Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Blaðsíða 19
Laugardagur 3. janúar 2008 19Fókus n Febrúarsýning ÍD að þessu sinni er febrúarsýning Íslenska dansflokksins samstarfsverkefni þriggja höfunda. Þeirra Cameron Corbett, Katrínar Hall og Petera andersson. Þá vinna höfundarnir sýninguna í nánu samstarfi við dansara flokksins. Sýningin, sem er frumsýnd 5. febrúar í Borgarleikhúsinu, er heila kvöldstund. Skráðar eru sex sýningar á verkinu. n Rústað Kristín Eysteinsdóttir, sem hlaut grímu- verðlaunin sem leikstjóri ársins 2008, leikstýrir verkinu rústað sem frumsýnt er í Borgarleikhúsinu 29.janúar á nýja sviðinu. rústað er fyrsta leikrit franska leiksskálds- ins Söruh Kane en það var frumsýnt 1995 ytra. Verkið var mjög umdeilt en Borgarleikhúsið tekur fram ða verkið sé alls ekki fyrir börn né viðkvæma. Borgarleik- húsið er fyrst íslenskra leikhúsa til að sviðsetja verk Söruh Kane og í kjölfar frumsýningar á rústað verða öll hin leikrit hennar flutt í sviðsettum leiklestrum. n Milljarðamærin snýr aftur Kjartan ragnarsson leikstýrir verkinu Milljarðamærin snýr aftur en hann vinnur nýja leikgerð á því. Höfundur verksins er Friedrich dürrenmatts og var það frumflutt árið 1956. Síðan þá hefur það verið sett upp margoft um allan heim. Verkið fjallar um ríka konu sem snýr aftur í smábæ eftir að hafa farið þaðan með smán. Verkið er frumsýnt 27. febrúar á Stóra svið í samstarfi við VÍS. n Kardemommubærinn Selma Björnsdóttir leikstýrir þessu fræga verki sem flestir landsmenn kannast við. Örn Árnason er meðal leikara en hann er að leika í Kardemommubænum í þriðja sinn. Verkið fjallar af sjálfsögðu um Soffíu frænku, ræingjanna, Bastían bæjarfógeta að ljóninu ógleymdu. Verkið er frumsýnt á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í febrúar. n Eterinn Einleikur um listamanninn Þóri Sæmund- arson, hugmyndafræði hans og listsköpun, Verkið er unnið með hjálp ólíkra listmiðla. Þórir þróaði verkið í samstarfi við listhópinn Fatamorgana og verður sýnt í Smíðaverkstæðinu í Þjóðleikhúsinu í mars. n Þrettándakvöld útskriftarnemar leiklistardeildar LHÍ setja upp verkið Þrettándakvöld eftir William nokkurn Shakespeare. útskriftarnemunum til halds og traust eru nokkrir af virtustu leikurum Þjóðleikhússins undir leikstjórn rafaels Bianciotto. Frumleg og óvenjuleg uppfærsla þar sem notast er við spuna og grímur. Frumsýning á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í mars. KonuR EFtiR StEinaR BRaga Samtímahroll- vekja sprottin upp úr íslenska gullæðinu. Svakaleg lesning. m æ li r m eð ... How to MaKE FRiEnDS Eintóm gleði sem ekki veitir af í kreppunni. ÆviSaga DagS SiguRðaR- SonaR Svona á að skrifa ævisögur. Í HEnDi guðS EFtiR aMManiti Ég þarf að horfa langt aftur til að finna bók sem situr jafnfast eftir í huga mér. m æ li r eK Ki m eð ... SuMaRljóSi Byrjaði þokka- lega með líflegri sjálfskynningu þorpsbúanna, en brátt fór allt á flot út og suður. bundinna skáldverka og ljóðabóka er bók Einars í öðru sæti en í kjölfar Ofsans og Auðnarinnar á þeim lista fylgja Skaparinn eftir Guðrúnu Evu Mínvervudóttur og Vetrarsól Auðar Jónsdóttur. Mest selda ljóðabók ársins, kvæðasafn Þórarins Eldjárns sem kom út á fyrri hluta ársins, er þar í sjötta sæti. Önnur ljóðabók sem seldist vonum framar á þessu ári, safn ástarljóða Páls Ólafssonar, er aðeins tveimur sætum neðar á þeim lista. Ár skáldsagna og barnabóka Egill Örn segir ljóst að þetta hafi ver- ið skáldsagnajól. Sömu sögu er að segja hjá öðrum í bókageiranum sem DV ræddi við fyrir helgi. „Það er ekki nokkur spurning. Bókakaup- endur voru miklu frekar að kaupa ís- lenskar skáldsögur en þýddar bækur og ævisögur,“ segir Egill. „Þetta gengur líka dálítið í tísku- bylgjum. Segja má að við séum á skáldsagnatímabili núna. Fyrir svona tíu árum voru ævisögur vin- sælastar og þá virtust allir vera að gefa út ævisögur. Svo komu „Da Vinci Code-bækur“, síðan var þem- að í dálítinn tíma þjáningarsögur kvenna frá Austurlöndum og Afríku en núna er það sannarlega skáld- sagan.“ Egill bætir við að íslenskar barnabækur séu líka að koma af- skaplega vel út. Mest seldu ævisögurnar hjá Forlaginu þessi jólin voru Í sól og skugga, endurminningabók Bryn- dísar Schram, og Saga af forseta eft- ir Guðjón Friðriksson. Báðar fóru þær í yfir fimm þúsund eintökum að sögn Egils. Ævisaga Magneu Guðmunds- dóttur, rituð af Sigmundi Erni Rún- arssyni, seldist í rúmlega sex þús- und eintökum. Veröld gaf þá bók út og segist útgáfustjórinn, Pétur Már, vel við una. „Maður rennir al- gjörlega blint í sjóinn með ævisögu svona óþekktrar alþýðukonu. Slík bók getur farið í þúsund eintökum eða fimm þúsund eintökum. Við erum því hæstánægð með útkom- una.“ Þráinn Bertelsson sendi frá sér (sein)þroskasöguna Ég ef mig skyldi kalla sem fjallar að mestu um ævi höfundarins á milli tvítugs og þrí- tugs. Að sögn útgáfustjóra Sagna útgáfu, sem gefur út bók Þráins, seldist hún í fimm til sex þúsund eintökum. vill ekki taka sig í gegn Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri ís- lenskra bóka hjá Eymundsson, tek- ur undir með öðrum í bókabransan- um að skáldsögurnar komi feikivel út þetta árið. Ævisögurnar hafi enda oft verið meira spennandi. „Ég hefði viljað sjá sterkari ævisögur. En það gerist bara næst.“ Auk uppsveiflunnar í skáldsagna- geiranum segir Bryndís íslensku barnabækurnar koma sterkar inn að nýju eftir smá lægð árið 2007. Þá er líka nokkuð athyglisverður kippur í flokki staðreyndabóka. „Við kreppuna minnkaði áhugi fólks á betrunarbókum en jókst hvað varðar skáldverk og bæk- ur sem innihalda hreinar og bein- ar staðreyndir. Við vorum náttúr- lega búin að sjá ofboðslega sölu á bókum eins og Leyndarmálinu og Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn, en það var engin þannig bók að skora hátt fyrir þessi jól. Á móti kemur góð sala á bók eins og Stoð- ir FL bresta. Fólk virðist því sækja annaðhvort í staðreyndir eða al- gjöran „fiksjón“. Það virðist ekkert vilja taka sig neitt sérstaklega í gegn á meðan þjóðfélagsástandið er eins og það er,“ segir Bryndís í léttum dúr. Spurð hvort það sé þekkt til- hneiging í bókaáhuga og -sölu þeg- ar harðni á dalnum kveðst Bryndís ekki vita það fyrir víst. Það hljómi þó nokkuð lógískt þegar hugsað sé út í það. Ævar Örn vinsæll eftir jól Bryndís segir söluna í heild vera svipaða og í fyrra en vill ekki nefna neinar tölur. Miklu sé hins vegar skilað og skipt. „Þær bækur sem við skiptum mest eru bækurnar sem við seljum mest af. Það segir sig líka kannski sjálft. Ef við tökum dagana frá aðfangadag fram á gamlársdag þá er Myrká að koma mest inn en Land tækifæranna eftir Ævar Örn Jóspesson að fara mest út af öllum skáldsögum.“ Eins og greint var frá í haust kom bók Ævars Arnar mjög seint út þar sem höfundurinn end- urskrifaði hana að hluta með hlið- sjón af bankahruninu. Ekki náðist í útgáfustjóra Upp- heima, sem gefa út bækur Ævars, við vinnslu greinarinnar. kristjanh@dv.is jón Sæmundur auðarson verður í Hafnarhúsi á sunnudaginn: Spjall við óttalausan mann „Ég held að ég geti fullyrt að við séum fyrsti eiginlegi, íslenski sirk- usinn,“ segir Katla Þórarinsdótt- ir, talskona Sirkus Íslands, sem stendur fyrir nokkrum sýningum í Hafnarfjarðarleikhúsinu um helg- ina. Hópurinn samanstendur af um fimmtán manns sem byrjuðu að hittast í Kramhúsinu fyrir um ári til að deila þekkingu sinni og getu. Í dag er svo komið að hópur- inn hittist fjórum sinnum í viku til að æfa og hefur hann sýnt á hinum ýmsu árshátíðum og samkomum síðustu mánuði, þar á meðal 17. júní og afmælishátíð Hafnarfjarð- ar síðastliðið sumar. Sirkussýningarnar eru afar fjölbreyttar, samanstanda meðal annars af „jugl“-atriðum þar sem margskonar hlutum er haldið á lofti og verða þeir oft æði marg- ir; jafnvægisæfingar með snúandi diskum, húlahringjum og stól- um gefur að líta á sýningunum auk þess sem trúðar eru auðvitað ómissandi þegar sirkus er annars vegar. Katla er atvinnudansari og sýnir hún nokkuð af þeirri kunnáttu sinni á sýningunum jafnframt því að sýna „akróbatæfingar“ með sirkus- stjóranum, Ástralanum Lee Nelson sem er sirkusþjálfaður. „Við höldum meðal annars jafnvægi á hvort öðru. Ég stend til dæmis á höfðinu á hon- um og svo kastar hann mér hingað og þangað á meðan ég þarf að halda jafnvægi. Og ró minni.“ Eitt hópakróbatatriði er einn- ig hluti af sýningunni þar sem sjö manns hlaða sér upp í pýramída. Ekkert dýrastúss er hins vegar á þessum íslenska sirkus. „Við eigum því miður engin ljón. En ég hef próf- að að leika ljónið en er afskaplega léleg í því,“ segir Katla og hlær. „Svo eru fílarnir alltof stórir fyrir leikhús- ið.“ Fyrstu sýningarnar fóru fram í gær en tvær sýningar verða í dag, laugardag, klukkan 14 og 20 og ein til á morgun klukkan 14. Miðasala er á midi.is. Sirkus Íslands sýnir í Hafnarfjarðarleikhúsinu um helgina: Fyrsti íslenski sirkusinn intRoBEatS MEð tÍvolÍ CHillout rappplata sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Sirkus Íslands Hópurinn byrjaði að hittast fyrir rúmu ári og er því væntan- lega orðinn allvel sjóaður í sirkusfræð- unum. Væntanlegt í leikhúsunum Íslandsmet á jólum sKáldVerKan 1. Myrká arnaldur Indriðason 2. Þúsund bjartar sólir Khaled Hosseini 3. Dísa ljósálfur g.T. rotman 4. aska Yrsa Sigurðardóttir 5. Áður en ég dey jenny downham 6. lost in iceland Sigurgeir Sigurjónsson 7. ofsi Einar Kárason 8. Steinsmiðurinn Camilla Läckberg 9. Risa Syrpa Walt disney 10. Friðþæging Ian McEwan Metsölulisti Eymundsson og Bókabúðar Máls o g menningar Kóngurinn Myrká arnaldar seldist töluvert betur en Harðskafi í fyrra, þrátt fyrir sú bók hafi slegið öll met. Bryndís loftsdóttir, vörustjóri íslenskra bóka hjá Eymundsson „Við kreppuna minnkaði áhugi fólks á betrunarbókum en jókst hvað varðar skáldverk og bækur sem innihalda hreinar og beinar staðreyndir.“ ÁSgEiR M EinaRSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.