Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Blaðsíða 8
„Hann drepur mig ekki, mamma,“ sagði Ísól Lind alltaf við móður sína, Sigrúnu Ellertsdóttur sem býr í Reykjanesbæ. Sigrún lýsti sam- bandi sínu við dóttur sína í kvöld- fréttum Stöðvar 2 í gær en þar kom fram að hjónaband hennar með William Cotto hafði verið ofbeldis- fullt um nokkurt skeið. Það var klukkan fjögur aðfara- nótt gamlársdags sem lögreglan fékk tilkynningu um mann með skotvopn fyrir utan 3657 Main Street í smábænum Marbletown í New York, heimili Ísólar Lindar. Þegar lögreglan mætti á staðinn sögðu nágrannar að William Cotto hefði gengið inn á heimilið vopn- aður haglabyssu og skotið eigin- konu sína. Virti ekki nálgunarbann William Cotto fannst stuttu síðar á bílaplani bensínstöðvar í 180 metra fjarlægð frá heimili Ísólar. Hann hafði þá svipt sig lífi með sömu byssu og hann notaði til að bana Ísól Lind. Samkvæmt lögreglunni vestan- hafs var William Cotto handtekinn kvöldið fyrir morðið vegna heimil- isofbeldis en hann átti meðal ann- ars að hafa hrint Ísól niður stiga. Það sem vekur athygli er að William var með þeirri árás að brjót gegn nálgunarbanni sem hafði áður ver- ið sett á hann. Hann virti það hins vegar að vettugi. Fyrir að rjúfa nálgunarbann, hóta eiginkonu sinni og veitast að henni fékk William ferð í steininn og hann látinn undirgangast fimm þúsund dollara tryggingu. Það greiddi William með kreditkorti sínu enda ekki ýkja há upphæð, rúmlega hálf milljón króna miðað við núverandi gengi. William var því frjáls ferða sinna aðeins nokkr- um klukkustundum eftir að hafa verið handtekinn fyrir að ganga í skrokk á konunni sinni. Lögreglan taldi sig hafa gert öll vopn Williams upptæk þegar hún fór inn á heimili hans sama dag og hann var handtekinn. Í húsleitinni fundu lögregluþjónar ýmis vopn á borð við hnífa, haglabyssu, skotfæri og barefli. Þeir virðast þó ekki hafa fundið allt því William Cotto tók leigubíl frá fangelsinu heim til Ísól- ar Lindar vopnaður haglabyssu en samkvæmt lögreglunni ytra bein- ist rannsóknin meðal annars að því hvar hann fékk haglabyssuna. Þeir sem þekktu til fjölskyld- unnar segja kerfið hafa brugðist Ísól Lind. Heimilisofbeldi frá byrjun Maria Phelps, 26 ára gömul kona sem býr í New York, hefur þekkt til þeirra hjóna frá því hún var tíu ára gömul. Hún segir lögreglumenn hafa farið í kringum hlutina eins og köttur í kringum heitan grautinn þegar þeir útskýrðu ástæður nálg- unarbannsins. Hún telur að linkind lögreglu megi rekja til þess að Willi- am Cotton var áður lögreglumaður sjálfur. „Ég held að yfirvöld hafi ekki tekið brot nálgunarbannsins nógu alvarlega, misnotkunina eða vopn- in sem hann átti og þá síður þær ástæður sem hann hafði,“ segir Maria Phelps, sem gefur lítið fyrir Mark Glick, dómarann í málinu. „Mark Glick tók þetta greinilega ekki nógu alvarlega sjálfur þegar hann ákvað að tryggingargjaldið yrði fimm þúsund dollarar, trygging sem William borgaði sjálfur með sínu eigin kreditkorti,“ segir Maria og heldur áfram; „Er það á þennan hátt sem yfirvöld bregðast við broti á nálgunarbanni? Eru fimm þús- und dollarar nógu há upphæð fyrir mann sem braut nálgunarbann og beitti fyrverandi konu sína ofbeldi? Var ásetningur Williams Cotto ekki nógu augljós þegar lögreglan fann hrúgu af vopnum sem hann átti?“ Svæfð eftir atvikið Tuttugu og tveggja ára gömul dótt- ir Ísólar Lindar, Kristína, heyrði skothvellina og hljóp inn í her- bergi móður sinnar þar sem hún fann hana látna. Sigrún Ellerts- dóttir, móðir Ísólar Lindar, sagði í samtali við Stöð 2 að Kristína hafi horft á föður sinn svipta sig lífi en samkvæmt sömu frétt var Kristína svæfð eftir þessa erfiðu reynslu þar sem hún fékk mikið taugaáfall. William og Ísól voru skilin að borði og sæng en þó ekki á papp- írunum. Samkvæmt frétt Stöðvar 2 hafði Ísól skömmu áður tekið við William aftur, en þau bjuggu þó á sitthvorum staðnum. Ísól Lind var umhugað um öryggi sitt og átti sex hunda sem gættu hennar. Tveir af þeim sváfu við rúm Ísólar Lindar en þeir gerðu þó ekki eiganda sín- um viðvart þegar William gekk inn í svefnherbergið vopnaður hagla- byssu, enda þekktu þeir hann vel. Laugardagur 3. janúar 20088 Helgarblað Ísól Lind Cotto, 49 ára íslensk kona, var myrt á heimili sínu á gamlársdag í New York-ríki. Ódæðismaður- inn var eiginmaður hennar, William Cotto, en hann hafði verið handtekinn vegna heimilisofbeldis kvöldið fyrir morðið. William Cotto borgaði sjálfan sig út úr fangelsi og var því frjáls maður. Níutíu mínútum eftir að hafa losnað úr fangelsi var William Cotto mættur í svefnherbergi Ísólar vopnaður haglabyssu. Eftir að hafa skotið konu sína gekk hann út úr húsinu og svipti sig lífi fyrir framan dóttur þeirra hjóna. KERFIÐ BRÁST ÍSÓL LIND „Ég held að yfirvöld hafi ekki tek-ið brot nálgunarbannsins nógu alvarlega, misnotkunina eða vopnin sem hann átti og þá síður þær ástæður sem hann hafði...“ William Cotto Hann var handtekinn að kvöldi fyrir að rjúfa nálgunarbann og beita konu sína ofbeldi. Eftir það fannst vopnabúr á heimili hans. daginn eftir slapp hann úr fangelsi og myrti eiginkonuna. Heimili Ísólar dóttir konunnar upplifði þá skelfingu að koma að móður sinni látinni og sjá föður sinn fremja sjálfsvíg. AtLi Már GyLfASon blaðamaður skrifar: atli@dv.is Ólafur Örn Klemensson veittist að mótmælendum við Hótel Borg: Hagfræðingur Seðlabanka ógnar mótmælendum Ólafur Örn Klemenzson, hagfræð- ingur við Seðlabanka Íslands, veittist að mótmælendum við Hótel Borg á gamlársdag með hrópum og steytt- um hnefa. Á fréttavefnum mbl.is birtist myndskeið þar sem tveir menn sjást ógna mótmælendum. Nafn yngri mannsins er á huldu en ljóst er að sá eldri er Ólafur Örn, 57 ára hagfræð- ingur og sjálfstæðismaður. Í myndskeiði með frétt Þóru Krist- ínar Ásgeirsdóttur sjást tveir menn lesa mótmælendum pistilinn og greinilegt að mönnunum er mjög heitt í hamsi. Þar má sjá Ólaf Örn ganga að einum þeirra og steyta hnefann fram- an í hann á ógnandi hátt. Þá heyrist í ungri stúlku sem segir mönnunum að fara. Sá yngri spyr: „Hvers vegna?“ og stúlkan svarar: „Drullaðu þér bara í burtu.“ Ólafur Örn bregst þá ókvæða við og sést hann á myndbandinu ganga að stúlkunni, hrinda henni og segja reiðilega: „Heyrðu, megum við ekki standa hérna?“ Stúlkunni er greinilega brugðið og eftir að Ólafur hafði ýtt við henni spyr hún: „Hvað, ætlaðu að berja mig?“ Mótmælendur í bakgrunninum heyrast þá hrópa að Ólafi Erni: „Er ekki allt í lagi með þig?“ og „Hvað er eiginlega að þér?“ Félagi Ólafs Arnar gengur því næst að pilti og æpir til hans: „Þú ert að ráð- ast á fólk hérna.“ Pilturinn heldur ró sinni og segir að þarna sé aðeins fólk að tala saman. Félagi Ólafs lýsir vand- lætingu sinni á þessum orðum pilt- sins. Hann býr sig til brottfarar. Ann- ar drengur, rauðeygður eftir að hafa fengið piparúða í andlitið, bendir á andlit sitt og spyr: „Er þetta að ráðast á fólk?“ Maðurinn svarar því játandi og bætir æstur við: „Þú ert að skemma fyrir fólki og valda spjöllum.“ Þeir félagar yfirgefa svæðið að svo loknu, en yngri maðurinn snýr sér þó við og hrópar í kveðjuskyni að mótmælandanum: „Kommnúnista- drullusokkur.“ Ólafur Örn hefur í seinni tíð helst verið þekktur fyrir störf sín í Seðla- bankanum. Hann er þó einnig áhuga- samur um störf Evrópunefndar Sjálf- stæðisflokksins. Hann sótti opinn fund á vegum nefndarinnar í desem- ber um auðlindamál auk þess sem hann hefur tjáð sig um Evrópumál á vef nefndarinnar. Þegar blaðamaður DV hringdi í Ólaf Örn í gær skellti hann ítrekað á, en í samtali við mbl.is fullyrti hann að honum hefði verið ógnað af mótmæl- endum. erla@dv.is Steytti hnefa Hér sést Ólafur Örn Klemensson, fyrir miðju, ota hnefunum að mótmælanda. Mynd: MbL.iS Ýtti við stúlku Ólafur Örn Klemensson ýtti við ungri stúlku sem sagði honum að „drulla sér burt“. Mynd: MbL.iS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.