 ára sögu bílsins. Honda mun einnig bjóða Civic í fimm hurða stallbaksútgáfu, sem og í öflugri Si-útgáfu, og ofuröflugri Type R-útgáfu. Þeim bíl verður í fyrsta sinn einnig beint að kaupendum í Bandaríkjunum. Honda sýndi líka nýjan vetnis bíl sinn, Clar ity FCV, en hann var áður sýndur á bílasýningunni í Tókýó fyrr í síðasta mánuði og sá bíll verður einnig í sölu í Bandaríkjunum. Honda ætlar sér greinilega stóra hluti vestanhafs, enda salan þar í hæstu hæðum um þessar mundir. Ný Honda Civic Coupe í LA  522 4600 www.krokur.net Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina. Krókur býður m.a. uppá: • Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum Taktu Krók á leiðarenda Suðurhraun 3, 210 Garðabær á þinni leið Bílar Fréttablaðið 12 1. desember 2015 ÞRIÐJUDAGUR 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -A 2 C 8 1 7 4 9 -A 1 8 C 1 7 4 9 -A 0 5 0 1 7 4 9 -9 F 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.