Fréttablaðið - 17.11.2015, Page 8

Fréttablaðið - 17.11.2015, Page 8
Gleraugnaverslunin þín MJÓDDIN Sími 587 2123 FJÖRÐUR Sími 555 4789 SELFOSS Sími 482 3949 Íþróttagleraugu fást hjá okkur. Fáanleg með og án styrkleika. RUDY PROJECT Frakkland François Hollande, for- seti Frakklands, heitir því að leggja í rúst Daesh-samtökin, sem nefna sig Íslamskt ríki. „Við munum nota allan mátt okkar, innan ramma laganna, til þess að sigrast á hryðjuverkamönnum,“ sagði hann í ávarpi sínu á sameinuðu þingi í gær. „Við munum uppræta hryðjuverk þannig að Frakkland geti áfram verið í forystu, vegna þess að franskir ríkis- borgarar vilja geta haldið áfram að lifa lausir við ótta.“ Hann sagði að Frakkar myndu efla til muna hernað sinn gegn  Daesh í Sýrlandi og Írak. Liður í því er meðal annars að senda franska flugmóður- skipið Charles de Gaulle á vettvang, en stefnt er að því að skipið sigli af stað frá Frakklandi á morgun. Franska lögreglan fullyrðir að 27 ára gamall Belgíumaður, Abdelhamid Abaaoud, hafi skipulagt árásirnar á París. Hann ólst upp hverfinu Molen- beek í Brussel, en er nú talinn vera í Sýrlandi. Í sama hverfi í Brussel bjó einnig Salah Abdeslam, einn árásarmann- anna í París og sá eini þeirra sem slapp lifandi svo vitað sé. Lögregla leitar hans ákaft, en hann var stöðvaður stuttlega við landamærin á leið sinni frá París til Belgíu eftir að árásirnar voru gerðar. Hann var þá látinn laus eftir stutta yfirheyrslu. Fyrstu viðbrögð franska hersins við árásunum á föstudagskvöld voru þau að gera loftárásir á borgina Rakka í Sýrlandi, en þar hefur verið höfuðvígi Íslamska ríkisins, Daesh. Þá segist Hollande ætla að hitta á næstu dögum bæði Barack Obama Bandaríkjaforseta og Vladimír Pútín Rússlandsforseta til að ræða frekari aðgerðir gegn Daesh. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir stuðningi við aðgerðir Frakka. Hann segir þó ekki koma til greina að senda bandaríska hermenn til Sýrlands eða Íraks. „Segjum svo að við myndum senda 50 þúsund hermenn til Sýrlands,“ sagði hann á leiðtogafundi 20 stærstu iðnríkja heims í Tyrklandi. „Hvað ger- ist þá ef gerð er hryðjuverkaárás sem á rætur að rekja til Jemens? Sendum við þá hermenn þangað? Eða til Líbíu?“ Í krafti laga um neyðarástand, sem sett voru strax um helgina, hefur franska lögreglan gert húsleit á nærri 170 stöðum víðs vegar um Frakkland. Lögreglan hefur handtekið 23 og 104 að auki eru í stofufangelsi grun- aðir um tengsl við hryðjuverkasam- tök. Þá hefur lögreglan gert upptæka tugi skotvopna í þessum aðgerðum, ásamt tölvubúnaði og farsímum. Hollande Frakklandsforseti hyggst nú fá heimild þingsins til að fram- lengja neyðarástand í landinu um þrjá mánuði. Fingraför eins árásarmannanna sýna að hann hafi komið til Evrópu snemma í síðasta mánuði með flótta- fólki til Grikklands. Staðfesting á þessu fékkst frá grískum yfirvöldum. Alls létust 129 manns í árásunum og hundruð slösuðust. Daesh-sam- tökin hafa lýst yfir ábyrgð á verknað- inum. Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður Stöðvar tvö, er í París. Hann segir að þrátt fyrir árásirnar virðist líf Parísar- búa ganga sinn vanagang. „Allir Parísarbúar sem ég hef hitt og hef rætt við hér í borginni eru staðráðnir í því að láta hryðjuverkin á föstudag ekki hafa áhrif á sitt dag- lega líf,“ segir hann, óttinn fái ekki að taka völdin. Þá skynjar hann að Parísarbúar séu þó enn í sorgarferli og vita ekki hvaða langtímaáhrif árásirnar gætu haft á franskt samfélag. gudsteinn@ fretta bladid.is, stefanrafn@frettabladid.is Heitir því að uppræta Íslamska ríkið Frakkar herða árásir sínar á Daesh-samtökin í Sýrlandi og senda flugmóðurskipið Charles de Gaulle á vettvang. Frakklandsforseti heitir því að uppræta hryðjuverk. Bandaríkjaforseti styður Frakka en segir ekki koma til greina að senda bandaríska hermenn á vettvang. Fólk kom saman í París og víða um heim á hádegi í gær til að minnast með mínútulangri þögn þeirra sem létu lífið í árásunum á föstudagskvöld. NordicPhotos/AFP Skammstafanirnar ISIS, ISIL og IS hafa allar verið notaðar um hreyfingu herskárra íslamista, sem hafa hreiðrað um sig í Sýrlandi, Írak og víðar. Allt eru þetta enskar skammstaf- anir, sem standa fyrir The Islamic State of Iraq and Syria (ISIS), The Islamic State of Iraq and the Levant (ISIL), eða bara The Islamic State (IS). L-ið stendur þarna fyrir Levant, sem er upphaflega franskt orð og stundum var haft um landsvæðið fyrir botni Miðjarðarhafs, einkum Líbanon, Ísrael og Sýrland. S-ið stendur fyrir Sýrland en strangt til tekið er með arabíska orðinu Sham átt við stærra svæði fyrir botni Mið- jarðarhafs. Sömu skammstafanir eru notaðar á þýsku, og standa þá fyrir Islamischer Staat (IS), Islamischer Staat im Irak und Syrien (ISIS) og Islamischer Staat im Irak und in der Levante, en á frönsku er talað um EI (L'Etat islamique) eða EIIL (L'Etat islamique en Irak et au Levant.) Á íslensku væri því eðlilegast að nota skammstafanirnar ÍR (Íslamska ríkið) eða ÍRÍS (Íslamska ríkið í Írak og Sýrlandi). Sjálf notast samtökin nú orðið bara við heitið Íslamskt ríki (ÍR), en sleppa því að kenna sig við Írak eða Sýrland. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur svo kallað þessi samtök „ó-íslamska ó-ríkið”, enda njóta þau engan veginn viðurkenningar sem íslömsk hreyfing í neinum skilningi, hvað þá að eiga minnsta tilkall til þess að kallast ríki. Á arabísku máli nefndu þessi samtök sig lengi vel al-Dawla al- Islamija fil 'Iraq wal-Sham (Íslamska ríkið í Írak og Sýrlandi), en hafa fyrir nokkru stytt það í al-Dawla al-Islam ija (Íslamska ríkið). Arabíska skammstöfunin er Da-ish, eða Daís. Þessi arabíska skammstöfun er víða notuð, en þykir niðrandi vegna þess að hún minnir á arabísk orð sem þýða „stappa“, „kremja“ eða „skrúbba“. Írland Einstaklingum af sama kyni er nú leyfilegt að ganga í hjónaband á Írlandi eftir að löggjöf þess efnis tók gildi í gær. Írar gengu að kjörborðinu í maí síðastliðnum og samþykktu að gera hjónabönd samkynja fólks lögleg. Írland var fyrsta ríkið í heiminum til að samþykkja löggjöf af þeim toga í þjóðaratkvæðagreiðslu. Enn liggur ekki fyrir hvaða par var fyrst til að láta gefa sig saman í krafti nýrrar löggjafar en hún felur það í sér að írsk pör sem létu gefa sig saman utan Írlands fá vígslu sína viður- kennda á Írlandi. Löggjöfin nær þó einungis til borgaralegra vígslna en trúfélögum er ekki skylt að gefa samkynja fólk saman. Til að mynda börðust kaþ- ólska kirkjan og aðrir kristnir söfn- uðir gegn löggjöfinni í kjölfar þjóðar- atkvæðagreiðslunnar í maí. – srs Hjónabönd samkynja fólks orðin lögleg Frá þjóðaratkvæðagreiðslunni í maí. NordicPhotos/AFP Íslamska ríkið og skammstafanirnar 129 létu lífið í hryðjuverkaárás- unum í París í Frakklandi. 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U d a G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a Ð I Ð 1 7 -1 1 -2 0 1 5 1 3 :4 1 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 F 9 -3 A 5 8 1 6 F 9 -3 9 1 C 1 6 F 9 -3 7 E 0 1 6 F 9 -3 6 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.