Fréttablaðið - 24.11.2015, Page 4
Ný uppskera beint frá Spáni
EKKERT
BRUÐL!
259
kr. kg Appelsínur
Beint frá Spáni
náttúra Ómetanleg listaverk, skjöl,
fornmunir og annar safnkostur
er geymdur á því svæði í miðborg
Reykjavíkur þar sem hættast er við
skemmdum við stórt sjávarflóð.
Þar á meðal eru 3.000 listaverk í
geymslum Listasafns Reykjavíkur
í Hafnarhúsinu og fornmunir sem
eru hluti af Landnámssýningunni
871±2 í Aðalstræti.
Þetta kemur fram í skýrslu um
flóðavarnir fyrir Kvosina sem verk-
fræðistofan Efla vann fyrir Reykja-
víkurborg, Viðlagatryggingar
Íslands og ýmis fyrirtæki sem hags-
muna eiga að gæta í Reykjavík.
Þekkt er að í Kvosinni í Reykjavík
og á svæðinu sunnan Tjarnarinnar
er sérstaklega hætt við flóðum vegna
landfræðilegra aðstæðna. Á þessu
svæði eru margar mikilvægar bygg-
ingar, svo sem Alþingishúsið, Ráð-
húsið, Stjórnarráðið, Seðlabankinn
og Norræna húsið. Skemmdir á inn-
viðum, aðallega rafkerfum, og vatns-
skemmdir á þeim 140 byggingum
og innanstokksmunum þeirra sem
flóðið gæti náð til yrðu tilfinnan-
legar – 300 til þúsund milljónir. Hins
vegar er verðmæti sem ekki verða
endurheimt víða að finna; listaverk,
antíkmuni, fornmuni og skjalasöfn
sem ekki eru til afrit af.
Lausleg athugun skýrsluhöf-
unda leiddi til dæmis í ljós að í
kjallara Héraðsdóms Reykjavíkur
er geymdur langstærsti hluti 30 ára
réttarsögu dómstólsins, og ekki er
til afrit af megninu af skjalasafninu.
Í kjallara Seðlabankans eru geymd-
ar höggmyndir og í húsi Tollstjóra
við Tryggvagötu ýmis skjöl, en verð-
mæti þeirra hefur ekki verið metið.
Um 3.000 listaverk eru í geymsl-
um Listasafns Reykjavíkur í Hafnar-
húsinu, einnig við Tryggvagötu.
Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri
Listasafns Reykjavíkur, segir að þau
listaverk sem geymd eru á jarðhæð
Hafnarhússins séu verk eftir Erró, og
samtímaverk. Þar eru ekki geymd
Listaverk og fornmunir í hættu
Innan þess svæðis þar sem hættast er við sjávarflóðum í miðborg Reykjavíkur er að finna ómetanleg lista-
verk, fornmuni, skjöl og annan safnkost. Úr Hafnarhúsinu þyrfti að flytja þúsundir verðmætra listaverka.
Mörg þeirra verka sem eru í geymslum Hafnarhússins eru eftir Erró auk samtímaverka. fréttablaðið/anton
Hægt að spá flóðum
langt fram í tímann
l Veðurfræðilegir atburðir hafa
ákveðinn aðdraganda og bæði
þarf að vera stórstraumsflóð og
djúp lægð að ganga yfir landið.
l Sjávarföll er hægt að spá fyrir um
langt fram í tímann og einnig er
vel fylgst með veðri við Ísland,
svo viðunandi viðbragðstími
vegna flóða af veðurfræðilegum
uppruna ætti ekki að vera vand-
kvæðum háður.
l Þegar spáð er fyrir um djúpa lægð
og stórstreymi sér Veðurstofa
Íslands um að gefa út sjávarflóða-
viðvörun samhliða almennri
veðurspá. Almannavarnir vinna
úr þessum upplýsingum frá
Veðurstofunni og gera viðeigandi
ráðstafanir.
verk gömlu meistaranna eins og
Jóhannesar Kjarval, Ásmundar
Sveinssonar og fleiri. Verk þeirra
eru öll annars staðar í geymslum
Listasafnsins.
„Það hafa verið gerðar ráðstafanir
til að gera geymslur í Hafnarhúsinu
vatnsþéttar en fari miðborgin undir
vatn þá munu þær ekki halda frekar
en aðrar á þessu svæði,“ segir Ólöf
og bætir við að alltaf sé tækifæri til
að flytja safnkostinn á öruggan stað.
Niðurstöður skýrslunnar séu hins
vegar umhugsunarefni þó að við-
bragðsáætlanir séu til í safninu fyrir
margs konar aðstæður sem komið
geta upp. Skýrslan er nú til skoðunar
hjá yfirvöldum í Reykjavík og Ólöf
býst fastlega við að borgaryfirvöld
bregðist við og það nái til listasafns-
ins sem annarra stofnana á vegum
borgarinnar.
Landnámssýningin í Aðalstræti er
sérstaklega veik fyrir, er að skilja af
skýrslunni. „Öll sýningin er neðan-
jarðar og ljóst að þó svo lítið flóð
kæmi væri Landnámssýningin með
fyrstu stöðum að fara undir vatn.
[...] Ef grunnvatn hækkar mikið
getur flætt inn í húsnæðið innan
frá. Á sýningunni er að finna mikið
af ómetanlegum fornmunum, en
flestum væri þó hægt að bjarga
með auðveldum hætti ef það færi
að flæða. Engin viðbragðsáætlun er
til við flóði. Óvíst er hver áhrif flóðs
myndu vera fyrir sjálfa rústina,“
segir í skýrslunni.
svavar@frettabladid.is
Ólöf K.
Sigurðardóttir
safnstjóri Lista-
safns Reykjavíkur
nOrEGUr Skógarbotninn í Holmen-
kollen og Voksenåsen í Noregi, þar
sem heimsmeistaramótið í skíða-
göngu fór fram 2011, er fullur af
flúorefnum úr skíðaáburði, að því er
norska umhverfisstofnunin greindi
frá á föstudaginn.
Norsk yfirvöld hafa lagt fram til-
lögu um að flúorefnið PFOA verði
bannað innan Evrópusambandsins.
Efnið er meðal annars notað til að
vatnsverja fatnað. Það er í froðu í
slökkviefni og í vissum tegundum
af skíðaáburði.
Í frétt norska ríkisútvarpsins er
haft eftir vísindamanninum Dorte
Herzke að um sé að ræða eitur sem
brotni ekki niður. Afleiðingarnar
geti meðal annars orðið DNA-
breytingar sem geti haft í för með
sér krabbamein. – ibs
Eiturefni í
skíðasporum
Eiturefni í skíðaáburði brotnar ekki
niður. norDiCPHotoS/GEttY
félaGsmál „Ég var orðinn það langt
niðri að ég ætlaði að fara að drepa
mig,“ segir Guðmundur Pálmason
á Dalvík sem gengst fyrir stofnun
samtaka fyrir þá sem eru með Wil-
son-sjúkdóminn.
Guðmundur segir aðeins átta
manns á Íslandi með Wilson-sjúk-
dóminn en hann veldur því að
kopar safnast upp í heila og lifur
sjúklinganna. Einkennin séu afar
mismunandi eftir einstaklingum.
Til dæmis hafi ein konan sem þjáist
af sjúkdómnum hérlendis þurft að
fara í lifrarskipti.
Sjálfur kveðst Guðmundur, sem
er 32 ára, hafa veikst fyrir um þrem-
ur árum. Sjúkdómurinn hafi þó ekki
verið greindur fyrr en í byrjun þessa
árs eftir mikla þrautagöngu sem ein-
kennst hafi af skelfilegu þunglyndi.
„Læknirinn dældi bara í mig þung-
lyndislyfjum og þau virkuðu ekki
neitt,“ segir hann.
Guðmundur segir það hafa verið
yndislegt að fá loks skorið úr um
hvað gengi að honum. Þá hafi hann
komist í viðeigandi meðferð og
þunglyndið sé algerlega á bak og
burt. Hann glími þó enn við mikið
máttleysi í fótum og sé ekki enn
kominn til baka til vinnu.
„En ég fer vonandi að vinna í
Húsasmiðjunni eftir áramót,“ segir
Guðmundur vongóður. „Ég þarf að
vera á lyfjum alla ævi. Það er ekki
hægt að losna við sjúkdóminn en
það er hægt að halda honum niðri.
Ég mun ná fyrri styrk; ég veit bara
ekki hvort það tekur tuttugu daga
eða tuttugu ár.“
Stofnfundurinn verður á föstudag
klukkan fjögur á Center Hotel Plaza
í Reykjavík sem Guðmundur segir
veita nýja félaginu endurgjaldslaus
afnot af sal í hótelinu. „Markmiðið
hjá mér er að ná í sérfræðiþekkingu
að utan; að fá fyrirlesara og lækna
til landsins,“ segir Guðmundur sem
kveður ekki mjög mikla þekkingu
til hérlendis um þennan sjaldgæfa
sjúkdóm. – gar
Hugðist drepa sig en stofnar nú félag fólks með Wilson-sjúkdóminn
Guðmundur var langt leiddur af þung-
lyndi en komst á bataveg þegar hann
fékk loks rétta sjúkdómsgreiningu.
Viðskipti Kröfuhafar LBI (gamla
Landsbankans) samþykktu frum-
varp að nauðasamningi með um
það bil 99,7 prósentum atkvæða
á kröfuhafafundi á Hótel Hilton
Nord ica í gær.
Í tilkynningu á vef LBI segir að
í samræmi við þessa niðurstöðu
muni slitastjórn leggja fram kröfu til
Héraðsdóms Reykjavíkur um stað-
festingu nauðasamningsins.
Kröfuhafar Glitnis samþykktu
nauðasamning síðastliðinn föstu-
dag og kröfuhafar Kaupþings taka
afstöðu til nauðasamnings síðar í
mánuðinum. – jhh
Kröfuhafar LBI
samþykkja
2 4 . n ó V E m b E r 2 0 1 5 Þ r i ð J U D a G U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
B
-9
8
A
0
1
7
2
B
-9
7
6
4
1
7
2
B
-9
6
2
8
1
7
2
B
-9
4
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
3
2
s
_
2
3
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K