Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Side 15
Laugardagur 3. janúar 2008 15Helgarblað
grein blaðsins kemur jafnframt fram
að íslenska ríkið hyggist endurselja
eignirnar, en aðstæður til þess nú um
stundir eru mjög erfiðar vegna lausa-
fjárkreppunnar.
Davíð Oddsson hefur furðað sig
á því hvernig það gat gerst að einn
maður skyldi geta komist í þá stöðu
að skulda þúsund milljarða króna í ís-
lenskum bönkum. Þó hann hafi aldrei
sagt beint út hvern hann átti við dylst
það fáum að hann átti við Jón Ásgeir.
Sjálfur hefur Jón Ásgeir sagst ekki
skulda eins mikið og Davíð sagði. Það
er mat viðmælenda DV úr fjármála-
heiminum að framtíðin sé að miklu
leyti komin undir lánardrottnum. Það
hjálpi honum vissulega hversu stór
og farsæll hann hefur verið í viðskipt-
um hingað til. Örlögin ráðist þó ekki
aðeins í íslensku bönkunum, Lands-
bankanum, Kaupþingi og Glitni,
heldur einnig í erlendum bönkum á
borð við The Royal Bank of Scotland
sem hafa með málefni Baugs að gera.
Þegar DV leitaði svara hjá Baugi
Group í Bretlandi var vísað á sjálfstætt
starfandi almannatengslafyrirtæki, en
þar var lokað vegna jólafría. Gunnar
Sigurðsson, forstjóri Baugs, hafði ekki
svarað spurningum DV í tölvupósti
þegar blaðið fór í prentun.
Betri í smásölu en í
kauphallarbraski
Eitt mesta áfall Jóns Ásgeirs í við-
skiptaheiminum hlýtur að tengjast
FL Group, sem skilaði 67 milljarðra
króna tapi árið 2007. Þrátt fyrir að-
gerðir til styrktar félaginu á síðasta
ári lækkaði markaðsvirði þess gríð-
arlega, eða um 200 milljarða króna,
frá því það reis sem hæst. FL Group
var breytt í Stoðir og þykir mörg-
um ævintýrið vera vitnisburður um
áhættusækni útrásarvíkinganna. Jón
Ásgeir hefur verið sagður hafa haft
áhyggjur strax árið 2006 af að Hann-
es Smárason tefldi of djarft í fjárfest-
ingum sínum. Jón Ásgeir aðhafðist
hins vegar ekkert fyrr en hann varð
stjórnarformaður í júní árið 2007. Í
desember sama ár var ráðist í mis-
heppnaðar aðgerðir til að bjarga FL
Group. Hannes Smárason var lát-
inn víkja úr forstjórastól og Jón Ás-
geir jók hlut sinn í félaginu í 37 pró-
sent fyrir samtals 54 milljarða króna.
Vonir stóðu til að hægt yrði að bjarga
FL Group með þessum aðgerðum.
Allt kom fyrir ekki og FL Group hélt
áfram að tapa.
Vangaveltur hafa verið uppi um
að Jón Ásgeir geti ekki haft nægilega
yfirsýn, enda með þúsund bolta á
lofti eins og einn vinur hans segir um
hann. Á aðalfundi FL Group lýsti Jón
Ásgeir því yfir að 6,2 milljarða króna
rekstrarkostnaður félagsins hefði
komið honum verulega á óvart.
Hvar stendur hann í dag?
Málsmetandi maður í viðskiptalíf-
inu telur að mistök Jóns Ásgeirs
eftir á að hyggja hafi verið að halda
sig ekki í þeim geira sem hann kann
best á, í smásölu. Áhersla hans á
að eignast banka hafi verið röng,
enda henti bankastarfsemi þeim
síður sem eru mjög áhættusækn-
ir. „Líklega er nettóstaðan neikvæð
eins og hún er í dag. Menn eins og
hann gefast hins vegar aldrei upp
og jafnvel þó hann myndi missa
allt mun hann alltaf fara á fullt aft-
ur. Það er eðli frumkvöðla,“ segir
heimildarmaður DV.
Jón G. Hauksson, ritstjóri
Frjálsrar verslunar, segir erfitt að
meta stöðu Baugs nú um stund-
ir. „Þetta snýst allt um seljanleika
eigna í þessum fyrirtækjum og
miðað við ástandið í heiminum
í dag verð ég að draga þá ályktun
að seljanleiki þeirra sé mjög lítill.
Ég geri ráð fyrir því að staða flestra
viðskiptajöfra landsins sé mjög
erfið og allir í mikilli varnarvinnu.
Vandinn er að þeir skulda mik-
ið, en seljanleikinn og virði eigna
hefur lækkað mikið. Þá er viðbúið
að tekjur þessara fyrirtækja muni
dragast saman, þannig að það er
mjög líklegt að það verði samdrátt-
ur í sölu á fatnaði og tískuvörum,“
segir hann.
Blaðamaður hjá virtu bresku
viðskiptablaði, sem skrifað hefur
mikið um Jón Ásgeir, segir í við-
tali við DV að ómögulegt sé að
meta stöðu Jóns Ásgeirs á þessari
stundu. Hins vegar megi segja að
Baugur sé í erfiðri stöðu. Sá sem á
skuldirnar á fyrirtækið. Hann seg-
ir breska fjölmiðla ekki aðeins vera
áhugasama um Jón Ásgeir, heldur
hafi þeir hann beinlínis á heilan-
um. Klæðnaður hans og framkoma
vekja endalausa athygli fjölmiðla.
Þetta er saga mannsins sem kom
út úr buskanum og keypti Bret-
land upp. Þetta sé sagan af risi og
mögulega falli auðjöfurs.
Leyndardómsfullur
Greinilegt er að Jón Ásgeir hefur
enn mikil tengsl inn í bankana.
Þannig kom hann mörgum á óvart
þegar hann náði að fjármagna kaup
sín í gegnum félagið Rauðsól á öll-
um fjölmiðlum 365. Kaupin þóttu
hin dularfyllstu, enda skammt lið-
ið frá því íslensku bankarnir höfðu
verið þjóðnýttir. Ágúst Ólafur Ág-
ústsson, alþingismaður Samfylk-
ingarinnar, kallaði forsvarsmenn
ríkisbankanna þriggja á sinn fund
til að krefja þá svara um hver fjár-
magnaði kaup Jóns Ásgeirs. Í kjöl-
farið sendi Jón Ásgeir lögmann
sinn á Ágúst Ólaf og hótaði honum
málsókn ef hann myndi ekki hætta
við að krefja forsvarsmenn bank-
anna um svör. Raunar virðist Jón
Ásgeir sækja í leyndina. Í viðtali
við DV í desember sagðist hann
vera farinn af landi brott, skömmu
eftir að hafa orðið fyrir aðkasti
mótmælenda í miðborginni. Hann
vildi hins vegar ekki gefa upp hvar
hann væri niðurkominn í heimin-
um.
Ljóst er að verulega hefur dreg-
ið úr slagkrafti Jóns Ásgeirs. Margt
bendir til að hann hafi farið of hratt
og þeir sem það gera ná að vaxa
mjög hratt þegar vel viðrar í efna-
hagslífinu, en erfiðleikarnir verða
þeim mun meiri í árferði eins og nú
ríkir. Í viðtali við DV á dögunum var
Jón Ásgeir þó rólegur: „Ég sef bara
mjög vel, hef engar áhyggjur og
hreina samvisku.“
Fjölmiðlamaður Fjölmiðlar
sýna jóni Ásgeiri athygli, hvar
sem hann kemur.
101 Snekkja jóns Ásgeirs og Ingibjargar
er hin glæsilegasta. Mynd Monaco eye
auðmaður og forsetafrú jón
Ásgeir hefur notið liðsinnis
forsetahjónanna.
Stóri dagurinn jón Ásgeir og
Ingibjörg Pálmadóttir giftu sig í
Fríkirkjunni haustið 2007.