Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2009, Qupperneq 16
Þriðjudagur 3. febrúar 200916 Ættfræði
Bernharð S. Haraldsson
fyrrv. skólameistari verkmenntaskólans á akureyri
Bernharð Sigursteinn fæddist í Ár-
nesi í Glerárþorpi en ólst upp á Ak-
ureyri. Hann lauk stúdentsprófi frá
MA 1959, stundaði nám í Þýska-
landi 1959-’60 og við HÍ 1962-’66 en
þaðan lauk hann BA-prófi í landa-
fræði og mannkynssögu auk prófa
í uppeldis- og kennslufræði. Þá var
hann við nám í hagrænni landa-
fræði í Kaupmannahöfn 1988-’89.
Bernharð var kennari við Gagn-
fræðaskóla Akureyrar 1960-’62,
við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar í
Reykjavík 1966-’67, við Gagnfræða-
skóla Akureyrar 1967-’81, var yf-
irkennari þar 1981-’82, skólastjóri
1982-’83 og skólameistari Verk-
menntaskólans á Akureyri 1983-
’99. Bernharð starfaði í mörg ár að
ferðamálum, m.a. sem leiðsögu-
maður. Hann var formaður Stúd-
entafélags Akureyrar 1968-’69,
formaður Lyftingaráðs Akureyrar
1977-’81, hefur verið félagi í Rotary-
klúbbi Akureyrar frá 1984 og forseti
klúbbsins 1990-’91, sat í Menning-
armálanefnd Akureyrar 1992-’96
og varamaður 1996-’98, sat í stjórn
Minjasafnsins 1992’96, hefur ver-
ið formaður nefndar um ritun sögu
Akureyrar frá 1992, er í Félagi hjarta-
sjúklinga á Eyjafjarðarsvæðinu og
var ritari þess 1997-’98.
Árið 2005 kom út eftir Bernharð
bókin Um verkmenntun við Eyja-
fjörð og Verkmenntaskólinn á Ak-
ureyri 1984-2004 (Hólar, Akureyri)
en nú vinnur hann, ásamt Baldvini
Bjarnasyni og Magnúsi Aðalbjörns-
syn, að ritun sögu Gagnfræðaskóla
Akureyrar sem væntanleg er síðar á
árinu. Enn fremur hefur Bernharð
fengist við ættfræði og héraðssögu.
Hann hefur unnið, ásamt öðrum, að
útgáfu ábúendatals í Eyjafirði fram-
an Akureyrar 1703-2000 sem vænt-
anlegt er hjá Sögufélagi Eyfirðinga
og vinnur nú, ásamt Oddi Helga-
syni æviskrárritara, að ábúendatali
Skriðuhrepps hins forna (Öxnadals
og Hörgárdals).
Fjölskylda
Bernharð kvæntist 22.10. 1966 Ragn-
heiði Hansdóttur, f. 18.7. 1942, tann-
lækni. Hún er dóttir hjónanna Hans
Guðnasonar, bónda í Eyjum og síðar
á Hjalla í Kjós, og Unnar Hermanns-
dóttur, húsfreyju og kennara.
Börn Bernharðs og Ragnheiðar
eru Haraldur, f. 12.4. 1968, málfræð-
ingur við Stofnun Árna Magnús-
sonar í íslenskum fræðum, en kona
hans er Hanna Óladóttir, aðjunkt
við menntavísindasvið Háskóla Ís-
lands, og eru börn þeirra Freysteinn,
f. 22.1. 1998, d. 30.1. 2000, Þórodd-
ur, f. 29.9. 1999, d. 26.2. 2001, Hildi-
gunnur, f. 14.8. 2002 og Örnólfur, f.
14.8. 2002; Hans Bragi, f. 12.9. 1972,
framkvæmdastjóri Enex Kína í Pek-
ing, en kona hans er Li Hua og dæt-
ur þeirra Freydís Xuan, f. 11.9. 2002
og Sædís Hui, f. 4.4. 2006; Arndís, f.
4.11. 1977, hjúkrunarfræðingur hjá
International SOS í Lundúnum; og
Þórdís, f. 4.11. 1977, starfsmaður Ar-
ion verðbréfavörslu.
Foreldrar Bernharðs voru Har-
aldur Norðfjörð Ólafsson, f. 22.10.
1916, d. 1.7. 1971, sjómaður og neta-
gerðarmaður á Akureyri, og k.h.,
Þórbjörg Sigursteinsdóttir, f. 12.10.
1919, d. 9.6. 1986, húsmóðir og iðn-
verkakona.
Ætt
Haraldur var sonur Ólafs, sjómanns
og netagerðarmanns á Akureyri, afa
Stefáns Björnssonar, b. á Einars-
stöðum, Ólafs Birgis Árnasonar hrl.,
föður Svölu lögfræðings, og langafi
Ármanns Kristins Ólafssonar alþm.
og Kristínar Margrétar Jóhanns-
dóttur íslenskufræðings. Ólafur
var sonur Jakobs á Efra-Skálateigi
í Norðfirði Þorsteinssonar Jakobs-
sonar, skálds og b. á Ísólfsstöðum á
Tjörnesi. Móðir Þorsteins var Vig-
dís Jónsdóttir, systir Þorsteins, föð-
ur Jóns, ættföður Reykjahlíðarættar.
Móðir Jakobs á Efri-Skálateigi var
Gunnvör Jónsdóttir. Móðir Ólafs var
Sigríður Árnadóttir.
Móðir Haralds var Kristbjörg
Jónsdóttir, frá Austari Krókum í
Fnjóskadal, föðurbróður Theódórs
Friðrikssonar rithöfundar og bróð-
ur Dórotheu, langömmu Kristins
G. Jóhannssonar, listmálara á Ak-
ureyri, og Arngríms B. Jóhanns-
sonar, fyrrv. forstjóra Atlanta. Jón
var sonur Jóns, b. í Austari Krók-
um, sonar Magnúsar Jónssonar og
Rósu Brandsdóttur. Móðir Jóns var
Rannveig Jónsdóttir frá Ásláksstöð-
um, systir Kristínar Katrínar, ömmu
dr. Sigfúsar Blöndals, bókavarðar og
orðabókarhöfundar, og langömmu
Björns Blöndals rithöfundar. Móð-
ir Kristbjargar var Guðrún Kristín
Pálsdóttir frá Neðribæ.
Þórbjörg var dóttir Sigursteins,
b. á Neðri-Vindheimum í Hörgár-
dal, bróður Kristínar, ömmu Sig-
urðar J. Sigurðssonar, fyrrv. forseta
bæjarstjórnar Akureyrar; bróður
Hansínu og Þóreyjar, móður Stein-
þórs, kaupmanns í Vörubæ. Sigur-
steinn var sonur Steinþórs, b. á Ein-
hamri, bróður Kristjáns, afa Björns
Jónssonar, forseta ASÍ og ráðherra.
Steinþór var einnig bróðir Rósu í
Nýjabæ á Dalvík, langömmu Jóns
Hjaltasonar sagnfræðings og Krist-
jáns Þórs Júlíussonar alþm. Stein-
þór var sonur Þorsteins, b. á Öxn-
hóli Þorsteinssonar, Sigurðssonar,
bróður Rósu, ömmu Vilhjálms Stef-
ánssonar landkönnuðar.
Móðir Þórbjargar var Septína,
systir Jónasínu, ömmu rithöfund-
anna Ingimars Erlends og Birg-
is Sigurðssona. Bróðir Septínu var
Magnús, afi Magnúsar Skúlasonar
geðlæknis, Páls Skúlasonar, heim-
spekings og fyrrv. rektors HÍ, Skúla
Skúlasonar, rektors Hólaskóla, og
séra Þórhalls Höskuldssonar, föð-
ur Höskuldar Þórhallssonar alþm.
Septína var dóttir Friðfinns, b. í Há-
túni í Hörgárdal Gíslasonar, bróður
Rósu, móður Gísla R. Magnússon-
ar leikara, föður Magnúsar, fyrrv.
bankastjóra. Önnur systir Friðfinns
var Lilja, móðir Friðfinns Guðjóns-
sonar leikara, afa Ragnars Aðal-
steinssonar hrl.
Sigríður Guðmundsdóttir Schiöth,
tónlistarkennari, organisti og söngs-
tjóri, fæddist á Lómatjörn í Grýtu-
bakkahreppi í Höfðahverfi og ólst
þar upp og á Akureyri þar sem hún
nam píanóleik. Sigríður var í námi
á Laugarvatni í tvo vetur, var á Hús-
mæðraskóla á Ísafirði og sótti fjölda
námskeiða í Reykjavík og ýmis tón-
listarnámskeið í Skálholti.
Sigríður var einsöngvari í Sam-
kór Róberts Abrahams Ottóssonar
og í Kantötukórnum á Akureyri, var
söngkennari í Barnaskóla Grenivík-
ur 1935, í Hólshúsum 1948-’76 og á
Húsavík 1976-’83. Þá var hún fjóra
vetur við kennslu í Reykjavík og
Hafnarfirði og kenndi við Barnaskól-
ann á Hrafnagili.
Sigríður var organisti Grundar-
kirkju 1949-’76, Saurbæjarkirkju og
Möðruvallakirkju í Eyjafirði 1950-
’76, á Húsavík 1976-’83 og aftur í
Grundarkirkju 1983-’94. Hún æfði
og stjórnaði hundrað manna kór
Húnvetninga 1974 og Þingeyinga-
kór í tvo vetur. Hún stofnaði Kór eldri
borgara á Akureyri 1986 og stjórnaði
honum um árabil. Þá stofnaði hún
kvennakór á Akureyri sem nefndur
var Ömmukórinn og stjórnaði hon-
um lengi.
Árið 1996 kom út bókin Lífsgleði
en þar er að finna endurminning-
ar Sigríðar. Sigríður skrifaði greinar
og frásagnir í blöð og tímarit og las
fjölda sagna og kvæða í útvarp. Hún
var formaður Héraðssambands eyf-
irskra kvenna 1972-’76 og var for-
maður Kirkjukórasambands Eyja-
fjarðar 1989-’90.
Sigríður var sæmd fálkaorðunni
1991 fyrir störf sín að söngmálum.
Eiginmaður Sigríðar var Helgi
Hinrik Schiöth, f. 21.11. 1911, d.
18.4. 1998, lögregluþjónn á Akureyri,
bóndi í Hólshúsum og síðar starfs-
maður KÞ á Húsavík.
Börn Sigríðar og Helga: Reynir
Helgi Schiöth, f. 1941, bóndi í Hóls-
húsum; Margrét Anna, f. 1945, lengi
skrifstofumaður á Húsavík; Valgerð-
ur Guðrún Schiöth, f. 1949, húsfreyja
á Rifkelsstöðum.
Sigríður átti tíu systkini sem eru
nú öll látin
Foreldrar Sigríðar voru Guð-
mundur Sæmundsson, bóndi á
Lómatjörn í Höfðahverfi, og k.h. Val-
gerður Jóhannesdóttir húsfreyja.
Meðal systkina Sigríðar var Sverr-
ir, bóndi á Lómatjörn, faðir Val-
gerðar, fyrrv. ráðherra og formanns
Framsóknarflokksins. Guðmund-
ur var sonur Sæmundar Jónassonar,
bónda í Gröf í Kaupangssveit, bróð-
ur Stefáns, bónda á Öngulsstöðum,
langalangafa Odds Helgasonar ævi-
skrárritara.
Valgerður var dóttir Jóhannes-
ar, b. á Kussungsstöðum Jónssonar
Reykjalíns, pr. á Þönglabakka Jóns-
sonar Reykjalíns, pr. á Ríp Jónssonar,
bróður Friðriks, langafa Ólafs, afa Ól-
afs Ragnars Grímssonar forseta.
Sigríður Guðmundsdóttir Schiöth
f. 3. febrúar 1914, d. 18. mars 2008
Merkir Íslendingar
30 ára
n Kristín Ingimundardóttir Hjallalundi 22, Akureyri
n Tinna Dröfn Marinósdóttir Hraunbæ 60,
Reykjavík
n Daði Heiðar Sigurþórsson Bókhlöðustíg 11,
Stykkishólmur
n Mariusz Andrzej Tersa Lækjasmára 13, Kópavogur
n Roman Chepchurenko Melum, Akranes
n Guðni Eiríkur Guðmundsson Æsufelli 6, Reykjavík
n Baldur Páll Hólmgeirsson Engjavegi 6, Ísafjörður
n Jón Halldór Brink Kristjánsson Helluvaði 9,
Reykjavík
n Kristján Helgi Jóhannsson Hátúni 24, Rey-
kjanesbær
n Guðrún Valdís Halldórsdóttir Andrésbrunni 10,
Reykjavík
n Ray Anthony Jónsson Laut 14, Grindavík
40 ára
n Jadwiga Piatkowska Stífluseli 11, Reykjavík
n Sigrún Berglind Grétars Mávabraut 4b,
Reykjanesbær
n Björgvin Guðjónsson Karfavogi 31, Reykjavík
n Áslaug Elín Reynisdóttir Framnesvegi 61,
Reykjavík
n Guðmundur Jensson Finnsbúð 12, Þorlákshöfn
n Svavar Rúnar Arngrímsson Laugarnesvegi 84,
Reykjavík
n Fríða Sveinsdóttir Brautarholti 28, Ólafsvík
n Arna María Sigurbjargardóttir Neðra-Holti,
Blönduós
n Sigurbjörg Róbertsdóttir Heiðarbrún 12,
Reykjanesbær
n Guðmunda Róbertsdóttir Sunnubraut 17,
Reykjanesbær
n Björn Gunnlaugsson Miðbraut 17, Seltjarnarnes
n Sveinn F Sveinsson Klapparstíg 1a, Reykjavík
n Jónína Guðjónsdóttir Sunnuholti 2, Ísafjörður
n Sigurborg Þorvaldsdóttir Háseylu 9, Njarðvík
n Jón Bergsson Vesturtúni 25, Álftanes
50 ára
n Arnar Karlsson Pósthússtræti 3, Reykjanesbær
n Sigurlaug Konráðsdóttir Ólafsbraut 36, Ólafsvík
n Hafdís Einarsdóttir Mosgerði 22, Reykjavík
n Sigurjóna Sigvaldadóttir Baugöldu 2, Hella
n Maria de Lurdes V P B Josézinho Kaupvangi 43,
Egilsstaðir
n Alvydas Butkus Nesvegi 2, Stykkishólmur
n Marek Jan Gieracki Kópavogsbraut 59, Kópavogur
n Ágústa Guðrún Geirharðsdóttir Fjallalind 123,
Kópavogur
n Elsa Rafnsdóttir Strandvegi 14, Garðabær
n Sigurþór Guðmundsson Breiðuvík 23, Reykjavík
n Sigurbjörg Halldórsdóttir Hlíðarhjalla 71,
Kópavogur
n Katrín Tryggvadóttir Tröllhólum 13, Selfoss
n Jóhann Ísberg Funalind 13, Kópavogur
60 ára
n Martea Guðlaug Guðmundsdóttir Illugagötu 59,
Vestmannaeyjar
n Trausti Tryggvason Silfurgötu 41, Stykkishólmur
n Sigríður Pálína Ólafsdóttir Breiðuvík 18,
Reykjavík
n Katrín Jónsdóttir Mánahlíð 12, Akureyri
n Sólveig Hafdís Haraldsdóttir Heiðargarði 8,
Reykjanesbær
n Guðríður Jóhannesdóttir Þórsgötu 16, Reykjavík
n Hrafnhildur Guðnadóttir Holtsbúð 31, Garðabær
n María Sigurðardóttir Hveralind 11, Kópavogur
n Guðrún Ágústa Sigurbentsdóttir Brúarási 2,
Reykjavík
n Ingrún Ingólfsdóttir Skipalóni 26, Hafnarfjörður
70 ára
n Bjarndís Júlíusdóttir Björtusölum 4, Kópavogur
n Gréta Haraldsdóttir Kórsölum 1, Kópavogur
E n rla Magnúsdóttir Bakkaflöt 5, Akranes
75 ára
n Emilía Jónsdóttir Jaðarsbraut 25, Akranes
n Louise Anna Schilt Bugðutanga 40, Mosfellsbær
80 ára
n Valdimar Kristinsson Kirkjusandi 1, Reykjavík
85 ára
n Alda J Sigurjónsdóttir Hraunbæ 103, Reykjavík
n Sigurrós G Þórðardóttir Hafnarbraut 31, Hólmavík
n Reynir Jónsson Smáragrund 7, Hvammstangi
n Vilborg Jóhannesdóttir Þórsgötu 12, Reykjavík
n Guðbjörg Sv Eysteinsdóttir Hjallabraut 33,
Hafnarfjörður
Til
haMingju
Með
afMælið!
70 ára sl. sunnudag