Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Blaðsíða 2
Laganeminn og fasteignasalinn fyrr- verandi, Andrés Pétur Rúnarsson, hefur verið ákærður fyrir meiriháttar brot gegn almennum hegningarlög- um, skattalögum og lögum um bók- hald. Um er að ræða stórfelld skatt- svik sem Andrés Pétur framdi sem framkvæmdastjóri í þremur einka- hlutafélögum á árunum 2001-2005. Málið gegn Andrési Pétri verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Annað mál gegn Andrési Pétri verður sömuleiðis þingfest fyrir Hér- aðsdómi Vesturlands í dag. Í því er hann ákærður fyrir ölvunarakstur og fyrir að reyna að múta lögreglu- mönnum samkvæmt heimildum DV. Andrés Pétur Rúnarsson vildi ekki tjá sig um málin tvö þegar DV hafði samband við hann. „Hvaða mál eru það?“ sagði Andrés Pét- ur. Þegar blaðamaður sagði honum hvaða mál um ræddi sagði Andrés Pétur. „Ég vil ekki tjá mig um þetta. Ég sé enga frétt í þessu.“ Lánaði sjálfum sér milljónir Önnur ákæran gegn Andrési Pétri er í þremur liðum og ná ákæruliðirnir yfir starfsemi þriggja einkahlutafé- laga sem hann var skráður fyrir á ár- unum 2001 til 2005. þriðjudagur 3. mars 20092 Fréttir Tvö mál gegn fasteignasalanum fyrrverandi, Andrési Pétri Rúnarssyni, verða þingfest fyrir héraðsdómi í dag. Andrés Pétur er meðal annars ákærður fyrir meiri háttar hegningarlaga- og skattalagabrot, ölvun- arakstur og fyrir að reyna að múta lögreglumönnum. Andrés er þekktur sem einn helsti stuðningsmaður og kosningasmali Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og er stofnandi stuðningssíðu þingmannsins á Facebook. Andrés Pétur hefur áður hlotið dóm fyrir ölvunarakstur og fleira. LÖGREGLUmÖnnUm boðnaR mútUR InGI F. VILhjáLmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is „Ég vil ekki tjá mig um þetta. Ég sé enga frétt í þessu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.