Fréttablaðið - 17.11.2015, Page 10
Melalind 2
Hóll sími 450-0000 kynnir: Stórglæsileg 104fm 3ja herbergja íbúð
á annarri hæð, auk bílskúrs, í fallegu, snyrtilegu, lágreistu fjölbýli.
Alls 130fm. Vandaðar samstæðar innréttingar, frábært útsýni!
Verð: 36.900.000201 Kópavogur
TIL SÖLU !
Hafið samband til
að bóka skoðun
HEYRÐU Í OKKUR
Ragnar Axelsson hefur í
gegnum tíðina tekið mikinn
fjölda ljósmynda , bæði í
lit og svarthvítu sem hafa
birst í blöðum og tímaritum
um allan heim, þar á meðal
LIFE, TIME og National
Geographic.
RAX púðaver
með 15 mismunandi ljósmyndum
eftir Ragnar Axelsson
3.999kr
Skólamál „Mér finnst þetta algjör-
lega vera barn síns tíma og ég, sem
formaður, vil leggja þetta niður,“
segir Rebekka Karlsdóttir, formaður
Nemendafélags Menntaskólans á
Egilsstöðum. Í dag verður haldið
málþing á vegum nemendafélags-
ins um Pésann, slúðurblað skólans.
Í umfjöllun Fréttablaðsins um
helgina um druslustimplun var
viðtal við Álfheiði Mörtu Kjartans-
dóttur, 22 ára konu sem var tekin
fyrir í Fréttapésa, slúðurriti Mennta-
skólans við Hamrahlíð, og stimpluð
drusla. Sögusagnir fóru af stað og
hún náði ekki að hrista þær af sér
alla framhaldsskólagönguna. Hún
glímir enn við sálrænar afleiðingar
eineltisins, svo sem kvíða og óþarfa
varkárni í samskiptum og hegðun.
Rebekka segir að þótt Pési ME-
inga hafi skánað með árunum sé
enn verið að lista upp hvaða nem-
endur kysstust eða hverjir séu að
slá sér upp. „Mér finnst enginn hafa
rétt til þess að skrásetja þetta. Það
fer mikill tími og vinna í að gefa út
eitthvað svona ómerkilegt sem fer
svo út um allan fjórðunginn.“
Hún segir að eldri nemendur, sem
eitt sinn sáu ekkert athugavert við
Pésann, muni tala á málþinginu því
til stuðnings að Pésinn verði lagður
niður í núverandi mynd. „Með þessu
málþingi viljum við fyrst og fremst
fá að heyra ólíkar skoðanir því ég vil
ekki vera formaðurinn sem er bara
einhver einræðisherra. Svo reikna
ég með því að þetta verði tekið upp
hjá stjórn nemendafélagsins og í
framhaldinu tekin ákvörðun,“ segir
Rebekka.
Helgi Ómar Bragason, skólameist-
ari Menntaskólans á Egilsstöðum,
segir Pésann hafa verið vandræða-
pésa um árabil. Öfugt við ritnefndir
Fréttapésans í MH séu ritnefndir
Pésans oftast skipaðar stúlkum. Þær
séu þó ekkert vægari við kynsystur
sínar en strákarnir.
Lárus H. Bjarnason, rektor MH,
hefur tilfinningu fyrir því að Frétta-
pésinn sé vægari nú en áður. Hann
man vel eftir atvikinu sem lýst er í
helgarumfjöllun Fréttablaðsins.
„Þetta getur gerst vegna þess að það
er auðvitað ritfrelsi í landinu en við
höfum bent nemendum á ábyrgð
þeirra á útgefnu efni.“
Hann segir að nemendurnir sem
hafi skrifað umræddan Fréttapésa
hafi fengið stranga áminningu.
snaeros@frettabladid.is
Ræða druslustimplun
í slúðurblaði skólans
Formaður NFME segir slúðurblað skólans, Pésann, vera barn síns tíma. Nem-
endur í MH hafa fengið áminningar vegna alvarlegra aðdróttana og eineltis í
Fréttapésa skólans. Stúlkur eru ekki síður aðgangsharðar við stúlkur en strákar.
Skólameistari ME og rektor MH segja pésa sem verið hafa til vandræða hafa skánað með árunum. Fréttablaðið/StEFán
Mér finnst enginn hafa rétt
til þess að skrásetja þetta.
Það fer mikill tími og vinna
í að gefa út eitthvað svona
ómerkilegt
sem fer svo
út um allan
fjórðunginn.
Rebekka
Karlsdóttir,
formaður Nemendafélags Mennta-
skólans á Egilsstöðum
VerSlun Söluvelta farsíma jókst um
77,5 prósent í október miðað við
sama mánuð í fyrra, að því er Rann-
sóknarsetur verslunarinnar segir.
Þá hefur salan síðustu tólf mánuðii
verið 30 prósentum meiri en á tólf
mánaða tímabili þar á undan.
Sala húsgagna jókst um meira en
þriðjung í október í samanburði við
október í fyrra. Þar af jókst velta sér-
verslana með rúm um 74 prósent.
Þá varð líka aukning í sölu raftækja.
Almennt eykst sala á sérvöru.
Skýrt dæmi um það er aukning í
sölu raftækja. Í október var meira
en þriðjungsaukning í sölu minni
raftækja á borð við hljómflutnings-
tæki. – kbg
Farsímasala eykst stórum
landinn virðist hafa hug á að endur-
nýja hjá sér snjallsíma fyrir jól.
Fréttablaðið/Ernir
*Gildir fyrir eina áskrift. Viðskiptavinir sem taka þessu tilboði fyrir 31. desember halda þessum kjörum í eitt ár.
Fáðu þér áskrift í
síma 1817 eða á 365.is
FÁÐU STÖÐ 3
Á BETRA VERÐI
Í VETUR
STÖÐ 3
+ENDALAUST TAL
+1 GB Í GSM
1.990 kr.
til 31. desember*
1 7 . n ó V e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J u D a G u r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð
1
7
-1
1
-2
0
1
5
1
3
:4
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
F
9
-4
9
2
8
1
6
F
9
-4
7
E
C
1
6
F
9
-4
6
B
0
1
6
F
9
-4
5
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
3
2
s
C
M
Y
K