Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Page 6
Laugardagur 3. janúar 20086 Fréttir Sandkorn n Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur sýnt í gegnum tíðina að hann er dyggur stuðningsmaður og góður verndari íslensku þjóð- kirkjunnar. Ráðherrann kemur aðeins inn á trúmál- in í nýlegri færslu á heimasíðu sinni. Þar játar Björn að vera veikur fyrir katólskunni þótt hann hafi ekki snúist til þeirrar trúar, eða konverterað eins og hann orðar það. Þetta segir hann í framhaldi af því að Sjónvarpið sýndi síðustu pré- dikun Sigurbjörns Einarssonar biskups í Reykholti. Þar sáust Sigurbjörn og Gunnar Eyjólfs- son leikari ræða saman og upp- lýsir Björn að þeir hafi verið að ræða um konverteringu lút- erskra klerka til katólsku. n Hagur ríkisstjórnarinnar vænkast nokkuð samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallups sem Ríkisútvarpið greindi frá í gær. Ríkis- stjórnin er þó enn með þeim óvin- sælustu sem hafa verið við völd á Íslandi. Aðeins 36 prósent landsmanna segjast styðja ríkisstjórnina en það er þó fjórum prósentustigum meira en fyrir mánuði síðan. Afdrif ríkisstjórnarflokkanna eru hins vegar misjöfn. Sjálfstæðisflokk- ur bætir við sig fylgi og mælast Geir H. Haarde og félagar nú með fjórðungsfylgi en voru með rúman fimmtung fyrir mánuði. Samfylkingin dalar hins vegar, lækkar um þrjú prósentustig, en hún er þó enn næststærsti flokkur landsins með 28 prósenta fylgi. n Vinstri-grænir mælast enn stærsti flokkur landsins en fylgi flokksins minnkar þó úr 32 prósentum í 29 prósent. Vand- ræði frjálslyndra og framsókn- armanna halda hins vegar áfram nú þegar tvær vikur eru til flokksþings og formanns- kjörs hjá síðarnefnda flokknum. Aðeins þrettándi hver kjósandi myndi kjósa Framsóknarflokk- inn samkvæmt könnun Gallups og aðeins einn af hverjum 25 myndi greiða Frjálslynda flokkn- um atkvæði sitt. Samkvæmt því myndu Guðjón Arnar Kristjáns- son og aðrir þingmenn Frjáls- lynda flokksins missa sæti sitt en fylgi flokksins hefur þó oftast nær verið meira í kosningum en í skoðanakönnunum. n Styrmir Gunnarsson, fyrrver- andi ritstjóri Morgunblaðsins, er búinn að fá sig fullsaddan af stórveldaleik smáþjóðar, eins og hann kallar útþenslu ís- lensku utanríkisþjónustunnar. Styrmir ritaði grein á Evrópuvef Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann sagði að kominn væri tími til að skera utanríkisþjón- ustuna verulega niður, fækka sendiráðum og starfsmönnum sem þessu tengjast. Styrmir gagnrýnir sérstaklega framboð til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem hafi verið á ábyrgð Halldórs Ás- grímssonar og Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur. Davíð Odds- son og Geir H. Haarde hafi haft minni áhuga á þessu en samt ekki stöðvað framboðið. Talið er að fjöldi heimilislausra í Reykjavík sé á bilinu fjörutíu til sextíu manns. Flestir heimilislausra eiga við vímuefnavandamál eða geðraskanir að stríða. Heið- ar Guðnason, framkvæmdastjóri Samhjálpar, finnur ekki fyrir fjölgun heimilis- lausra en telur vanta úrræði. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs, er bjartsýn á nýja árið og segir mikinn skilning í borginni í garð velferðarmála. „Hópur heimilislausra er mjög stór en það fer oft eftir árstíðum og öðru. Það er alltaf einhver hóp- ur manna sem á heimili sitt á göt- unni eða er heimilislaus en sá hóp- ur er misstór. Mönnum hefur ekki borið saman um hve margir til- heyra þessum hópi og það er líka alltaf spurning um skilgreining- una á hvað það þýðir að vera heim- ilislaus,“ segir Heiðar Guðnason, framkvæmdastjóri Samhjálpar. Fjölmargir heimilislausir „Við höfum reynt að skoða fjölda heimilislausra með því að skoða heimsóknir á kaffistofuna hjá okk- ur sem heimilislausir sækja og heimsóknir í gistiskýlið. Við fjölg- uðum plássum í gistiskýlinu í júlí síðastliðnum úr sextán í tuttugu og síðan þá hefur skýlið nánast annað eftirspurn þó að það hafi verið nótt og nótt sem það hefur ekki verið, sem er náttúrlega ekki gott,“ segir Heiðar. „Menn hafa talað um að fjöldi heimilislausra sé á bilinu fjöru- tíu til fimmtíu manns en hópur- inn sem er á götunni er stærri. Ef ég miða út frá heimsóknum í gisti- skýlið okkar og kaffistofu þá gæti ég haldið að heimilislausir væru á bilinu fimmtíu til sextíu en sú tala er án ábyrgðar. Sumir hafa vilj- að meina að þessi hópur sé allt að hundrað einstaklingar en ég efast um að það sé rétt. En ef við mynd- um skoða eitt ár og hve margir verða heimilislausir á árinu mynd- um við líklegast ná hundrað ein- staklingum. Sumir eiga við heimil- isleysi að stríða í mislangan tíma,“ segir Heiðar. Vantar fleiri úrræði Heiðar tekur eftir fjölgun á kaffi- stofunni, þó ekki meðal heimilis- lausra heldur fólks sem á um sárt að binda en flestir sem hægt er að skilgreina sem heimilislausa eiga við vímuefnavandamál eða geðraskanir að stríða. „Allir geta lent í því að verða heimilislausir. Þetta eru mjög oft einstaklingar sem hafa misst fót- anna vegna vímuefnaneyslu. Hluti af þeim hóp sem verður heimilis- laus á við alvarlegar geðraskanir að stríða og hafa ekki fengið viðun- andi úrræði. Það að skorti úrræði til að taka við ákveðnum hópi ein- staklinga er eitthvað sem búið er að benda á mjög lengi og af mjög mörgum. Það vantar hreinlega fleiri úrræði sem myndu taka utan um þörf einstaklinganna og ég get ekki séð að úrræðum muni fjölga,“ segir Heiðar sem lítur ekki björtum augum á framtíðina. „Það sem ég sé er að þau úrræði sem eru starfandi núna þurfa að draga úr þjónustu vegna samdrátt- ar í fjárútlátum borgarinnar til vel- ferðamála.“ Nýtt heimili opnað „Við hjá velferðarráði erum að vinna samkvæmt utangarðsstefn- unni sem samþykkt var í haust. Það hefur ekkert verið hróflað við þeim áformum og sem betur fer höfum við staðið vörð um úrræði fyrir heimilislausa,“ segir Jórunn Ósk Frímannsdóttir, formaður vel- ferðarráðs. „Það hefur verið talað um að fjörutíu til sextíu manns séu heimilislausir í Reykjavík og okk- ur finnst frekar að við séum að ná þannig lendingu með þennan hóp sem er hér heimilislaus að fólk þurfi ekki að vera úti. Við fjölguð- um í gistiskýlunum og opnuðum smáhýsi þar sem sex einstakling- ar geta verið. Við opnuðum heim- ili fyrir heimilislausa karlmenn þar sem eru átta pláss og á árinu verð- ur opnað heimili fyrir heimilislaus- ar konur en við teljum að þær séu á bilinu þrjár til fimm. Við erum líka að skoða vinnuaðstöðu sem hægt er að tengja við dagþjónust- una. Þar geta einstaklingar lagt sitt af mörkum og fengið greitt fyrir, til dæmis við viðhald á borginni. Þetta er nýjung sem er í skoðun og gæti fólk þá mætt þegar það sæi sér fært,“ segir Jórunn sem siglir bjart- sýn inn í nýtt ár. „Hvað velferðarmálin varðar er ég rosalega ánægð með lending- una á fjárhagsáætluninni og að við höfum hækkað fjárhagsaðstoðina. Það er mjög góður skilningur hjá borginni að ná utan um stöðuna og hóp heimilislausra og bjóða upp á fjölbreytt úrræði. Mér finnst mjög mikilvægt að við stöndum vörð um þessa þjónustu á þessum erfiðu tímum.“ lilJa KatríN GuNNarsdÓttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is Á GÖTUNNI Í REYKJAVÍK Býr í húsbíl Í síðasta blaði ársins sem var að líða fjallaði dV um Björgvin Þor- varðarson sem býr í húsbíl á bílastæðinu við Kjarvalsstaði og nýtir sér þjónustu Samhjálpar. Björgvin ætlar að snúa blaðinu við og fá sér almennilega íbúð á nýja árinu. myNd Heiða HelGadÓttir Bíllinn er heimilið Í nóvember sagði dV sögu Sverris Ólafssonar listamanns sem bjó í húsbíl á tjaldstæðinu í Hafnarfirði því hann átti engan annan samastað. myNd GuNNar GuNNarssoN Bjartsýn Samkvæmt jórunni er borgin að vinna að fjölbreyttari úr- ræðum fyrir heimilislausa í reykjavík. „Þetta eru mjög oft einstaklingar sem hafa misst fótanna vegna vímuefna- neyslu.“ Framtíðin óljós Heiðar telur líklegt að þeim úrræðum sem til eru fyrir heimilislausa muni fækka í framtíðinni vegna samdráttar. myNd Heiða HelGadÓttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.