Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2009, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2009, Qupperneq 11
þriðjudagur 10. febrúar 2009 11Neytendur „Tilgangur félagsins er að stuðla að því að fasteignir verði ávallt sem tryggastar eignir og að gæta í hví- vetna hagsmuna fasteignaeigenda. Það geta sem sagt allir fasteignaeig- endur, einstaklingar, félög og fyrir- tæki geta gerst félagar,“ segir Sig- urður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, sem nú er 86 ára. DV hefur hafið samstarf við Hús- eigendafélagið. Lesendur blaðsins geta hér eftir sent fyrirspurnir um réttindi og skyldur húseigenda á netfangið neytendur@dv.is. Á hverj- um þriðjudegi mun Sigurður Helgi, eða einhver fulltrúi félagsins, svara þeim fyrirspurnum sem berast. Sjálfstætt félag Húseigendafélagið var stofnað árið 1923 og er almennt hagsmunafélag húseigenda, hvort sem fasteignin er einbýlishús, íbúð í fjöleignarhúsi, atvinnuhúsnæði, land eða jörð og hvort sem hún er til eigin nota eða leiguhúsnæði. Félagsmenn eru um átta þúsund og hefur farið jafnt og þétt fjölgandi undanfarna áratugi. Mest hefur fjölgunin verið meðal húsfélaga í fjöleignarhúsum. Þau njóta sérkjara og hver íbúðareig- andi öðlast full og sjálfstæð félags- réttindi. Sigurður segir algengt að fólk haldi að húseigendur verði sjálf- krafa meðlimir í félaginu. „Menn verða að ganga sérstaklega í félagið til að öðlast rétt á lögfræðiþjónustu og öðrum réttindum,“ segir hann en félagsmenn standa með félags- gjöldum undir starfseminni að öllu leyti. „Félagið nýtur ekki opinberra styrkja og stendur alfarið á eigin fót- um og er engum háð. Það er ekki rekið með hagnaði heldur einung- is með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi,“ útskýrir hann. Ódýr lögfræðiþjónusta Húseigendafélagið rekur sérhæfða lögfræðiþjónustu fyrir félagsmenn sína á þeim réttarsviðum sem varða fasteignir og eigendur þeirra. Lög- fræðiþjónustan hefur að sögn Sig- urðar verið þungamiðjan í starfsemi félagsins síðustu áratugi. „Við búum yfir mikilli og sérhæfðri þekkingu og reynslu á þessum sviðum lögfræð- innar,“ segir Sigurður, sem sjálfur er lögfræðimenntaður, en fyrir lög- fræðiþjónustu greiða félagsmenn verulega lægra verð en gengur og gerist hjá sjálfstætt starfandi lög- mönnum. Sigurður segir að félagið hafi alla tíð stuðlað að réttarbótum fyr- ir fasteignaeigendur. Það hafi meðal annars átt frumkvæði að húsaleigu- lögunum sem tóku gildi árið 1995. „Einnig má nefna fjöleignarhúsa- lögin auk þess sem félagið barðist lengi fyrir löggjöf um fasteignavið- skipti. Sú barátta bar þann árangur að vorið 2002 var sett vönduð lög- gjöf um fasteignakaup,“ segir hann en félagið hefur að hans sögn einn- ig komið að því að semja lagafrum- vörp um fasteignasala. Aðstoð við húsfundi Auk þess sem að ofan er talið ann- ast félagið ráðgjöf við húsfundi og býður félagsmönnum sín- um einnig lögfræðiaðstoð vegna leigusamninga og hugsanlegra vanefnda á þeim. „Í húsfunda- þjónustunni felst aðstoð og ráð- gjöf við undirbúning funda; dag- skrá, fundarboð, fundarstjórn og ritun fundargerða. Þessi þjónusta á að tryggja að rétt sé að öllu staðið svo það komi fólki ekki í koll síðar meir,“ segir hann en fundirnir eru haldnir á skrifstofu félagsins undir leiðsögn lögfræðinga og annarra sérfræðinga félagsins. Sigurður segir að þótt starfsemi félagsins sé öflug megi alltaf betur gera. „Það er forsenda fyrir öflugra og árangursríkara starfi að fleiri fast- eignaeigendur gangi í félagið. Hús- eigendur þurfa að vera á verði um hagsmuni sína og mikilvægi þess að þeir séu varðir,“ segir Sigurður en félagið er til húsa við Síðumúla 29 í Reykjavík. Á vefsíðunni huseig- endafelagid.is má finna ítarlegar upplýsingar um félagið auk þess sem lesa má fjöldann allan af grein- um um ýmis réttindi húseigenda og álitamál sem upp geta sprottið. Ár- gjald Húseigendafélagsins er 5.000 krónur en 4.900 krónur kostar að skrá sig. „Við búum yfir mikilli og sérhæfðri þekkingu og reynslu á þessum sviðum lögfræðinnar.“ BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is DV hefur hafið samstarf við Húseigendafélagið. Lesendur geta hér eftir sent fyrirspurnir á DV og verða fulltrúar Hús- eigendafélagsins til svara. Sigurður Helgi Guðjónsson hvet- ur húseigendur til að ganga í félagið. Fáðu svör hjá sérFræðingum Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins Segir félagið hafa á sínum snærum lögfræðinga sem hafa mikla reynslu í málefnum fasteignaeigenda. MyND KRiStiNN MAGNúSSON StarfSemi HúSeigenda- félagSinS er þríþætt 1. almenn hagsmunagæsla fyrir fasteignaeigendur. 2. almenn fræðslustarfsemi og upplýsingamiðlun. 3. ráðgjöf og þjónusta við félagsmenn, einkum lögfræðiaðstoð og ráðgjöf. Gæðabakstur ehf. Álfabakka 12 | 109 Reykjavík | S: 545 7000 Veljum íslenskt Gæða kleinur Orku- kubbur gott í dagsins önn...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.