Fréttablaðið - 24.11.2015, Side 8
TIL SÖLU
Helgi Már Karlsson
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1024 / 897 7086
hmk@jofur.is
Bæjarlind 6 – 201 Kópavogur
Verslunarhúsnæði
Stærð samtals 695,1 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til sölu gott 695,1 fm verslunar- og þjónustuhúsnæði við Bæjarlind 6 í Kópavogi. Mjög góð staðsetning
og mikill sýnileiki m.a. frá Fífuhvammsvegi. Eignin skiptist í fjögur fastanúmer og eru rýmin aðskilin, frá
138 - 257 fm. Leigutekjur á hluta húsnæðisins. Laust við kaupsamning. Til greina kemur að selja hvert
rými fyrir sig.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
GOTT VERSLUNAR-
OG ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI
FRÆÐI OG FJÖLMENNING
Fjölmenning, stjórnmál
og fjölmiðlar
www.hi.is
Þáttur stjórnmála og fjölmiðla í umræðum um fjölmenningarsamfélagið
er fyrsta viðfangsefnið í nýrri fundaröð Háskóla Íslands sem ber
yfirskriftina Fræði og fjölmenning. Fundurinn verður haldinn
miðvikudaginn 25. nóvember nk. kl. 12.00 til 13.15 í Hátíðasal
Aðalbyggingar Háskóla Íslands og er öllum opinn. Fundaröðinni
er ætlað að stuðla að fræðslu, rannsóknum og upplýstri umræðu
um fjölmenningarsamfélagið, málefni innflytjenda, flóttafólks og
hælisleitenda.
Dagskrá
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, setur fundinn.
Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, mun fjalla um
kynþáttahyggju í sögulegu samhengi og tala um Ísland og fordóma í samanburði við
önnur lönd og velta upp þýðingu þessa í samtímanum.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, mun fjalla um
þjóðernissinnaða popúlistaflokka á Norðurlöndum.
Helga Ólafs, aðjúnkt í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands, mun fjalla um framsetningu
frétta og orðræðu um innflytjendur í fjölmiðlum. Þá mun hún varpa ljósi á hlutverk
fjölmiðla við að þróa ríkjandi ímyndir af minnihlutahópum.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Lögreglu- og hermenn fyrir utan aðallestarstöðina í Brussel í gær. FréttaBLaðið/EPa
Belgía Eins konar umsátursástand
hefur ríkt í Brussel þrjá sólarhringa
í röð. Almenningssamgöngur liggja
niðri, skólar eru lokaðir og versl-
unarmiðstöðvar mannlausar.
Í gær voru fimm manns hand-
teknir til viðbótar þeim 16, sem
handteknir voru á sunnudag. Ekk-
ert bólar þó á Salah Abdeslam, 26
ára gömlum Frakka, sem talinn er
hafa tekið þátt í árásunum í París
fyrir rúmri viku.
Abdeslam hefur búið í Brussel eins
og að minnsta kosti þrír aðrir úr hópi
árásarmannanna frá París.
Gerð var húsleit í gær í fimm íbúð-
um í Brussel og nágrenni. Einnig var
leitað á tveimur stöðum í Liège.
Yfirvöld hafa hert öryggisráðstaf-
anir verulega, meðal annars við bygg-
ingar Evrópusambandsins í borginni,
og segja enn verulega hættu á að
alvarleg árás verði gerð í Brussel.
Íbúar borgarinnar eru margir
hverjir óttaslegnir vegna ástandsins,
en borgaryfirvöld leggja þó áherslu á
að fólki sé almennt óhætt að vera á
ferli úti við. Samt eigi fólk að forðast
að gera sér ferð að óþörfu á fjölfarna
staði.
Í Frakklandi hafa öryggisráðstaf-
anir einnig verið hertar víða um
land. Almennir lögreglumenn eru
nú vopnaðir byssum, meira að segja
í frítíma sínum.
François Hollande Frakklands-
forseti boðar hertar árásir á bæki-
stöðvar Daish-samtakanna í Sýr-
landi. Þessi samtök, sem nefna sig
Íslamskt ríki, hafa lýst yfir ábyrgð
sinni á árásunum í París sem kost-
uðu 130 manns lífið.
Hollande átti í gær fund með
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, sem sagðist styðja alger-
lega viðbrögð Hollandes við árás-
unum.
Hollande ætlar svo í dag að
ferðast á fund Baracks Obama
Bandaríkjaforseta. Á morgun tekur
hann á móti Angelu Merkel Þýska-
landskanslara í París og á fimmtu-
dag heldur hann til Moskvu að hitta
Vladimír Pútín Rússlandsforseta.
Pútín var svo sjálfur á ferðinni í
gær og hitti bæði Hassan Rúhani
forseta og æðsta leiðtogann Ali
Khameini, meðal annars til að
ræða við þá um loftárásir Rússa á
uppreisnar- og hryðjuverkamenn
í Sýrlandi.
Í leiðinni tilkynnti hann að
banni Rússa við því að flytja til
Írans tækjabúnað, sem nota má til
auðgunar úrans, yrði aflétt. Á vef
rússneskra stjórnvalda kemur fram
að þessa stefnubreytingu megi rekja
til þess að Rússum verði nú kleift að
flytja auðgað úran inn frá Íran.
gudsteinn@frettabladid.is
Leitin heldur
áfram í Belgíu
Lögreglan í Belgíu hafði í gær ekki haft uppi á Salah
Abdeslam, þrátt fyrir dauðaleit í Brussel sólar-
hringum saman. Frakklandsforseti er á fleygiferð um
heiminn að safna liði gegn Daish-samtökunum.
Viðskipti Í gær tilkynnti bandaríski
lyfjaframleiðandinn Pfizer að samn-
ingar hefðu náðst um yfirtöku fyrir-
tækisins á Allergan. Samningurinn
er metinn á 160 milljarða Banda-
ríkjadala, 21.000 milljarða íslenskra
króna. Því er um að ræða stærsta
lyfjafyrirtækjasamruna sögunnar.
Um er að ræða sameiningu Pfizer
og frumlyfjahluta Allergan og hefur
samkomulag þetta ekki áhrif á fyrir-
huguð kaup Teva á samheitalyfja-
hluta fyrirtækisins sem tilkynnt var
um í júlí á þessu ári. Samheitalyfja-
hluti fyrirtækisins starfar að mestu
undir nafni Actavis víða um heim,
þar á meðal á Íslandi, en hér á landi
er fyrst og fremst starfsemi á sviði
samheitalyfja.
Sérfræðingar telja að eftir samn-
inginn muni Pfizer flytja höfuð-
stöðvar sínar til Dublin á Írlandi og
þannig forðast háa fyrirtækjaskatta
Bandaríkjanna.
Ian Read, forstjóri Pfizer, mun
verða forstjóri og stjórnarformaður
nýju samstæðunnar, að því er segir
í frétt BBC um málið. Brent Saund-
ers, forstjóri Allergan, mun verða
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
samstæðunnar.
Yfirtakan er ein af fjölmörgum
þar sem bandarísk fyrirtæki kaupa
evrópsk fyrirtæki og flytja höfuð-
stöðvar sínar til að forðast háa fyrir-
tækjaskatta. – sg
Stærsti samruni
lyfjafyrirtækja í sögunni
Pfizer hefur keypt allergan fyrir 21
þúsund milljarða króna.
FréttaBLaðið/GEtty
2 4 . n ó V e m B e r 2 0 1 5 Þ r i ð J U D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
A
-F
A
A
0
1
7
2
A
-F
9
6
4
1
7
2
A
-F
8
2
8
1
7
2
A
-F
6
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
3
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K