Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 40

Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 40
Í dag 19.40 Man. City - Hull Sport & 2 19.40 Boro - Everton Sport 3 Coca-Cola bikar karla: 19.00 Fjölnir - Selfoss Dalhús Ronaldo, messi og neymaR tilnefndiR alþjóðaknattspyrnusambandið, fifa, tilkynnti í gær hvaða leik- menn kæmu til greina sem bestu leikmenn ársins, bæði í karla- og kvennaflokki. Börsungarnir lionel messi og neymar voru báðir tilnefndir, sem og Cristiano Ronaldo sem á titil að verja að þessu sinni. sigurvegarinn fær gullbolta fifa en verðlaunin urðu til í núverandi mynd með samneiningu verðlauna fifa og franska fótboltatímaritsins france football. Þetta er í sjötta sinn sem gullbolti fifa er veittur en messi hefur verið tilnefndur í öll skiptin og getur unnið í fimmta sinn. Í kvennaflokki voru Carli loyd frá Bandaríkjunum, aya miyama frá Japan og Celia sasic frá Þýskalandi tilnefnd. körfubolti „Kæri körfubolti. frá deg- inum sem ég fór að gera körfubolta úr sokkum föður míns og skjóta ímynd- uðum sigurkörfum í forum-höllinni hef ég vitað að eitt var raunverulegt. Ég varð ástfanginn af þér.“ svona hefst ljóðið hans Kobe Bryant sem hann sendi út aðfaranótt mánu- dags til þess að láta heiminn vita að núverandi tímabil verði hans svana- söngur í nBa-deildinni. „Ég byrjaði að hlaupa. Ég hljóp fram og aftur völlinn. Þú fórst fram á mitt besta en ég gaf þér hjarta mitt,“ heldur Kobe áfram í þessu dramatíska ljóði sem eðlilega hefur vakið mikla athygli. enginn er eilífur og tíminn nær öllum að lokum. líka hinum 37 ára gamla Kobe Bean Bryant. „Hjarta mitt getur tekið við höggun- um. Hugur minn ræður við álagið en líkaminn veit að það er kominn tími til að kveðja. Það er í fínu lagi því ég er til- búinn að sleppa takinu,“ stendur enn fremur í ljóðinu góða. Sleppti háskólanum Kobe var að drífa sig er hann var ungur maður. tók áhættuna og hoppaði aðeins 18 ára gamall úr framhalds- skóla í nBa-deildina. sleppti því að fara í háskóla. Þetta síðasta tímabil hans í deildinni verður hans tuttugasta. Uppskeran á þessum 20 árum er ansi ríkuleg. fimm nBa-titlar, tvö Ólympíugull og ótal einstak- lingsverðlaun svo fátt eitt sé talið. Hann er líka þriðji stigahæsti leik- maður deildarinnar frá upphafi á eftir Kareem abdul-Jabbar og Karl malone. Hann er eini leikmaðurinn í sögu nBa-deildarinnar sem hefur náð 20 árum með sama félaginu. Kobe var valinn 13. í nýliðaval- inu af Charlotte Hornets. félagið hafði svo ekki trú á honum og skipti við la lakers sem tók á móti honum fegins hendi. fyrir það er Kobe þakklátur í dag. Maðurinn sem seldi deildina Kobe var að mörgu leyti bjargvættur fyrir nBa-deild- ina í mörg ár sem var í smá krísu eftir að michael Jord- an hafði lagt skóna á hill- una. Þá vantaði andlit með deildinni. Kobe var brúin fyrir nBa yfir að leBron James, Kevin durant og stephen Curry. Vissulega voru fleiri frábærir leik- menn í deildinni á þeim tíma sem stjarna Kobe skein hvað skærast en hann var sá leikmaður sem seldi flesta aðgöngumiða og treyjur. Það vildu allir sjá Kobe Bryant spila. Úrslitaeinvígi lakers og detroit Pistons árið 2004 fékk mest sjón- varpsáhorf síðan Jordan var síðast í úrslitum árið 1998. Á árunum 2000 til 2010 eru fjögur úrslitaeinvígi með virkilega gott áhorf. Þau hafa einn samnefnara – Kobe Bryant. „Kobe var minn Jordan," segir Paul george, leikmaður indiana, en hann var aðeins sex ára er Kobe kom inn í deildina. fjölmargir aðrir nBa-leik- menn taka í sama streng. Kobe var þeirra Jordan. Heil kynslóð körfu- boltamanna er að kveðja átrún- aðargoðið sitt. „Það má vel vera að hann hafi ekki verið e i n s góður og Jordan en ég ólst upp við að horfa á hann vinna titla og dást að honum. svo fór ég út að æfa mig og ímynda mér að ég væri Kobe. Hann hafði mikil áhrif á mig og marga fleiri.“ Það hefur verið búist við þess- ari yfirlýsingu frá Kobe í langan tíma. flestir vissu að þetta yrði hans kveðjutímabil. Það hefur líka komið á daginn að hann tók ákvörðun fyrir þó nokkru síðan. meiðsli hafa tekið sinn toll af honum síðustu ár og hann er kominn á endastöð. Ræddi málið við Jordan einn af fyrstu mönnunum sem fengu að vita af ákvörðun hans var sjálfur michael Jordan. maðurinn sem Kobe leit upp til og tók svo við keflinu af. „ É g s p u r ð i michael hve- nær maður vissi að tím- i n n væ r i kominn. Við veltum því fram og til baka. Hlóg- um mikið,“ s e g i r Kobe var minn Jordan Einn besti leikmaður í sögu NBA-deildarinnar, Kobe Bryant, hefur gefið það út að skórnir fari upp í hillu í lok tímabilsins. Hann hefur náð stórkostlegum árangri og haft ótrúleg áhrif á körfuboltann á glæstum 20 ára ferli. Kobe Bryant með verðlaunagripina fyrir meistaratitlana sína fimm en þessi magnaði kappi á glæstan feril að baki. Kobe er hann rifjar upp samtalið við Jordan síðasta sumar. „Hann sagði mér síðan bara að njóta tímabilsins. sama hvernig gengi skyldi ég njóta þess að spila körfubolta. Ég mætti ekki láta neinn skemma fyrir mér. Bara njóta.“ Það er nákvæmlega það sem Kobe Bean Bryant ætlar að reyna að gera næstu mánuði. svo lengi sem heilsan leyfir. Verðlaun NbA-meistAri 5 (2000, 2001, 2002, 2009, 2010) ÓlympíuGull 2 (2008, 2012) bestur í NbA 1 (2008) bestur í úrslitAeiNvíGi NbA 2 (2009, 2010) í stjörNuliði NbA 17 (1998, 2000-2015) bestur í stjörNuleikNum 4 (2002, 2007, 2009, 2011) í úrvAlsliði NbA 11 (2002-2004, 2006-2013) í b-liði deildAriNNAr 2 (2000, 2001) í vArNArliði NbA 9 (2000, 2003-2004, 2006-2011) stiGAhæstur í NbA 2 (2006-2007) troðslumeistAri NbA 1 (1997) stiGAhæsti leik- mAður í söGu lAkers með 32.683 stig eða 25,3 stig að meðaltali í leik. Coca-Cola bikar karla, 16-liða úrslit Stjarnan - Akureyri 26-23 Markahæstir: Guðmundur Sigurður Guð- mundsson 6 (14), Eyþór Magnússon 5 (8) – Kristján Orri Jóhannsson 9/4 (12/4), Bergvin Þór Gíslason 6 (8). 1. deildarlið stjörnunnar sló olísdeildarlið akureyrar úr leik í mýrinni í gær. garðbæingar náðu mest sex marka forystu í upphafi síðari hálfleiks og leiddu til loka. Grótta - FH 28-23 grótta hafði betur í framlengdum leik en staðan að loknum venju- legum leiktíma var 19-19. Afturelding - Víkingur 22-20 Markahæstir: Árni Bragi Eyjólfsson 6, Jó- hann Jóhannsson 4 - Jóhann Reynir Gunn- laugsson 5, Ægir Hrafn Jónsson 4. Nýjast emil fæR nýJan ÞJÁlfaRa Hellas Verona rak í gær þjálfarann andrea mandorlini en liðið er enn án sigurs eftir fyrstu fjórtán leiki sína í ítölsku úrvalsdeildinni þetta tímabilið. lands- liðsmaðurinn emil Hallfreðs- son er á mála hjá Hellas Verona en liðið tapaði um helgina fyrir nýliðum frosinone, 3-2. Það var þriðja tap Hellas Verona í röð og er liðið með einungis sex stig og er í neðsta sæti deildar- innar, átta stigum frá öruggu sæti. mandorlini hafði verið hjá Hellas Verona í fimm ár og kom liðinu upp í úrvalsdeildina úr C-deildinni á sínum tíma. 26 millJaRðaR til UmBoðs- manna félög í ensku úrvalsdeildinni greiddu umboðsmönnum knatt- spyrnumanna samtals 26 milljarða króna á undanförnu ári. Það félag sem greiddi mest var liverpool sem lét út tæpa þrjá milljarða. skammt á eftir voru manchester United, manchester City, Chelsea og arsenal en þau lið voru í nokkrum sérflokki. Um þrettán prósenta aukningu er að ræða á milli ára. 1 . d e s e m b e r 2 0 1 5 Þ r i ð j u d A G u r20 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð sport 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -7 6 5 8 1 7 4 9 -7 5 1 C 1 7 4 9 -7 3 E 0 1 7 4 9 -7 2 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.