Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2009 15Umræða
Hver er konan? „Magdalena.“
Hvað drífur þig áfram? „Metnaður
og löngun til að ná árangri í lífinu.“
Hvar ertu alin upp? „Í Vesturbæn-
um í Reykjavík.“
Hver er fyrsta minningin? „Ein af
mínum fyrstu minningum er þegar
ég keyrði framhjá Tjörninni í Reykjavík
og dáðist að fallegum gosbrunni sem
þar var.“
Áhugamál? „Hingað til hefur
tónlistin verið mitt helsta áhugamál
en einnig hef ég mjög gaman af því
að læra og lesa. Ekki má þó gleyma
listskautum en þá stundaði ég til
margra ára.“
Hvað gerir þú til að fá útrás?
„Þegar ég þarf að hreinsa hugann
reynist mér best að ganga á fjöll eða
stunda aðra útivist.“
Hvaða bók lastu síðast? „Ég er
mikill aðdáandi Arnaldar Indriðasonar
og hef verið að lesa bækurnar hans
hverja á fætur annarri undanfarið.“
Hvernig var að taka þátt í Ungfrú
Reykjavík? „Þetta var frábær
reynsla í alla staði og ég mæli
eindregið með því að ungar stúlkur
prófi þetta. Við lærðum að bera
okkur vel, koma fram og efldum
sjálfstraustið.“
Kom sigurinn þér á óvart? „Já,
hann kom svolítið á óvart. Ég var
svo ánægð með kvöldið í alla staði
og ánægð með sjálfa mig þannig að
sigurinn ofan á það var alveg til að
toppa þetta.“
Hvað er fram undan? „Fram undan
er skóli, vinna, fiðlan og svo fer að
styttast í undirbúning keppninnar
Ungfrú Ísland.“
Hver er draumurinn? „Draumur-
inn hefur alltaf verið að verða fræg-
ur fiðluleikari. Raunvísindi heilla mig
reyndar líka og á ég mér því annan
draum um að verða læknir. Ég vil því
umfram allt hafa allar dyr opnar og
mennta mig vel svo að ég geti látið
drauminn rætast.“
Hvernig líst þér á framboð Jóns baldvins til formanns samfylkingarinnar?
„Mér finnst eins og hans tími sé búinn.
Mér finnst bæði hann og Davíð vera
menn sem telja sig ómissandi en eru
það ekki.“
Tómas HolTon
44 áRA kEnnARI.
„Ég er ekki hrifin af því. Mér finnst Jón
Baldvin góður stjórnmálamaður en
hann er leiðinlegur.“
Una Tone BjaRnadóTTiR
32 áRA ATVInnUlAUS.
„Jón Baldvin er gamall skólafélagi
minn. Hann á að sinna sinni konu og
hætta þessu blaðri. Hann er búinn að
gera nógu illt hér á Íslandi.“
sigURðUR gUnnaR Bogason
70 áRA EllIlÍFEyRISÞEGI.
„Mér finnst að þessir gömlu mættu
bara fara. Jón Baldvin er þeirra á
meðal.“
PÁll HReindal gUnnaRsson
39 áRA öRyRkI.
Dómstóll götunnar
magdalena dUBiK, 21 árs
fiðluleikari, var kjörin fegursta stúlka
Reykjavíkur síðastliðinn föstudag á
Broadway. Hún segist hafa lært mikið
af þátttökunni í keppninni og hvetur
ungar stúlkur til taka þátt í fegurðar-
samkeppni.
Vill hafa allar
dyr opnar
„Ég veit það ekki alveg. Í fyrstu líst mér
allavega ekkert á það. Mér líst miklu
betur á Ingibjörgu.“
elísaBeT jónsdóTTiR
43 áRA RITARI.
maður Dagsins
Hugrekki til þess að taka á erfiðum
málum er sjaldgæft í stjórnmálum.
Það var fróðlegt fyrir mig, gamlan
vinstri mann, að fylgjast með róttæk-
um tilraunum fv. heilbrigðisráðherra
til að taka á lyfjasölum og skipulagi
í heilbrigðiskerfinu á skömmum ferli
sínum. Lyfjasalarnir kveinkuðu sér,
vissu auðvitað að hér væri að jafn-
aði hæsta lyfjaverð á Norðurlönd-
um en kenndu smæð markaðarins
um. Hagsmunaaðilar í heilbrigðis-
kerfinu, læknar, hjúkrunarfræðing-
ar og ljósmæður töluðu um aðför
að öryggi sjúklinga. Þó átti aðallega
að fækka stjórnendum og færa starf-
semi til staða, þar sem ódýrara væri
að reka hana, en standa vörð um
þjónustu við sjúklinga. Þessar mót-
bárur heilbrigðisstéttanna rifja upp
fyrir mér tilraun sem gerð var fyrir
um 20 árum til að skerða kjör lækna
með takmörkunum á námsferðum
þeirra erlendis, en þar njóta þeir
umtalsverðra forréttinda. Þá reis
einn talsmanna þeirra upp og hélt
því fram að hér væri um „helgan rétt
sjúklinga“ að ræða.
Með aðgerðum fv. heilbrigðisráð-
herra átti að spara nokkra milljarða í
ríkisrekstri, sem á árinu 2009 stefnir í
amk. 150 milljarða halla. Enginn fé-
laga Guðlaugs í ríkisstjórnarflokkun-
um fyrrverandi lyfti litla fingri til að
hrinda þeirri aðför sem að honum
var gerð úr öllum áttum þegar hann
hóf umbótatillögur sínar, nema þær
nöfnur Ásta Möller og Ásta Ragn-
heiður. Allir aðrir stóðu hnípnir hjá
og vonuðu að ekkert slettist nú á
þeirra góða orðspor. Sérstaklega var
aumkunarvert að aðrir félagar hans
í Sjálfstæðisflokknum skyldu ekkert
gera, sem þó þykjast mestir aðhalds-
menn í ríkisrekstri.
Núverandi heilbrigðisráðherra
Ögmundur Jónasson, sem aldrei
má sjá hár skert á höfði opinberra
starfsmanna, fer nú um landið í
jólasveinabúningi og boðar að ekk-
ert verði af skipulagsbreytingum í
íslensku heilbrigðiskerfi nema með
samþykki viðkomandi hagsmuna-
aðila. Það er því vonandi að þeir
sjálfir skynji ábyrgð sína og taki
á með okkur hinum og sníði sér
stakk eftir vexti. Lærdómurinn fyrir
stjórnmálamenn er hins vegar því
miður; Gerðu aldrei neitt sem rekst
á hagsmuni einhvers, vertu alltaf í
jólasveinafötunum, þá mun þér vel
farnast.
En kannski er Guðlaugur Þór
eini sjálfstæðismaðurinn sem eft-
ir er, sem hefur hugrekki til að fylgja
stefnu flokksins um að minnka hið
opinbera og fækka ríkisstarfsmönn-
um.
Hugrekki Guðlaugs Þórs
kjallari
svona er íslanD
1 Fegurðardrottning situr uppi
með „asnalegan“ titil
Hætt hefur við keppnina Fegurðardrottn-
ing Suðurnesja í ár.
2 Áttburamamman í klámið?
nadya Suleman (33) vakti heimsathygli
þegar hún eignaðist áttbura. Fyrir átti
hún sex börn. Vivid Entertainment hefur
boðið henni að leika í klámmynd fyrir
eina milljón dala.
3 segja Kolbrúnu falla í fúlan pytt
landsamband kvenna í Frjálslynda
flokknum lýsir furðu sinni á skrifum
kolbrúnar Bergþórsdóttur í Morgunblað-
inu um helgina.
4 jennifer dýrkar Brad á laun
„Jen geymir kassa í felum í fataskápnum
sínum þar sem hún geymir gömul
skilaboð, ástarbréf og krafs frá Brad og
þetta skoðar hún reglulega,“ sagði
vinkona hennar.
5 Hvarf 37 ára konu:
lögreglan er ráðþrota
Aldís Westergren hefur verið týnd síðan á
þriðjudag.
6 Hrikalegir hælar Victoriu
Beckham – mYndiR
Victoria hefur sagt að hún geti ekki
hugsað sér að ganga í flatbotna skóm.
7 sjö á launaskrá Happaþrenn-
unnar
Sjö einstaklingar hafa unnið launamið-
ann hjá happdrættinu en hann veitir 100
þúsund á mánuði í tíu ár.
mest lesið á DV.is
gUðmUndUR ólaFsson
lektor
„Sérstaklega var aumkunarvert
að aðrir félagar hans í
Sjálfstæðisflokknum
skyldu ekkert gera, sem
þó þykjast mestir að-
haldsmenn í ríkisrekstri. “
1
2
3
4
5
6
7