Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Blaðsíða 12
Laugardagur 3. janúar 2008 12 Helgarblað
JÓN ÁSGEIR
Í LÍFRÓÐRI
Jón Ásgeir Jóhannesson stendur eins
og margir aðrir íslenskir auðjöfrar
frammi fyrir því að róa lífróður til
þess að bjarga eignum sínum í kjöl-
far hruns fjármálakerfisins. Hverju
það mun skila er enn ófyrirséð. Eign-
ir hans gætu brátt verið eignir lánar-
drottnanna. Breska dagblaðið Times
lýsti honum eitt sinn sem draumi
allra slúðurdálkahöfunda og það
er sennilega ekki fjarri lagi. Axlasítt
hár og svört hversdagsleg jakkaföt
eru hans einkenni. Hann lifir hátt og
berst á hvar sem hann kemur. Um-
deildur, fljótur að greina tækifæri
og áhættusækinn. Hann ferðast um
á sérhannaðri einkaþotu og einka-
snekkju á milli þess sem hann dvel-
ur ýmist í lúxusíbúðum sínum í New
York eða London. Eignirnar eru gríð-
arlegar en nú stendur hann frammi
fyrir því að berjast í bökkum við að
standa í skilum með skuldir sem eru
óraunverulega háar. Eigið fé hans
sem og annarra er að miklu leyti guf-
að upp, en fram undan er barátta fyr-
ir veldinu sem nú stendur tæpt og á
mikið undir lánardrottnum sínum.
Rukkaði fyrir snjómokstur
Jón Ásgeir fæddist í Reykjavík 27.
janúar árið 1968. Hann er sonur
Jóhannesar Jónssonar og Ásu Ka-
renar Ásgeirsdóttur. Hann á eina
systur, Kristínu Jóhannesdóttur hér-
aðsdómslögmann. Hann ólst upp á
Seltjarnarnesinu og hafa æskuvinir
hans haft á orði að snemma hafi ver-
ið ljóst að hann myndi leggja fyrir sig
viðskipti.
Afi hans, Jón Elías Eyjólfsson, var
verslunarstjóri hjá Sláturfélagi Suð-
urlands og Jóhannes faðir hans byrj-
aði ungur að starfa hjá pabba sínum.
Jón Ásgeir fetaði sömu braut. Sex
ára var hann farinn að hjálpa pabba
sínum og tólf ára var hann farinn að
selja fólki popp á Eiðistorgi og í Aust-
urveri.
Magnús Örn Guðmarsson, æsku-
vinur Jóns Ásgeirs, segir að viðskipti
séu Jóni Ásgeiri í blóði borin. „Við
höfum verið nánir vinir frá níu ára
aldri þegar við bjuggum báðir úti
á Seltjarnarnesi,“ segir hann. Alveg
frá því Jón Ásgeir var 10-11 ára gam-
all var hann farinn að huga að því
hvernig hann gæti grætt peninga.
„10 ára gamall var hann hjá pabba
sínum í Sláturfélaginu og farinn að
meðhöndla vörur. Á sama aldri var
hann farinn að rukka pabba sinn fyr-
ir snjómokstur og síðan man ég eft-
ir einu atviki þegar ætlaði hann að
leigja okkur strákunum fótstiginn
leikfangabíl sem pabbi hans bann-
aði honum reyndar að gera. Hann
ætti frekar að leyfa vinum sínum að
leika með dótið en ekki leigja það.“
Hittir æskuvinina
á föstudögum
Jóhannes faðir hans hefur almennt
ímynd meiri alþýðumanns en Jón
Ásgeir, en Magnús er því ekki sam-
mála. „Hann var mjög skipulagð-
ur alveg frá barnsaldri og var ekk-
ert minna fyrir að vera í verkunum
sjálfur. Hann var uppátækjasamur
strákur og mjög vinsæll í hverfinu,“
segir Magnús. Frægt er orðið þeg-
ar Egill Helgason spurði Jón Ásgeir í
viðtali hvort hann gæti hugsað sér að
snúa aftur til landsins og taka þátt í
uppbyggingunni með því að taka til
hendinni á lyftara í Bónus. Jón Ásgeir
jánkaði því, þó engum sögum fari af
því hvort hann stefni þangað.
Vinahópurinn af Seltjarnarnes-
inu heldur enn góðu sambandi.
Auk þeirra tveggja skipa hópinn Jón
Björnsson, Ragnar Agnarsson, Óskar
Torfi Viggósson og Guðmundur Ingi
Hjartarson. Hópurinn hittist enn
reglulega og þá gjarnan í hádegismat
á föstudögum. Magnús segir Jón Ás-
geir ekki hafa breyst. „Hann er sami
maður og hann var. Virkilega góður
vinur vina sinna, mjög feiminn en
skemmtilegur og uppátækjasamur.“
Smásölukóngur
Jón Ásgeir stofnaði fyrstu Bónus-
verslunina með pabba sínum árið
1989. Jón Ásgeir var þá að skríða
úr Verslunarskólanum en Jóhann-
es stóð líka á tímamótum, því hann
hafði skömmu áður hætt störfum hjá
SS.
Byrjunin var brösótt. Þeir fengu
litla fyrirgreiðslu í bönkum og hús-
næðið í Skútuvoginum var gallað.
Þannig átti rafmagn til að slá út ef
álagið var mikið. Einungis var tekið
við reiðufé í búðinni fyrst um sinn.
Rekstur Bónuss var þungur en þrem-
ur mánuðum eftir opnun fyrstu versl-
unarinnar opnuðu feðgarnir aðra
búð í Faxafeni við hlið Hagkaupa.
Eftir að hafa barist við Hagkaups-
veldið í þrjú ár fór loks svo að feðg-
arnir seldu Hagkaupum helmings-
hlut í Bónus. Töldu margir þá að
endalok Bónuss væru í aðsigi. Vend-
ipunkturinn varð hins vegar þegar
Hagkaupsfjölskyldan hafði hug á að
kaupa feðgana út úr rekstri Bónuss.
Í stað þess að láta það gerast gerðu
þeir gagntilboð sem leiddi til þess að
þeir eignuðust báðar verslanakeðj-
urnar. Skömmu síðar tóku þeir einn-
ig yfir verslanakeðjuna 10-11 og voru
þannig komnir með ríflega helm-
ingshlutdeild í íslenska matvöru-
markaðnum og hjólin voru farin að
snúast af alvöru hjá hinum rétt svo
þrítuga Jóni Ásgeir Jóhannessyni.
Eftir að hafa náð yfirburðastöðu
á íslenskum smásölumarkaði var
ákveðið að herja á Bretland og má
segja að með útrás Jóns Ásgeirs í
kringum aldamótin hafi nýyrðið „út-
rásarvíkingur“ orðið til. Jón Ásgeir
fór mikinn í kaupum á verslanakeðj-
um í Bretlandi og Danmörku. Hann
keypti meðal annars Illum og Maga-
sin du Nord. Á síðasta ári átti Jón
Ásgeir, í gegnum Baug, meðal ann-
ars fyrirtækin House of Fraser, Aur-
um Holdings, Goldsmiths, Mappin
& Webb, Jane Norman, Mosaic Fas-
hions, Karen Millen, Osasis, Princ-
iples, Coast, Warehouse, French
Connection og Debenhams. Hann
er með tugi þúsunda starfsmanna í
vinnu í rúmlega 3.700 verslunum úti
um allan heim. Komið hefur fram í
fjölmiðlum að staða einhverra þess-
ara fyrirtækja, sem mörg hver eru
meðal rótgrónustu fyrirtækja Bret-
lands, þykir uggvænleg.
101 lúxuslíf
Velgengni í viðskiptalífinu hefur gert
Jóni Ásgeiri og konu hans kleift að
lifa hátt og það gera þau. Bæði ber-
ast þau á og vekja athygli fjölmiðla.
Eftir að hann fór eins og stormsveip-
ur um hið breska „high street“ hafa
fjölmiðlar þar í landi sýnt hinum síð-
hærða og svartklædda viðskiptajöfri
mikla athygli. Jón Ásgeir festi kaup
á einni íburðarmestu glæsisnekkju
sem sögur fara af hér á landi og
nefndi hana 101. Snekkjan er innrétt-
uð í stíl við samnefnt hótel Ingibjarg-
ar Pálmadóttur, erfingja Hagkaups-
veldisins og eiginkonu Jóns Ásgeirs, í
miðborg Reykjavíkur. Hjónin virðast
hafa sérstakan áhuga á að kenna sig
við póstnúmerið fræga, því svartmál-
uð einkaþota þeirra hjóna ber einnig
sama nafn og eru íburðarmiklar inn-
réttingar hennar í sama stíl og bæði
hótelið og snekkjan.
Snekkjan var sérsmíðuð af hol-
lensku skipasmíðastöðinni Heesen.
Hún er alls 44 metra löng og mið-
að við núgildandi gengi krónunnar
má ætla að hún sé metin á 4,4 millj-
arða króna. Í snekkjunni eru meðal
annars fimm sérinnréttuð svefnher-
bergi auk aðstöðu fyrir skipstjóra og
níu manna áhöfn. Þá er í snekkjunni
glæsileg borðstofa og bar, svo fátt eitt
sé nefnt. Vélin er 7.500 hestöfl og nær
25 hnúta hraða. Snekkjan er leigð út
á vegum ferðaþjónustufyrirtækis
Ingibjargar sem sérhæfir sig í lúxus-
ferðum fyrir auðkýfinga. Ekki er vitað
hvað kostar að leigja skútuna en ljóst
er að vikuverðið hleypur á tugum
milljóna króna með áhöfn og öllu.
Íbúðir fyrir milljarða
Í janúar á síðasta ári festi Jón Ásgeir
kaup á tveimur íbúðum á Manhatt-
an-eyju í New York. Talið er að íbúð-
irnar séu samtals 650 fermetrar að
stærð. Þær eru í einu dýrasta húsi á
Manhattan sem er bæði íbúðarhús
og hótel.
Vefurinn AMX greindi frá því
að hjónin hefðu greitt í heildina
24 milljónir dollara, eða 2,9 millj-
arða króna á núgildandi gengi, fyrir
íbúðirnar tvær og þótti fjölmiðlum
í borginni þau hafa gert góð kaup.
70 fermetra svalir á 16. hæð húss-
ins fylgja annarri íbúðinni, auk þess
sem tvennar stórar svalir til viðbótar
eru á 18. hæð hússins. Húsið sjálft er
blanda af íbúðarhúsi og hóteli. Íbúar
njóta sólarhringsþjónustu frá nudd-
urum, matreiðslumönnum þjón-
um og ræstingafólki. Þar að auki er
í íbúðinni líkamsræktarstöð, bar og
margt fleira sem tíðkast að sé í húsa-
kynnum hinna moldríku íbúa á Efri-
Manhattan.
Ríkuleg góðgerðarstarfsemi
Þrátt fyrir að lifa hátt og njóta lífs
milljarðamæringa hefur hann einn-
ig hjálpað lítilmagnanum. Jón Ás-
geir og Baugur hafa tekið virkan þátt
í góðgerðarstarfsemi og stutt við fjöl-
mörg góð málefni. Mörg hundruð
milljónir króna hafa farið í góðgerð-
armál á undanförnum árum.
Jón Ásgeir Jóhannesson lifir hratt. Hann er með bíladellu á háu stigi. Þrítugur var hann orðinn umsvifamestur
allra á smásölumarkaðnum á Íslandi og á næstu árum lagði hann undir sig hverja verslanakeðjuna á fætur ann-
arri í Bretlandi og Danmörku. Honum er lýst sem glaumgosa, þó vinir hans segi hann feiminn. Hann er í fjár-
hagslegri sjálfheldu. Á gríðarlegar eignir en á móti eru gríðarlegar skuldir. Vandinn er að eignirnar eru illselj-
anlegar og það er hvergi farið að rofa til. Íslenska ríkið gæti mögulega tekið eignir Jóns Ásgeirs upp í skuldir.
valGEIR ÖRN RaGNaRSSON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Bónusfeðgar jón Ásgeir og
jóhannes í árdaga veldisins.