Fréttablaðið - 24.11.2015, Qupperneq 6
– N Ú Á T I L B O Ð I –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR
Útför Helmuts Schmidt, fyrrverandi kanslara Þýskalands, var gerð frá Kirkju heilags Michaelis í Hamborg í gær. Helmut Schmidt lést í Hamborg
þann 10. nóvember síðastliðinn, 96 ára að aldri. Fréttablaðið/EPa
Helmut Schmidt kvaddur hinstu kveðju
ArgentínA Hægrimaðurinn Maur
icio Macri segir að tímamót verði í
Argentínu með sigri sínum í forseta
kosningum á sunnudaginn.
Hann ætli sér að styrkja efnahag
landsins og fara allt aðra leið en forver
ar hans tveir, þau Christina Fernandez
og Nestor Kirchner.
Fernandez hefur verið forseti lands
ins frá árinu 2007, en Kirchner, sem
var eiginmaður hennar en nú er látinn,
var forseti á undan henni, eða frá árinu
2003 til 2007.
Bæði voru þau vinstrisinnuð, stóðu
í langvinnum átökum við erlenda
lánardrottna og áttu í erfiðum sam
skiptum við Bandaríkin.
Macri kemur úr viðskiptaheiminum
og hyggst bæta samskiptin, bæði við
erlenda lánardrottna og Bandaríkin.
Hann hefur meðal annars heitið því að
fella niður tolla og gjöld af ýmsu tagi
til að auðvelda erlendum fjárfestum
að koma til landsins og koma þannig
efnahagslífinu í gang.
Hann hefur heitið því að létta höft
um af gjaldeyriskaupum, sem talið
er að muni hafa í för með sér djúpa
gengisdýfu argentínska pesóans, með
tilheyrandi kaupmáttarskerðingu
almennings. – gb
Macri boðar kúvendingu
í stjórnmálum Argentínu
grÆnLAnD Hlýnandi loftslag getur
fært Grænlandi sjálfstæði. Þetta
hefur Sænska dagblaðið eftir banda
ríska blaðamanninum McKenzie
Funk sem skrifaði bókina Windfall
– the booming business of global
warming.
Hann segir breytingarnar, sem
bætt geta efnahag Grænlendinga,
þegar hafnar. Dæmi um slíkt sé
sinknáman Svarti engillinn sem
aðeins er hægt að komast að frá
hafi. Ísinn í firðinum sem náman er
við hefur minnkað og þar með hefur
námuvinnslan lengst um sex vikur.
Jökullinn við námuna hefur jafn
framt hopað og við það hefur meiri
málmur fundist.
Funk segir svipað eiga sér stað á
fleiri stöðum á Grænlandi og nefnir
í því sambandi gullnámur. – ibs
Sjálfstæði í
hlýrra loftslagi
hAmfArir Viðlagatryggingasjóður
ríkisins hefur lokið 69 af þeim 72
málum sem komu upp eftir aur
flóðin á Siglufirði í lok ágústmán
aðar. Ný vinnubrögð eru að mati
forstjóra lykillinn að því að svo vel
hafi gengið að ljúka málum. Heild
artjón sem Viðlagatryggingasjóður
bætir eru 64 milljónir að meðtöldu
tjóni á fráveitukerfi bæjarins.
„Hér er um að ræða bæði tjón
á innbúi og fasteignum. Í okkar
bókum telst þetta sitt tjónið hvort.
Þau þrjú mál sem enn er ólokið
eru á þá leið að ein matsgerð er
í vinnslu, önnur í kynningu hjá
tjónþola og í einu tilviki er verið
að skoða athugasemdir tjónþola,“
segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Viðlagatrygg
ingasjóðs. – sa
Klára mál á
Siglufirði
Maricio Macri ætlar að
fara allt aðra leið en forverar
hans í embætti.
ALþingi Veita á 370 milljónir króna á
fjáraukalögum þessa árs til þjóðkirkj
unnar samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins. Eru þessir fjármunir veittir
kirkjunni til að virða samning kirkju
og ríkis frá því á tíunda áratug síðustu
aldar. Sömu heimildir herma að aukið
fé fari einnig til kirkjunnar á næsta ári.
Breytingatillögur ríkisstjórnar við
fjárlagafrumvarp Bjarna Benedikts
sonar nema samtals 6,7 milljörðum
króna samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins.
Fjárlaganefnd fékk frumvarpið með
breytingatillögum til meðferðar í gær
ásamt fjáraukalagafrumvarpi ríkis
stjórnarinnar. Bjóða á út þrjár nýjar
heilsugæslustöðvar á höfuðborgar
svæðinu á árinu 2016 ef marka má
breytingatillögu velferðarráðuneytis
við fjárlagafrumvarp þess árs sem nú
er í vinnslu fjárlaganefndar. Óskað er
eftir 70 milljónum króna til að borga
húsaleigu vegna þriggja einkarekinna
heilsugæslustöðva.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráð
herra segir ekkert hafa verið ákveðið í
þeim efnum. „Markmiðið er að fjölga
heilsugæslustöðvum á höfuðborgar
svæðinu á næsta ári en engin ákvörðun
hefur verið tekin um hvert rekstrar
formið er. Vinnu við gerð kröfulýsingar
og fjármögnunarlíkans heilsugæslunn
ar er ekki lokið og að því leyti er orðalag
breytingatillögunnar ónákvæmt,“ segir
Kristján Þór.
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár
laganefndar, segir að þó gjöld hækki
þá eigi ríkissjóður vel fyrir þessum
útgjöldum. „Það eru tekjur á móti,
tekjur aukast mikið, en ég tel þessu vel
varið því allar þessar breytingar eru í
þágu grunnþjónustunnar og grunn
stoðirnar þurfa að vera í lagi ef við
eigum að reka hér öflugt samfélag,“
segir Vigdís.
„Það sem okkur þykir miður er að
ekki er í fjáraukalagafrumvarpinu
tekið á kjaramálum eldri borgara og
öryrkja,“ segir Oddný Harðardóttir,
nefndarmaður Samfylkingarinnar
í fjárlaganefnd. „Ég hefði viljað sjá
hækkun á fjáraukalögum frá 1. maí
síðastliðnum og sams konar hækkun
á fjárlögum til að mæta þeirri hækkun
sem aðrir fengu í kjarasamningum
ársins. Aldraðir og öryrkjar eru
sannarlega á lægstu laununum í þessu
þjóðfélagi. Aldraðir og öryrkjar sitja
eftir.“
Fjöldi breytingatillagna er gerður
við það fjárlagafrumvarp sem lagt var
fram í september. Til að mynda hefur
Vigdís Hauksdóttir sagt að 400 millj
óna aukið framlag fari til lögreglunnar
til almennrar löggæslu. Einnig hefur
Fréttablaðið heimildir fyrir því að
165 milljónum króna verði varið til
forsætisráðuneytisins vegna laga um
verndarsvæði í byggð.
sveinn@frettabladid.is
Auka fé til kirkjunnar
um 370 milljónir króna
Breytingatillögur ráðuneytanna við fjárlagafrumvarpið kosta 6,7 milljarða
króna. 370 milljónir fara aukalega til kirkjunnar á þessu ári. Nefndarmaður í
fjárlaganefnd vonsvikinn yfir að greiðslur til aldraðra og öryrkja hækki ekki.
Önnur umræða um fjárlög mun fara fram á næstunni. breytingatillögur ráðuneyt-
anna gera ráð fyrir 6,7 milljarða útgjaldaauka. Fréttablaðið/Ernir
Oddný
Harðardóttir
þingmaður
Samfylkingarinnar
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 þ r i Ð J U D A g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A Ð i Ð
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
B
-7
6
1
0
1
7
2
B
-7
4
D
4
1
7
2
B
-7
3
9
8
1
7
2
B
-7
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
2
3
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K