Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2009, Blaðsíða 10
Þriðjudagur 3. febrúar 200910 Neytendur
Dísilolía
el
d
sn
ey
t
i
Grafarvogi verð á lítra 144,4 kr. verð á lítra 167,8 kr.
Skeifunni verð á lítra 142,8 kr. verð á lítra 164,2 kr.
Akranesi verð á lítra 144,4 kr. verð á lítra 167,8 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 138,7 kr. verð á lítra 162,1 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 139,7 kr. verð á lítra 163,1 kr.
Fellsmúla verð á lítra 139,8 kr. verð á lítra 162,2 kr.
umsjón: baldur guðmundsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
Ný ríkisstjórn Samfylkingar og vinstri grænna boðar að nú í febrúar muni frumvörp um
„greiðsluaðlögun“ og „greiðslujöfnun gengistryggðra lána“ líta dagsins ljós. Á manna-
máli má segja að fólki verði forðað frá gjaldþrotum og hægt verði að lengja í erlendum
lánum sem innlendum. Þá munu erlend lán að líkindum verða færð í íslenska mynt.
Fólki Forðað
Frá gjaldþroti
„Greiðsluaðlögun er hugsuð þannig
að fólki verði gefinn kostur á að semja
um skuldbindingar sínar án þess að
lenda í gjaldþroti,“ segir Árni Þór Sig-
urðsson, þingmaður Vinstri hreyfing-
arinnar - græns framboðs, spurður í
hverju frumvarp um greiðsluaðlög-
un muni felast.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra kynnti á sunnudag stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Í kafl-
anum um aðgerðir í þágu heimilanna
segir meðal annars að ríkisstjórnin
muni í febrúar leggja fram frumvörp
til laga á Alþingi um greiðsluaðlög-
un og greiðslujöfnun gengistryggðra
lána.
Verði ekki gjaldþrota
„Í dag er það þannig að fyrirtæki geta
gert nauðarsamninga þegar þau eru
komin í þrot. Þá er samið við lánar-
drottna um að þau greiði einhvern
hluta af skuldum sínum en restin er
þá felld niður, takist um það samn-
ingar. Það gerist þá án þess að þau
lendi í gjaldþroti,“ segir Árni Þór.
Engar sambærilegar heimildir eru
um þetta hvað einstaklinga varðar.
Árni segir að í dag séu lög þannig að
tíu ára þrautaganga geti beðið þeirra
sem lendi í gjaldþroti. „Víða erlend-
is geta einstaklingar fengið nauða-
samninga eða greiðsluaðlögun um
að gera upp skuldbindingar sínar á
lengri tíma eða samið um að greiða
tiltekið hlutfall skuldarinnar. Slík lög
gætu hjálpað mörgum hér á landi,“
segir Árni.
Lengt í lánum
Árni bendir á að eftir áramótin hafi
verið tekin upp svokölluð greiðslu-
jöfnunarvísitala á verðtryggð lán.
Upphæðin sem munar á verðtrygg-
ingunni og þeirri vísitölu fari þá inn
EGó vErður N1
N1 mun í dag ljúka breytingu
á sjö mannlausum eldsneytis-
stöðvum Egós. Þær munu fram-
vegis heita og verða hluti af þjón-
ustuframboði N1. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá félaginu.
Stöðvarnar sem um ræðir eru við
Salaveg, Smáralind, Holtagarða,
Fellsmúla, Staldrið og Tryggva-
braut á Akureyri. Jafnframt mun
N1 hefja birtingu á eldsneyt-
isverði á netinu. Þar má finna
lægsta verðið og það algengasta
en hin olíufélögin hafa öll um
nokkurt skeið birt eldsneytisverð
sitt á veraldarvefnum.
Sæktu um AF-
SláttArlyklA
Það getur margborgað sig að
sækja um afsláttarkort eða -lykla
hjá olíufélögunum. Með því er
víða hægt að spara sér tvær til
þrjár krónur á hvern lítra. Bif-
reiðaeigandi sem ekur 20 þúsund
kílómetra á ári eyðir um 300 þús-
und krónum í bensín. Þetta mið-
ast við að meðalverð á bensíni
sé um 150 krónur og bíllinn eyði
10 lítrum á hundraðið. Á einu ári
getur sá sem notar afsláttarlykil
sparað sér 6.000 krónur.
n Skíðagarpur beið í
hátt í tvo klukkutíma í
röð við skíðaleiguna í
Bláfjöllum um helgina
til þess eins að komast
að því að einu stærð-
irnar sem eftir voru af
brettaskóm voru númer 41 og
niður úr og 48. Hópnum sem
beið var aldrei tilkynnt um hið
litla úrval.
n Lofið fær starfsfólk N1 Staðarskála.
Ferðalangur, sem þurfti á hressingu að
halda, kom við í þjónustustöðinni
á sunnudagskvöldið. Mjög
margt var um manninn enda
umferðin í báðar áttir nokkuð
þung. Þrátt fyrir mikið annríki
var sama og engin bið eftir
afgreiðslu, sem var
bæði skipulögð og
afkastamikil.
sendið lof eða lasT Á neYTendur@dV.is
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
á ákveðinn biðreikning sem bætist
aftan við lánið. Með öðrum orðum
má segja að þannig lækki greiðslu-
byrðin en lánið lengist. „Hugsunin
er að sambærilegt fyrirkomulag geti
átt við um gengistryggðu lánin líka,“
segir Árni.
Ingólfur H. Ingólfsson, annar eig-
enda spara.is, hefur varann á þegar
hann er spurður álits á þeim aðgerð-
um sem ríkisstjórnin boðar í þágu
heimilanna. „Þetta er nokkuð sem
menn hafa beðið lengi eftir en mað-
ur á eftir að sjá hvernig barnið mun
líta út,“ segir hann og bætir við: „Það
væri til dæmis mikið glapræði ef færa
ætti erlendu lánin í íslenska mynt á
núverandi gengi,“ segir hann.
Lánin verði lækkuð
Gísli Tryggvason, talsmaður neyt-
enda, segir í nýjum pistli á tals-
madur.is að brýnasta verkefni rík-
isstjórnarinnar sé að undirbúa
langtímalausnir og hrinda þegar í
stað í framkvæmd skammtímlausn-
um á skuldavanda heimilanna, bæði
vegna verðtryggðra íbúðalána í ís-
lenskum krónum og í erlendri mynt.
Hann vill enn fremur að höfuðstólar
lána verði lækkaðir. Í því sambandi
dugi ekki lausnir fyrir hvern og einn
heldur þurfi að taka með almennum
hætti á skuldabagga þeirra sem fest
hafa kaup á íbúðarhúsnæði og hafa
þegar orðið fyrir gríðarmikilli skulda-
aukningu vegna verðbólgu eða geng-
ishruns.
Frumvarp um greiðsluaðlögun verður
afgreitt í febrúar fólk mun geta samið
um greiðslur og niðurfellingu skulda eftir
atvikum nái frumvörp nýrrar ríkisstjórnar
fram að ganga. MyND phOtOS.cOM
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG
segir að fólk muni geta skuldbreytt
erlendum lánum í íslensk nái frumvarp
um slíkt fram að ganga.