Fréttablaðið - 17.11.2015, Qupperneq 4
Stjórnmál Viðbrögð við árásum
á borð við þær sem gerðar voru í
París á föstudag mega ekki ala á
ótta í okkar samfélagi. Þetta sagði
Ólöf Nordal innanríkisráðherra í
umræðum um hryðjuverkaógn í
óundirbúnum fyrirspurnartíma á
Alþingi í gær.
Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar, sem hóf
umræðuna, sagði að stíga þyrfti var-
lega til jarðar hvað aukna löggæslu-
þörf varðaði. „Við skulum bregðast
við aukinni löggæsluþörf ef hún er
fyrir hendi en ekki búa hana til á
grundvelli afbakaðra staðreynda,“
sagði hann.
Ólöf sagði að eina leiðin til að
takast á við ógn af þessum toga
væri samstillt átak. „Um leið og við
tölum um það hversu mikilvægt
það er að frelsi okkar sé tryggt þá
þurfa ákveðnir hlutir að vera í lagi
til að svo sé. Það er enginn vafi á því
að löggæsla í hverju landi skiptir
máli,“ sagði hún. „Mjög mikilvægt
er að gera ekki lítið úr störfum lög-
reglu í hverju landi fyrir sig.“
Þá kallaði Birgitta Jónsdóttir,
þingmaður Pírata, eftir skýringu
frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni
forsætisráðherra um yfirlýsingar
hans í útvarpi þar sem hann sagði
að á meðal flóttamanna leyndust
glæpamenn en að stjórnmálamenn
þyrðu vart að ræða það af ótta við
pólitískan rétttrúnað.
Forsætisráðherra sagði margar
öryggisþjónustur í Evrópu hafa
bent á að samtök á borð við ISIS
hafi nýtt sér neyð flóttamanna til
að smygla vígamönnum inn um
landamæri Evrópu. Hluti af lausn
vandans væri að ræða málin út frá
staðreyndum. „Ef við viljum halda
aftur af öfgahreyfingum á Íslandi
og annars staðar er besta leiðin sú
að ræða hlutina eins og þeir raun-
verulega eru, annars erum við
að hætta á að fólk leiti á vit öfga-
hreyfinga,“ sagði hann.
Samkomulag liggur fyrir á milli
þingflokkanna á Alþingi um að
sérstakar umræður fari fram um
hryðjuverkin í París á þingfundi í
dag. – srs
EKKERT
BRUÐL!
498
kr. 5 l
698
kr. pk.
198
kr. stk.
Rúðuvökvi
Frostþol -9°C, 5 lítrar
Mannbroddar
2 stk. í pakka
Rúðuskafa
Búðu þig undir
veturinn
Varar við því að alið verði á ótta í kjölfar hryðjuverkaárása í París
Mjög mikilvægt er
að gera ekki lítið úr
störfum lögreglu í hverju
landi fyrir sig.
Ólöf Nordal
innanríkisráðherra
DómSmál Lárus Welding, fyrrverandi
forstjóri Glitnis, gagnrýndi bæði fjöl-
miðla og embætti sérstaks saksóknara
í ræðu sem hann hélt við upphaf aðal-
meðferðar í STÍM-málinu svokallaða í
Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
„Enginn áhugi hefur verið á okkar
hlið í fjölmiðlum,“ sagði hann og bætti
við að sérstakur saksóknari hefði hins
vegar notið stuðnings fjölmiðla.
Í málinu er Lárus ákærður ásamt
þeim Jóhannesi Baldurssyni, einum
stjórnenda bankans, og Þorvaldi
Lúðvík Sigurjónsyni, fyrrverandi
forstjóra Saga Capital, fyrir lánveit-
ingar Glitnis til hlutabréfakaupa í
Glitni og FL Group. Mennirnir neita
allir sök. – kbg, skh
Gagnrýndi
fjölmiðla
lögreglumál Snorri Magnússon,
formaður Landssambands lögreglu-
manna, segir flugfélag sem hann
ferðaðist með hafa brugðist þegar
hann ferðaðist
innan Schengen
m e ð G l o c k -
s k a m m b y s s u .
Skammbyssan var
með 45 skotum
í þremur full-
hlöðnum magas-
ínum og ferðaðist
Snorri með hana
í handfarangri
sínum.
Snorri segist hafa verið við störf
fyrir Sameinuðu þjóðirnar og verið
í fullum rétti. Hann hafi þannig ekki
brotið vopnalög eða öryggisreglur.
Hann hafi haft öll tilskilin leyfi og
gert hlutaðeigandi grein fyrir því að
hann væri með skammbyssu. Við-
brögð flugfélagsins hafi hins vegar
ekki verið í samræmi við reglur.
„En það sem ég er að benda á með
þessu er þessi staðreynd, að reglu-
verkið er flott og fínt en ef það er
ekki til mannskapur eða fjármunir og
annað til að fylgja því eftir, þá klikka
hlutirnir.“ – kbg
Segir flugfélagið
hafa brugðist
Snorri Magnússon
Björgun Unnið var að því lung-
ann úr gærdeginum að dæla sjó úr
sanddæluskipinu Perlu sem sökk í
Reykjavíkurhöfn í byrjun nóvem-
ber. Verkinu var svo gott sem lokið
á níunda tímanum í gærkvöldi.
„Skipið er í rauninni komið upp
og þeir eru bara að dæla betur
úr því,“ sagði Jón Þorvaldsson,
aðstoðarhafnarstjóri Faxaflóahafna,
í samtali við Fréttablaðið rétt eftir
klukkan átta. „Ég á von á því að
þessu ljúki bara á næsta klukku-
tíma eða svo. Annars er skipið orðið
nokkuð öruggt.“
Byrjað var að dæla upp úr skipinu
um tvöleytið í gær. Verkefnið gekk
hægt fyrstu tímana. En svo allt í
einu fór stefnið upp og um klukk-
an fimm var stór hluti af skipinu
kominn úr kafi. Tugir manna voru
niðri á höfn rétt fyrir kvöldmat í
gær þegar Fréttablaðið kom þar
við. Auk þeirra sem unnu að því að
dæla úr skipinu var nokkur hópur
fólks sem fylgdist með björgunarað-
gerðum úr fjarlægð. Þá voru þar fjöl-
margir slökkviliðsmenn sem gættu
að mengunarvörnum.
„Við erum með menn í tengslum
við hugsanlega olíuleka. Við erum
með olíugirðingar, flotgirðingar,
til að taka olíu ef það skyldi leka,“
sagði Ólafur Ingi Grettisson, varð-
stjóri hjá slökkviliðinu, í samtali við
Fréttablaðið. „Við höfum lítið sem
ekkert fengið af olíu þarna þannig
að það virðist hafa gengið ágætlega
varðandi þann þáttinn.“
Á áttunda tímanum var dregið
verulega úr eftirliti slökkviliðsins
og stóðu tveir menn vaktina fram
eftir kvöldi. „Það var litið svo á að
mesti áhættuþátturinn gagnvart
okkar verkþætti hefði minnkað,“
sagði Ólafur Ingi.
Perla var að koma úr slipp mánu-
daginn 2. nóvember þegar skyndi-
legur leki kom að skipinu. Skipinu
var komið fyrir fremst við Ægisgarð
þar sem það fylltist af sjó og sökk
á um það bil 30 mínútum. Um 12
þúsund lítrar af olíu voru í skipinu
og 800 lítrar af glussa. Starfsmenn
Björgunar og Köfunarþjónustunn-
ar hófust samdægurs handa við að
loka skipinu. Bæði til að koma í veg
fyrir að olía læki úr skipinu en jafn-
framt til að undirbúa að hægt yrði
að lyfta því.
Undirbúningnum var haldið
áfram daginn eftir og miðvikudaginn
4. nóvember var svo farið að dæla úr
skipinu. Vinnan gekk vel þann dag-
inn þar til rúður brotnuðu í brúnni
og ákveðið var að leyfa skipinu að
sökkva á ný. Áfram var reynt daginn
eftir en þær tilraunir skiluðu heldur
ekki árangri. Með öflugri aðgerðar-
áætlun og útbúnaði gengu áætlanir í
gær eftir. jonhakon@frettabladid.is
Sanddæluskipið Perla reis úr sæ
Byrjað var að dæla sjó úr sanddæluskipinu Perlu í gær. Um fimmleytið var stórhluti skipsins kominn úr kafi.
Verkinu var nánast lokið á níunda tímanum. Skipið var á kafi í höfninni í nákvæmlega hálfan mánuð.
Dæling úr skipinu hófst um tvö leytið í gær og klukkan sex var stærstur hluti skipsins kominn upp. Fréttablaðið/Ernir
12
þúsund lítrar af olíu voru í
sanddæluskipinu Perlu sem
sökk í Reykjavíkurhöfn
2. nóvember síðastliðinn.
1 7 . n ó v e m B e r 2 0 1 5 Þ r I Ð j u D A g u r4 f r é t t I r ∙ f r é t t A B l A Ð I Ð
1
7
-1
1
-2
0
1
5
1
3
:4
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
F
9
-5
3
0
8
1
6
F
9
-5
1
C
C
1
6
F
9
-5
0
9
0
1
6
F
9
-4
F
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
3
2
s
C
M
Y
K