Fréttablaðið - 17.11.2015, Side 13
Grein þessari fylgir ljósmynd af fiðlu Björns Ólafssonar en hann var í fyrsta hópnum
sem útskrifaðist frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík, árið 1934. Björn
var afburða listamaður, hans beið
mikill frami erlendis þegar örlögin
gripu í taumana og hann vann allan
sinn starfsaldur á Íslandi.
Fiðlan hans Björns er einn af þeim
merkisgripum sem varðveittir eru
á Tónlistarsafni Íslands í Kópavogi
sem tók til starfa árið 2009, eftir að
samningur hafði verið undirritaður
milli bæjarins og ráðuneytis mennta-
mála. Innan veggja þess hafa Bjarki
Sveinbjörnsson og Jón Hrólfur Sigur-
jónsson unnið einstakt frumkvöðla-
starf á sviði íslenskrar tónlistarsögu
með söfnun heimilda og gripa, mót-
töku gesta og sýningarhaldi; meðal
annars hefur Tónlistarsafnið byggt
upp gagnagrunn um íslenskan tón-
listar- og menningararf, ismus.is, í
samvinnu við Árnastofnun.
En nú kveður skyndilega við nýjan
tón: Kópavogsbær hyggst leggja niður
annað stöðugildi safnsins og húsa-
kosturinn fer sömu leið. Þar með
verður Tónlistarsafn Íslands í raun og
veru lagt niður, með eitt stöðugildi og
enga sýningaraðstöðu eru dagar þess
taldir. Hvað skyldi verða um fiðluna
hans Björns ef þessar undarlegu hug-
myndir verða að veruleika?
Það er brýnt að þessum slysalegu
áformum verði afstýrt og benda má
á að nú fer fram undirskriftasöfnun
gegn þeim á Netinu. Nauðsynlegt er
að ríkisvaldið og Kópavogsbær taki
höndum saman við að leysa málið;
framtíð Tónlistarsafns Íslands er ekki
einkamál ríkis og Kópavogsbæjar,
hún snertir menningararf og sögu
okkar allra.
Fiðlan hans Björns
Bjarki Bjarnason
rithöfundur
Erfðasjúkdómar og erfðavanda-mál eru margvísleg og geta valdið alvarlegum sköpulags-
göllum, efnaskiptatruflunum og
þroskahömlun. Talið er að um 5-8%
allra einstaklinga fái sjaldgæfan
sjúkdóm á ævinni og oftast er sá
sjúkdómur með erfðaorsök. Erfða-
og sameindalæknisfræðideild á
Landspítala (ESD) er með sérhæfðar
rannsóknarstofur og göngudeild
í erfðaráðgjöf til að veita alhliða
erfðaheilbrigðisþjónustu fyrir allt
Ísland.
Ein algengasta ástæða þess að
fólk leitar erfðaráðgjafar er mögu-
legt arfgengt krabbamein. Blái
naglinn vinnur að forvörnum gegn
krabbameini og styður með söfn-
unum rannsóknir, m.a. á blöðru-
háls- og ristilkrabbameini. ESD og
Blái naglinn eru í samstarfi um upp-
byggingu rannsóknaraðstöðu á ESD
til að greina kjarnsýrur, bæði DNA
og RNA, í líkamsvökvum. Markmið
þeirrar samvinnu er að vera í farar-
broddi í þróun þessara mælinga og
innleiðingu þeirra í heilbrigðis-
þjónustu.
Æxlisvísar eru efni sem losna úr
æxlum út í blóð og aðra líkams-
vökva. Mælingar á magni æxlisvísa
er hægt að nota við greiningu og
meðferð á krabbameinum. Æxlis-
vísar, sem nú eru notaðir, eru pró-
tein sem mælast í lágum styrk í lík-
amsvökvum heilbrigðra en hækka í
vissum krabbameinum. Magn þeirra
í blóði er í samhengi við stærð æxlis-
ins. Núverandi æxlisvísar hafa ýmsar
takmarkanir og þeir koma mest að
notum við að meta svörun við með-
ferð sumra krabbameina.
Kjarnsýrurnar DNA og RNA eru
upplýsingasameindir í frumum
líkamans sem stjórna því hvernig
mannslíkaminn er byggður og
hvernig hann starfar. DNA- og RNA-
sameindir losna út í líkamsvökva
frá deyjandi frumum af ýmsum
ástæðum, meðal annars við ýmsa
sjúkdóma. Mikill áhugi er á því að
nota mælingar á DNA- og RNA-sam-
eindum í líkamsvökvum til að greina
krabbamein. Það er hægt vegna þess
að í æxlisfrumum eru áunnar breyt-
ingar í DNA-erfðaefninu, sem leiða
til krabbameinsmyndunar eða eru
afleiðing æxlisvaxtar. Breytingarnar
geta verið sértækar fyrir ákveðin
krabbamein eða flokk krabbameina.
DNA-sameindir með slíkar sértækar
breytingar losna út í líkamsvökva
þar sem hægt er að greina þær.
Spennandi notkunarsvið
Mælingar með þessari tækni eru að
koma í notkun en frekari rannsóknir
og þróun eru nauðsynlegar. Tvö metn-
aðarfull notkunarsvið í framtíðinni
eru sérstaklega spennandi. Annað er
að áunnar stökkbreytingar geta verið
mismunandi á mismunandi stöðum
í æxlum og eins getur verið munur á
upprunalegum æxlum og meinvörp-
um. Vonir standa til þess að einföld
sýnataka með blóðprufu, í sumum til-
vikum í stað vefjasýnis sem tekið væri
með skurðaðgerð, gæti greint þessar
stökkbreytingar og þannig hjálpað til
við ákvörðun um meðferð. Hitt notk-
unarsviðið er skimun fyrir krabba-
meinum og möguleg greining þeirra
á meðan æxli væru enn lítil og áður en
einkenni kæmu fram eða breytingar
myndu sjást með myndrannsóknum.
Það myndi auka mjög möguleika á
lækningu. Frumforsenda slíkrar skim-
unar er að æxli hafa verið að vaxa í
mörg ár áður en þau greinast og hafa
væntanlega gefið frá sér afbrigðilegar
DNA- og RNA-sameindir út í blóðið
á meðan.
Til þess að þetta væri hægt, þarf
meiri þekkingu á DNA- og RNA-
sameindum í blóði og betur staðl-
aðar mæliaðferðir. Rannsóknarstofa
ESD myndi vera í samstarfi við aðra
hagsmunaaðila m.a. lækna, grunn-
vísindamenn og faraldsfræðinga um
rannsóknir og þróun á þessari tækni.
Frekari upplýsingar um söfnunina
er vefsíðunni krabbameinsleit.is.
Fjársöfnun Bláa naglans í
þágu krabbameinsgreininga
með blóðprufum
Jón Jóhannes
Jónsson
yfirlæknir erfða-
og sameinda-
læknisfræði-
deildar Land-
spítala, prófessor
og forstöðumaður
lífefna- og sam-
eindalíffræðasviðs
Læknadeildar HÍ
Það er brýnt að þessum
slysalegu áformum verði
afstýrt og benda má á að nú
fer fram undirskriftasöfnun
gegn þeim á Netinu.
Nýr Volkswagen Caddy kostar frá: 2.760.000 kr. (án vsk. 2.225.806 kr.)
www.volkswagen.is
AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
Við kynnum til leiks fjórðu kynslóð af vinsælasta atvinnubíl á Íslandi undanfarin ár.
Enn meiri staðalbúnaður, aukið öryggi og öflugri vélar eru aðeins nokkur atriði sem gera hinn
nýja Caddy svo aðlaðandi. Nú kemur Caddy líka í fimm og sjö manna fjölskylduútfærslu
með nálgunarvara og loftpúðum fyrir ökumanns- og farþegarými.
Við bjóðum þér að líta við í sýningarsal VW Atvinnubíla og kynnast honum betur.
Nýr Volkswagen Caddy
Nýr Caddy!
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 7 . n ó v e m B e R 2 0 1 5
1
7
-1
1
-2
0
1
5
1
3
:4
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
F
9
-5
C
E
8
1
6
F
9
-5
B
A
C
1
6
F
9
-5
A
7
0
1
6
F
9
-5
9
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
3
2
s
C
M
Y
K