Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 46

Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 46
TónlisT sinfóníuhljómsveit Íslands HHHHH Höfundar: Debussy, Ligeti, Mahler og Daníel Bjarnason Einsöngvari: Ólafur Kjartan Sigurðar- son Stjórnandi Daníel Bjarnason Eldborg í Hörpu Fimmtudaginn 26. nóvember Allskyns ógeð kom upp í huga mér á Sinfóníutónleikum á fimmtudags- kvöldið. Það var ekkert skrýtið því á dagskránni var meðal annars Lontano eftir ungverska tónskáldið György Ligeti. Þetta er sveimkennd tónlist sem er full af myrkum hljómum og annarlegum tónahendingum. Stanley Kubrik var svo hrifinn af verkinu að hann notaði það til að magna upp hryllinginn í The Shining. Það var morðóður Jack Torrance sem maður sá fyrir sér á Sinfóníutónleikunum. Daníel Bjarnason stjórnaði hljóm- sveitinni og honum tókst að gæða músíkina rétta andrúmsloftinu. Hún var fínlega mótuð með dökkri undiröldu. Heildarsvipurinn sterkur, óhugnaðurinn allsráðandi. Annað drungalegt verk var flutt á tónleikunum, Kindertotenlieder (ljóð um dauða barna) eftir Gustav Mahler. Það er í fimm köflum. Text- inn er fenginn úr jafnmörgum ljóðum eftir Fried rich Rückert. Hann orti þau, ásamt mörgum fleirum, eftir dauða tveggja barna sinna. Sú sérkenni- lega staða kom upp að tilkynnt var á undan flutningnum að einsöngv- arinn, Ólafur Kjartan Sigurðarson, væri veikur en ætlaði samt að syngja. Miðað við aðstæður var söngurinn furðu góður í fyrstu. En svo syrti í álinn og undir það síðasta var röddin svo gott sem horfin. Kannski hefði verið betra að sleppa flutningnum bara alveg. Hitt á efnisskránni var fínt. Tvær tónsmíðar eftir Debussy, Síðdegi skógarpúkans og Hafið voru prýði- lega fluttar. Síðdegið var frábærlega útfært. Tréblásararnir voru með sitt á hreinu og strengirnir voru þykkir og munúðarfullir. Hafið var sömuleiðis myndrænt. Smæstu blæbrigði voru nostursamlega ofin. Túlkunin stór- brotin, litrík og draumkennd, einmitt eins og hún átti að vera. Aðalmálið var hins vegar nýtt verk, Collider, eftir stjórnandann sjálfan, Daníel Bjarnason. Þetta var hugleiðing um tilraunirnar sem framkvæmdar eru í hinum risavaxna öreindahraðli í Sviss, The Large Hadron Collider á ensku. Í upphafi einkenndist tónlistin af leik bassa- hljóðfæra sem skópu tilfinningu fyrir kosmískri stærð. Síðan fór hraðinn að aukast. Kvikar tónahendingar flugu um, rétt eins og róteindirnar sem sendar eru um hraðalinn, en þar er þeim skotið hverri á aðra. Í tónlistinni heyrði maður þessa árekstra, hrika- legar slagverksbarsmíðar. Þær urðu ennþá áhrifameiri fyrir þær sakir að stígandin í tónsmíðinni var þaul- hugsuð. Hljómsveitarröddunin var fjölbreytt og glæsileg. Þær mynduðu dramatískar andstæður sem sífellt jókst ásmegin. Fyrir bragðið varð barsmíðakenndur hápunkturinn svo ægilegur og flottur að það var alveg einstakt. Jónas Sen niðursTaða: Debussy og Ligeti komu vel út, og nýtt verk eftir Daníel Bjarnason var stórfenglegt. Hrikalegar barsmíðar á Sinfóníutónleikum „Nýtt verk eftir Daníel Bjarnason var stórfenglegt,“ segir í dómnum. FréttaBlaðið/ErNir Bækur koparborgin HHHHH Höfundur: Ragnhildur Hólmgeirs- dóttir Útgefandi: Björt útgáfa – Bókabeitan Kápuhönnun: Vilhjálmur Warén Prentun: Prentmiðlun ehf./Pólland Ragnhildur Hólmgeirsdóttir sendi nýlega frá sér sína fyrstu bók og hún er ekki af verri endanum. Kopar- borgin segir frá hinum tólf ára Pietro sem misst hefur fjölskyldu sína í óhuggulegri plágu sem geisað hefur á svæðinu. Hann leitar skjóls í Víxl- arahúsinu, en þar búa aðeins börn. Þegar þau ná sextán ára aldri er þeim svo gert að yfirgefa húsið. Það er erfitt að rekja söguþráðinn í stuttu máli, hann er margþættur og byggir á for- sögu sem þó kemur aldrei beinlínis fram nema í pörtum. Lesandinn fær að draga línur milli punktanna og búa til heildarmyndina. Höfundur fleygir lesandanum strax inn í söguna, á fyrstu blaðsíðunni, án nokkurra forsendna til að skilja eitt eða neitt – hún leggur traust sitt á les- andann og það eykur bæði á lestrar- ánægjuna og spennuna. Atburðarásin er nefnilega mjög spennandi. Þótt höfundurinn sé íslenskur er sögusviðið langt frá því að líkjast íslenskum veruleika. Við lesturinn minnir umhverfið helst á Ítalíu úr sögubókunum. Það er þó þannig bæði með umhverfið og forsöguna að lesandinn fær upplýsingarnar smátt og smátt sem bindur hann fastari böndum við söguþráðinn og -sviðið. Margt er í bókinni myrkt og óhuggulegt, það er eitthvað við ægi- völd barnanna sem vekur óhug en á sama tíma stendur þeim gríðarleg ógn af óþekktum öflum í borgríkinu. Í seinni hluta bókarinnar fléttast galdrar og bölvanir inn í söguna. Lýsingar eru magnaðar, það er augljóst að höfundur lifði sig algjör- lega inn í sögusviðið og sá það vel fyrir sér. Henni tekst einnig að draga það svo vel upp fyrir lesandanum að hann kemst ekki hjá því að sogast inn í senurnar. Hugsanlega er ein- hverju oflýst, til dæmis eru viðbrögð og atferli persónanna túlkuð og lagt mat á hversu einlægar eða flóttalegar þær eru hverju sinni. Því verður þó ekki neitað að það er afar vel gert, svo lesandanum líður ekki eins og verið sé að taka fram í fyrir honum heldur frekar treystir hann höfundinum enn frekar og leyfir henni að leiða sig áfram um þessa ókunnu veröld. Bókin er gefin út sem ungmenna- bók en hentar alveg eins ævin- týraþyrstum foreldrum, öfum og ömmum. Halla Þórlaug Óskarsdóttir niðursTaða: Spennandi og frumleg bók þar sem höfundur leiðir lesand- ann áfram um ókunna og afar óhuggu- lega veröld, þar sem börn og fullorðnir eru ólíkar fylkingar, sem stendur ógn af göldrum, bölvunum og óraplágum.  Bölvun borgríkisins – og börnin Blásarakvintett reykjavíkur í Fríkirkjunni. FréttaBlaðið/Valli Kvöldlokkur eða blás-a ra s e r e n ö ð u r e r u hljómfögur klassísk tónlist sem á vel við á aðventunni þegar við sækjumst eftir fegurð og friðsæld meðan á jólaundirbúningnum stendur,“ segir Einar Jóhannesson klarinettuleikari. Hann er einn þeirra sem skipa Blásarakvintett Reykjavíkur sem heldur tónleikana Kvöldlokkur í Fríkirkjunni í kvöld klukkan 20, ásamt félögum. „Að þessu sinni er komið að djásni allra blásaraserenaða – þeirri stóru fyrir 13 blásara og kontrabassa eftir meistara Mozart,“ segir Einar. „Þessi serenaða er oft kölluð Gran Part- itam og þó hún sé hrein skemmti- tónlist þá setur Mozart sig þarna í sérstakar stellingar og leggur meira í verkið en búast hefði mátt við. Árangurinn er klukkustundar- langur sæluhrollur!“ Einar bætir þeim fróðleik við að tónar úr seren- öðunni komi mikið við sögu í kvik- myndinni Amadeus sem margir muna eftir. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Miðaverð er 2.000 krónur og 1.000 krónur fyrir eldri borgara og nem- endur. gun@frettabladid.is Mozart setti sig í stellingar  Blásarakvintett Reykjavíkur  efnir til árvissra tónleika sinna í Fríkirkjunni í kvöld undir heitinu Kvöldlokkur á jólaföstu. Höfundakvöld í Norræna húsinu 1. desember kl. 19:30 Veitingastaðurinn Aalto bistro selur veitingar fyrir viðburðinn og í hléi. 1. mars Åsne Seierstad (NO) 5. apríl Susanna Alakoski (SE) 3. maí tilkynnt síðar Höfundakvöld Norræna hússins 2016 12. janúar Kristina Sandberg (SE) 2. febrúar Gaute Heivoll (NO) Norsk-samíska leikskáldið og rithöfundurinn Rawdna Carita Eira kemur fram á höfundakvöldi í Norræna húsinu 1. desember kl. 19:30. Hún mun spjalla um verk sín við Jórunni Sigurðardóttur dagskrárgerðarkonu. Vísna söng­ konan Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir flytur gestum ljúfa tóna. Samtalið fer fram á skandinavísku. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Sturlugata 5, 101 Reykjavík Tel: 5517030, www.nordichouse.is 4.990,- Verð kr. 7.290,- Verð kr. 7.990,- Verð kr. AT 1683300AT 1634100AT 1641900 Mikið úrval af snjóskóflum Síðumúla 11 - Sími 568-6899 - Opið virka daga: 8 til 18; Laugardaga 10 til 14 - www.vfs.is 2.490,- Verð kr. PR 12342 1 . d e s e m B e r 2 0 1 5 Þ r i ð J u d a G u r26 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð menning 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -8 5 2 8 1 7 4 9 -8 3 E C 1 7 4 9 -8 2 B 0 1 7 4 9 -8 1 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.