Fréttablaðið - 24.11.2015, Blaðsíða 14
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Kristín Steingrímsdóttir
(Kibba)
lést að morgni föstudagsins
20. nóvember sl. á Fossheimum,
Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Úlfar Sveinbjörnsson
Sveinbjörn Úlfarsson Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir
Agla Ragna Úlfarsdóttir Brynjar Skjöldur Harðarson
Gunnar Steinn Úlfarsson
Róbert Máni, Kristín María, Iða Ósk, Aron Egill og
Soffía Krista Sól
Elskulegur eiginmaður minn,
Leifur Erling N. Karlsson
Álfkonuhvarfi 65,
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 3. nóvember
á Landspítalanum.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Ingibjörg Þ. Hafberg
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og
auðsýnda samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Guðrúnar Júlíusdóttur
áður til heimilis að Kirkjulundi 6,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirar hjúkrunarheimilis fyrir
alúð og umhyggju.
Júlíus Jónsson Björk Garðarsdóttir
Jón Gunnar Jónsson Fríða Birna Kristinsdóttir
Erla Jónsdóttir Grétar Helgason
Guðrún Axelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elsa Kristín Jónsdóttir
lést fimmtudaginn 19. nóvember á
hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Lögmannshlíðar fyrir alúð og umhyggju.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
27. nóvember kl. 13.30.
Valtýr Þór Hreiðarsson Katrín Jónsdóttir
Valgerður Petra Hreiðarsdóttir Pétur Böðvarsson
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur bróðir minn og mágur,
Kristján Björn Hinrik
Sumarliðason
sjómaður,
Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu
þann 18. nóvember síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 26. nóvember nk. kl. 13.00.
Rúrik Sumarliðason og Guðlaug Björnsdóttir
Okkar ástkæra,
Soffía Margrét Vídalín
Þorgrímsdóttir
fyrrverandi grunnskólakennari,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þann
11. nóvember. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að hennar eigin ósk.
Bryndís Kristín Þráinsdóttir
Áslaug Vídalín Þráinsdóttir
Þorgrímur Þráinsson
Þorgerður Þráinsdóttir
Hermann Þráinsson
Þráinn Þorvaldsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Alexander Einbjörnsson
til heimilis að Lyngbrekku 8
í Kópavogi,
lést þann 20. nóvember
á Borgarspítalanum.
Þóra B. Alexandersdóttir Ólafur Sturla Hafsteinsson
Ragnheiður K. Alexandersdóttir
Björn E. Alexandersson Ari Halldórsson
Örn Alexandersson Ragnhildur Þórhallsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kær vinur, félagi og frændi,
Guðmundur Kristján
Jónsson
rennismiður,
Sléttuvegi 9, Reykjavík,
lést á heimili sínu 17. nóvember sl. Útför
hans verður gerð frá Seljakirkju
26. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Geðhjálp.
Starfsfólk og íbúar í búsetukjarnanum Sléttuvegi 9
og frændsystkini.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
MEÐ VIRÐINGU
OG KÆRLEIK Í 66 ÁR
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
www.útför.is
„Það er bara stórfínt að eiga afmæli,“
segir Einar Kárason rithöfundur hress.
Hann er sextugur í dag og er búinn að
halda upp á það. „Ég fór með nánustu
fjölskyldu minni út á land um síðustu
helgi, konu, börnum, tengdabörnum og
barnabörnum. Við leigðum okkur stórt og
flott hús og höfðum það skemmtilegt þar.
Svo núna er bara eðlilegur þriðjudagur
hjá mér, fótboltaæfing með strákunum,
eins og ævinlega en ef ég þekki suma vini
og kunningja rétt munu einhverjir reka
inn nefið eða að minnsta kosti hringja.
Ég verð bara heima við í rólegheitum að
sinna mínum daglegu störfum.“
Spurður hvað hann sé að skrifa núna
svarar skáldið: „Það er nú ekkert til að
segja frá, ég hef verið dálítið í því sem
tengist sjónvarps- og kvikmyndaverk-
efnum, einnig skrifa ég opnugrein í dag-
blað í hverri viku, svo eru alltaf einhverjar
bækur í pípunum og þar detta inn kaflar.“
Þetta haust er Einar ekki með neina
nýja bók á markaðinum svo hann kveðst
vera voða afslappaður. „Yfirleitt hefur
afmælisdagurinn minn verið markaður
af upplestrum, viðtölum og spenningi
yfir hvar bókin mín standi á vinsælda-
listanum en núna horfi ég á bókaútgáfuna
úr heimspekilegri fjarlægð og skil ekkert
í æsingnum í fólki. Er bara heima á vappi
með köttunum mínum!“
Einar er alinn upp í Hlíðunum í Reykja-
vík af foreldrum sem báðir eru Vest-
firðingar. „Rætur mínar eru fyrir vestan,
afar, ömmur, frændur og frænkur. Ég
var mikið hjá þeim bæði á Ísafirði og í
Hnífsdal og svo er ég ættaður úr Dýra-
firðinum líka,“ lýsir Einar og kveðst hafa
verið dálítið á sjó þegar hann var yngri.
„Ég var háseti á alls konar döllum,“ rifjar
hann upp.
„Það var svoleiðis þegar ég var í
menntaskóla og háskóla að þá voru
sumarfríin fjórir mánuðir og maður
forframað ist alveg jafn mikið á sumrin og
veturna, sigldi til útlanda og var að vinna
með fullorðnu fólki í Ísbirninum. Við það
efldist maður allur og lærði margt. Nú fer
maður að tala eins og allt hafi verið betra
í gamla daga!“ gun@frettabladid.is
Er bara heima á vappinu
með köttunum mínum
Einar Kárason rithöfundur er sextugur í dag. Hann er þegar búinn að halda upp á þau
tímamót, því er eðlilegur þriðjudagur hjá honum og fótboltaæfing með strákunum.
„En núna horfi ég á bókaútgáfuna úr heimspekilegri fjarlægð og skil ekkert í æsingnum í fólki,“ segir Einar. Fréttablaðið/Ernir
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r14 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
B
-C
0
2
0
1
7
2
B
-B
E
E
4
1
7
2
B
-B
D
A
8
1
7
2
B
-B
C
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
2
3
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K