Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Blaðsíða 36
Laugardagur 3. janúar 200836 Helgarblað
HIN HLIÐIN
Líkist Claudiu
Schiffer
Nafn og aldur?
„Ragnar Sólberg, 22 ára.“
Atvinna?
„Tónlistarmaður og gítarkennari.“
Hjúskaparstaða?
„Trúlofaður Sóley Ástudóttur.“
Fjöldi barna?
„Tvö.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já, já, ég hef átt köngulær, snigil, kött og tvo
hunda.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Ég spilaði á Xmas-tónleikunum 22 desem-
ber bæði undir mínu eigin nafni og svo líka með
hljómsveitinni Sign.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Já, ég var alltaf að gera eitthvað af mér þegar ég var
yngri og lögreglan þurfti stundum að skutla mér
heim.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju?
„Ég held rosalega upp á allar flíkur sem ég erfði
frá afa mínum. Ég tek þægindi algjörlega fram yfir
kúlið.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei, hef margoft reynt að fita mig samt en það
gengur bara aldrei.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Nei, ég var samt algjör uppreisnarseggur sem
barn og mótmælti oft en á mjög óskipulagðan hátt.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Já, jarðneskt líf er bara eitt af mörgum.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa
haldið upp á?
„Ég skammast mín ekki fyrir neitt svoleiðis.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Þau eru mjög mörg, það nýjasta er A new game
með hljómsveitinni Mudvayne.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Ég hlakka svolítið til sumarsins, en annars ætla ég
bara að njóta hverrar stundar eins og ég get.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur?
„Grumpy og Grumpier Old Men, mér finnst bara
gamlir karlar með húmor það fyndnasta í heimi og
Walter Matthau er flottastur.“
Afrek vikunnar?
„Er að hafa plokkað augabrýrnar á ömmu minni,
mér finnst það mjög krúttlegt.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Já, mér finnst voða gott að fá leiðbeiningar og
staðfestingu á því sem ég er að pæla.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Já, ég elska hljóðfæri, ég byrjaði að spila á gítar
þegar ég var tveggja ára og trommur þegar ég var
fjögurra ára. Svo hef ég fiktað á píanó í mörg ár
líka.“
Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið?
„Nei, ekki núna allavega. Til að halda sjálfstæði
þarf maður að kunna að standa sjálfur, ekki bara
sem einstaklingur heldur sem þjóð. Það fylgir okk-
ur of mikil græðgi og mikilmennska. Maður þarf
ekki allt þetta drasl og peninga til að lifa sáttur.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Að vera hamingjusamur og láta rætast úr sinni
hjartans þrá.“
Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella
fullan og fara á trúnó með?
„Ég myndi aldrei nenna að vera með fullum ráða-
manni, hvað þá á trúnó. Þeir mega alveg halda í sín
leyndarmál mín vegna.“
Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta
og af hverju?
„Engan í augnablikinu.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, ég hef alveg gert það en ég kann miklu betur
við að semja við tónlist.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ég ætlaði að bregða krökkunum og konunni
minni í gær með því að sprengja hurðasprengju í
rúminu en þeim fannst það ekkert fyndið.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest?
„Það var einu sinni skrifað í einu blaði að ég væri
eins og blanda af Ville Valo í HIM og Claudiu Schif-
fer, annars veit ég ekki.“
Ertu með einhverja leynda hæfileika?
„Já, og ég ætla einmitt að virkja þá á árinu.“
Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Það er nú soldið flókið mál, mér finnst persónu-
lega asnalegt að leyfa eitt og banna annað en á
sama tíma finnst mér líka asnalegt að fólk neyti
heilsuskaðlegra vímuefna.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Heimilið mitt.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð
að sofa?
„Fikta í hárinu á konunni minni.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Kreppan er eins og stökk aftur í tímann, við fórum
of hratt og gerðum fullt vitlaust en fáum núna tæki-
færi á að gera allt aftur. Við verðum að láta mjög lít-
ið nægja og muna hver lífsgildi okkar eru.“
RagnaR SólbeRg, SöngvaRi SveitaRinnaR Sign, gaf út Sína aðRa Sólóplötu á
dögunum Sem hlaut heitið full CiRCle. hann dýRkaR WalteR matthau og
SegiR mikilvægaSt í lífinu að veRa hamingjuSamuR.
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620 frá kl. 10-16
Kennsla hefst
12. janúar
www.schballett.is
Varahlutir ehf
Smiðjuvegi 4 A Kópavogi
Símar: 587-1280 849-5740
LAND-ROVER EIGENDUR
ÓSKUM YKKUR GLEÐILEGS NÝS ÁRS OG
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á LIÐNUM ÁRUM
VIÐ GETUM EINS OG ÁÐUR BOÐIÐ ALLA
VARAHLUTI Í BIFREIÐAR FRÁ LAND-
ROVER, ÁRGERÐIR 1960 - 2008
NÚ GETUR
ÞÚ LESIÐ DV
Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði