Fréttablaðið - 01.12.2015, Page 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Bakþankar
Erlu Bjargar
Gunnarsdóttur
KYNNINGARBÆKLINGUR
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU
Í DAG
365.is Sími 1817
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Eftir umræðuna um mikilvægi þess að
fá já í kynlífi hef ég hugsað mikið til
unglinganna okkar og klámvæðingar-
innar sem tröllríður hinum sítengdu
snjallsímum. Ég áttaði mig á því að
þetta er hin stóra áskorun foreldra.
Þegar ég var unglingur var alltaf
verið að tala um unglingadrykkju. Mið-
bæjarhangs, slagsmál og áfengisdauði
í kuldanum voru unglingavandamál.
Foreldrar fengu senda bæklinga, fóru
á foreldrarölt og höfðu samráð um
strangan útivistartíma. Sumir voru allt-
af á vaktinni og þefuðu sífellt af börn-
unum. Einhverjir fóru þá leið að leið-
beina í stað þess að banna. Keyptu bjór
svo unglingurinn drykki ekki landa –
og yrði blindur. Flestir foreldrar voru
með einhverja stefnu. Kerfi eða taktík.
Það var umræða og meðvitund.
Samkvæmt rannsóknum er ung-
lingadrykkja á undanhaldi og nú
horfast foreldrar í augu við hið hyl-
djúpa internet í stað Gold Coast og
landa. En að berjast við klám á netinu
er eins og að berjast við kokteilbar-
þjón sem gefur smakk á skólalóðinni.
Hvað gerir maður? Skilvirkt eftirlit er
valkostur fyrir þá sem ætla að hætta í
vinnunni og horfa yfir öxl unglingsins
allar stundir. Netsíur og stillingar duga
skammt. Þeir sem eru æðislega líbó
gætu beint unglingnum í mýkra efni
í stað þess að banna. Horft með og
útskýrt. Hér skapast þó hætta á að ung-
lingurinn verði fyrir ævilöngum skaða.
Það sem mér finnst mikilvægast er
að foreldrar taki afstöðu. Setji mörk og
fræði. Klám er bannað börnum, alveg
eins og áfengi. Og það má banna það.
Og það má tala umbúðalaust um mun-
inn á kynlífi og klámi – þau lifa það af.
Það er ekki þar með sagt að unglingar
hætti að horfa á klám. En við sendum
að minnsta kosti skýr skilaboð.
Ég hef heyrt því fleygt fram að
drengirnir fimm sem ákærðir voru
fyrir hópnauðgun hefðu átt að vera
dæmdir til samskipta. Að mínu mati
þarf líka að dæma foreldra til uppeldis.
Að ala upp
klámkynslóð
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
4
9
-5
8
B
8
1
7
4
9
-5
7
7
C
1
7
4
9
-5
6
4
0
1
7
4
9
-5
5
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K