Fréttablaðið - 17.11.2015, Page 25
Þessi ofureinfalda Snickers-eplakaka
er eitthvað sem allir ættu að geta gert.
Uppskriftin er fengin af síðunni blaka.
is og höfundur hennar er Lilja Katrín
Gunnarsdóttir.
Mulningur
1/2 bolli Kornax-hveiti
1/2 bolli haframjöl
1/2 bolli púðursykur
1/2 tsk. lyftiduft
smá salt
75 g kalt smjör, skorið í teninga
Hitið ofninn í 180°C. Blandið
öllum hráefnum í mulninginn
saman þar til blandan er orðin
að grófri mylsnu. Kælið í ísskáp á
meðan þið búið til fyllinguna.
Eplablanda
3-4 stór epli (afhýdd, skorin í litla bita)
3 msk. brætt smjör
2 msk. Kornax-hveiti
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. vanilludropar
3 msk. mjólk
¼ bolli púðursykur
1/2 tsk. kanill
Smá salt
3 Snickers (söxuð)
Blandið hveiti og smjöri vel
saman í skál. Hrærið því næst
sítrónusafa og vanilludropum
vel saman við. Bætið púðursykri,
kanil og salti saman við og hellið
þessari blöndu yfir eplin og hrær-
ið svo hún hylji eplin. Hellið epla-
blöndunni í eldfast mót. Raðið
Snickers-bitunum yfir blönduna.
Dreifið mulningnum yfir. Bakið í
30 til 35 mínútur. Leyfið kökunni
að kólna í að minnsta kosti 10
mínútur áður en þið berið hana
fram – að sjálfsögðu með rjóma
eða vanilluís.
Einföld Snickers-eplakaka sem allir ættu að geta gert
Ljúffeng og góð. Mynd/LiLja Katrín
Á tónleikunum verða flutt verk
eftir Þóri Hermann Óskarsson
klarinettuleikara og Daníel Þröst
Sigurðsson trompetleikara.
Hvað? Styrktartónleikar fyrir Juraj
Hvenær? 20.00
Hvar? Húrra
Styrktartónleikar fyrir slóvakíska
blaðamanninn Juraj Kušnierik
verða haldnir á Húrra í kvöld.
Juraj liggur þungt haldinn á Land-
spítalanum eftir að hafa fengið
hjartaáfall á sunnudaginn í síðustu
viku þegar hann heimsótti landið
og Iceland Airwaves-tónlistarhá-
tíðina eins og hann hefur gert
mörg undanfarin ár.
Juraj hefur um árabil verið ein-
stakur áhugamaður um íslenskt
tónlistarlíf og lagt þung lóð á
vogarskálarnar við kynningu á
íslenskri tónlist í heimalandi sínu
og víðar.
Í gegnum vinnu sína og ástríðu
hefur hinn einstaki Juraj myndað
sterk vinabönd við fjölda íslenskra
tónlistarmanna sem nú vilja þakka
fyrir sig með því að halda tónleika
til styrktar Juraj og fjölskyldu hans
á þessum erfiðu tímum.
Þeir sem koma fram á tónleik-
unum eru: Bogomil Font og Flís,
Kippi Kaninus, Milkywhale, Sin
Fang, Sóley, FM Belfast DJs og
Ghost igital DJs.
Fyrirlestrar
Hvað? GraN verkefnið - grafískur
3æringur
Hvenær? 17.00
Hvar? Listasafnið á Akureyri
Haraldur Ingi Haraldsson, verk-
efnastjóri Listasafnsins á Akur-
eyri, heldur fyrirlestur undir
yfirskriftinni GraN verkefnið
- grafískur 3æringur. Í fyrirlestr-
inum fjallar hann um verkefnið
Grafík Nord ika og þá norrænu
samvinnu sem liggur að baki
sýningunni GraN 2015 sem nú
stendur yfir í Listasafninu á Akur-
eyri, en þar má sjá tæplega 100
verk 24 grafíklistamanna frá
öllum Norðurlöndunum. Auk
þess mun Haraldur Ingi tala um
skipulagningu á frekara norrænu
samstarfi.
Hvað? Bókmenntaspjall
Hvenær? 20.00.
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
10
Þórunn Sigurðardóttir bók-
menntafræðingur segir frá nýút-
kominni bók sinni, Heiður og
huggun. Erfiljóð, harmljóð og
huggunarkvæði á 17. öld. Tæki-
færiskvæði eins og erfiljóð, harm-
ljóð og huggunarkvæði voru mjög
vinsæl á meðal hinnar mennt-
uðu elítu í Evrópu á 17. öld. Í
íslenskum handritum eru varð-
veitt gríðarlega mörg slík kvæði,
sem fæst hafa verið prentuð, og
af þeim sökum hefur lítið verið
fjallað um þessar kvæðagreinar í
íslenskri bókmenntasögu. Í bók-
inni er fjallað um eðli og einkenni
þessara bókmenntagreina, úr
hverju þær eru sprottnar og hvert
hlutverk þeirra var í samfélagi
aldarinnar, félagslegt jafnt sem
sálrænt. Þá eru gefin út nokkur
kvæði sem aldrei hafa áður birst
á prenti.
Snickers-eplakaka með rjóma.
Ko
lve
tn
as
ke
rt
Nýtt og syndsamlega gott, kolvetnaskert
skyr með dökku súkkulaði og vanillubragði.
Ljúengt og hollt.
1
5
-1
8
6
2
-H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
M E n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 21Þ R i ð J U D A g U R 1 7 . n ó v E M B E R 2 0 1 5
1
7
-1
1
-2
0
1
5
1
3
:4
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
F
9
-3
A
5
8
1
6
F
9
-3
9
1
C
1
6
F
9
-3
7
E
0
1
6
F
9
-3
6
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
C
M
Y
K