Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2009, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 3. febrúar 2009 15Umræða
Hver er konan? „ragna Árnadóttir.“
Hvað drífur þig áfram? „bjartsýni.“
Hvar ert þú uppalin? „Lengst af í
vesturbæ Kópavogs. Þar undi ég mér
ágætlega.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „allt sem Maggi, maðurinn
minn, eldar.“
Hvaða bók ertu með á náttborð-
inu þínu þessa dagana? „i,
Claudius eftir robert graves.“
Hvert er uppáhaldshúsverkið
þitt? „að vasast í þvottinum.“
Hvernig tilfinning er það að vera
orðin ráðherra? „Þetta er mikil
ábyrgð en tilfinningin er góð.“
Ertu skráð í einhvern stjórn-
málaflokk? „Nei.“
Fannst þér beiting lögreglunnar
á piparúða gagnvart mótmæl-
endum við þinghúsið á dögun-
um aðfinnsluverð? „Ég tel að
lögregla hafi sinnt sínu hlutverki eins
vel og hún gat í þessum afar erfiðu
aðstæðum.“
Ertu hlynnt eða andvíg því að
íslenska lögreglan taki upp
notkun svokallaðra rafbyssna?
„Ég er hlynnt því að lögreglan hafi
nauðsynleg tæki en hef ekki tekið
afstöðu til rafbyssna.“
Finnst þér þörf á að efla íslensku
sérsveitina enn frekar? „Sérsveitin
hefur verið efld á undanförnum
árum og hefur staðið sig vel í sínum
störfum.“
Hefðirðu áhuga á að starfa
áfram sem dómsmálaráðherra
eftir þingkosningarnar í apríl ef
það stæði til boða? „Ég er ekki á
leiðinni í framboð ef það er
spurningin.“
Hver er draumurinn? „að veiða
urriða í Laxárdal við sólsetur í
dúnalogni.“
Hvað finnst þér um nýja ríkisstjórn?
„Ég veit það ekki. Mér er svo sem alveg
sama.“
Óttar Pétursson
19 Ára NÁMSMaður.
„Mér líst vel á hana. Ég held að hún
muni ná miklum árangi á þessum 80
dögum sem hún verður við völd.“
Hjálmar ÞÓr arnarson
19 Ára NeMi
„Þetta eru allt sömu rotturnar. Það
skiptir engu máli hver tekur við.“
Óli jÓHann GrindErud
24 Ára.
„Hún er bara ný, ég get ekki sagt neitt
um hana núna.“
ulrika scHubErt
27 Ára NÁMSMaður
Dómstóll götunnar
raGna árnadÓttir tók við
starfi dómsmálaráðherra á sunnu-
daginn í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar
og vinstri - grænna. Hún er hlynnt því
að íslenska lögreglan hafi nauðsyn-
leg tæki en hefur ekki tekið afstöðu
til notkunar rafbyssna. ragna segir
tilfinninguna að vera orðin ráðherra
góða en kveðst ekki á leið í framboð.
Kópavogsmær sem
les um Kládíus
„Hún er skárri en sú sem var. Ég hef
mikla trú á jóhönnu.“
kristjana arnardÓttir
50 Ára MatSveiNN.
maður Dagsins
Nýafstaðið stjórnarsamstarf varð
ekki sá spútnik sem margir von-
uðust eftir. Yfirgnæfandi meiri-
hluti þingmanna hefur eflaust
skapað andrúmsloft værukærð-
ar og slævt vitund margra. Fram-
sóknarfylgjan lék áfram lausum
hala og engu afgerandi var breytt.
Og nú, þegar ævintýrið er úti og
fylkingarnar sundurorða, er það
hlutskipti Samfylkingar að leiða
nýja ríkisstjórn meðan Sjálfstæð-
isflokkurinn situr eftir, valdalaus.
Akkilesarhæll Samfylkingar í fyrri
stjórn var hugmyndafræði Sjálf-
stæðisflokksins. Viðspyrnan hvarf
frammi fyrir frjálshyggjupostul-
unum sem létu engan bilbug á
sér finna, voru búnir að sannfæra
40% þjóðarinnar um ágæti sitt og
bættu síðan við fylgi Samfylking-
ar. Af þessum sameinaða hópi sér
aðeins um helmingurinn ennþá
ljósið.
Minnihlutastjórnin nú er neyð-
arstjórn, brú til kosninga en um
leið ákveðin tilraun. Lukkist hún
má búast við áframhaldi og til-
komu Framsóknarflokks. Guð-
móðir þessarar ríkisstjórnar, Jó-
hanna Sigurðardóttir, er flestum
Íslendingum mjög ásættanleg.
Kostir hennar eru skörungsskap-
ur, staðfesta og hreinskilni. Ein-
mitt það sem við þurfum. Hún
hefur ekki verið orðuð við klíku-
stjórnmál, sjálftöku eða spillingu.
Skjöldur hennar er hreinn, ein-
mitt það sem við þurfum. Hún hef-
ur reynslu, þekkingu og þor. Ein-
mitt það sem við þurfum. Hún er
auðvitað ekki blásaklaus af fyrra
stjórnarsamstarfi en sú eina sem
þó stóð í lappirnar.
Jóhanna vildi sinn tíma og hann
er núna. Margir sjá rautt en í ljósi
fenginnar reynslu hlýtur það að
teljast skárra en blátt. Kannski það
breytist eftir gagngera endurskoð-
un en þangað til skal það vera rautt
og því segi ég: Verði Jóhönnu að
góðu og gangi henni vel.
Rautt skal það vera
kjallari
svona er íslanD
1 Playboy vill ornellu
forráðamenn Playboy eru áhugasamir
um að setja í blaðið myndaseríu af
íslensku ofurfyrirsætunni Ornellu
thelmudóttur.
2 Fyrsta svikna kosningaloforð
obama
barack Obama hefur nú þegar svikið sitt
fyrsta kosningaloforð. Hann hafði lofað
að birta öll lagafrumvörp, nema
neyðarlög, minnst fimm dögum áður en
þau yrðu samþykkt. Nú hefur hann
brotið gegn því.
3 klám í beinni útsendingu frá
superbowl
Áhorfendur Comcast-kapalstöðvarinnar í
sáu óvænt tíu sekúndna bút úr
klámmyndbandi þegar verið var að sýna
frá úrslitaleik NfL-deildarinnar.
4 sjálfumglaðir sjálfstæðismenn
guðmundur gunnarsson, formaður
rafiðnaðarsambands Íslands, telur
sjálfstæðismenn ekki hafa sýnt næga
auðmýkt eftir að hafa dottið úr ríkisstjórn.
5 nemendur sendir heim úr
frosnum skólastofum
Hitakerfið bilaði í Sæmundarskóla um
helgina með þeim afleiðingum að
skólastofur voru frosnar í gærmorgun.
6 lítið upp úr stóriðju að hafa
indriði H. Þorláksson, fyrrverandi
skattstjóri, segir litlar tekjur verða eftir á
Íslandi af stóriðju.
7 Veita afslátt af leiguverði
byggingafélag námsmanna veitir afslátt
af leiguverði vegna verðbólgu.
mest lesið á dv.is
lÝÐur árnason
heilbrigðisstarfsmaður
skrifar
Skjöldur hennar er
hreinn, einmitt það
sem við þurfum. Hún
hefur reynslu, þekk-
ingu og þor. Einmitt
það sem við þurfum.