Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Side 4
þriðjudagur 3. mars 20094 Fréttir Fjölmargir hafa verið yfirheyrðir vegna gruns um ólöglegt vændi og mansal: Catalinu rannsökuð áfram Rannsóknardeild lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu hefur í liðinni viku yfirheyrt fjölmarga aðila í tengslum við rannsóknina á meintri ólöglegri vændisstarfsemi og mansali Catal- inu Mikue Ncogo. Meðal þeirra sem voru yfirheyrðir voru fjórar vændis- konur sem grunur leikur á að Catal- ina hafi gert út í íbúð á Hverfisgötu 105. Rannsókn málsins heldur áfram og mun tíminn leiða í ljós hvort Cat- alina verður sótt til saka eða ekki, samkvæmt upplýsingum frá rann- sóknardeild lögreglunnar. Catalinu var sleppt úr gæsluvarð- haldi síðastliðinn föstudag en hún hafði verið handtekin í Leifsstöð viku fyrr. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeildinni var Catalinu sleppt úr haldi vegna þess að ekki var lengur talið að hún gæti skaðað rannsóknina á málinu. En Catalina var meðal annars hneppt í varðhald vegna þess að talið var að hún gæti skaðað rannsókn málsins. Catalinu mun ekki hafa verið sleppt á þeim forsendum að ekki væru nægar sann- anir gegn henni fyrir hendi. Lögreglan rannsakaði einn- ig hvort Catalina tengdist ætluðum innflutningi á fíkniefnum til lands- ins frá Hollandi, en kærasti hennar, Helgi Valur Másson, var handtekinn með 10 kíló af kókaíni í fórum sínum í þarsíðustu viku. Í gæsluvarðhalds- úrskurðinum yfir Catalinu kom fram að hún lægi undir grun um að hafa ætlað að smygla fíkniefnunum til landsins frá Hollandi með Helga Val. Samkvæmt upplýsingum frá lögregl- unni liggur Catalina ekki undir grun fyrir hinn ætlaða innflutning á fíkni- efnum auk þess sem talið er að hún tengist ekki innflutningi fíkniefnanna til Hollands. Hins vegar kemur fram í upplýsingum frá lögreglunni að erfitt sé að sanna slíka aðild. Catalina mun ekki vera í farbanni samkvæmt upplýsingum frá lögregl- unni og er því frjáls ferða sinna til og frá landinu. ingi@dv.is Fjölmargir yfirheyrðir samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar voru fjölmargir aðilar yfirheyrðir í tengslum við rannsóknina á meintri ólöglegri vænd- isstarfsemi og mansali Catalinu mikue Ncogo. Lögreglan er ráðþrota „Við erum algjörlega ráðþrota. Við leituðum um helgina með aðstoð björgunarsveita sem stóðu sig eins og hetjur. En það hefur ekkert komið fram,“ segir Ágúst Svans- son, aðal- varðstjóri lögreglu höfuðborg- arsvæðisins. Lögreglan hefur leitað að Aldísi Westergren síðan um miðja síðustu viku en leitin hefur ekki borið árangur. „Ég vil ítreka það að fólk í kringum byggingarsvæði og mannlaus- ar blokkir líti vel í kringum sig.“ Aldís er 37 ára gömul. Hún er á milli 165 og 170 sentímetrar á hæð með skollitað axlasítt hár. Þeir sem geta veitt upplýsing- ar um Aldísi eru beðnir um að hringja í 444-1100. Afskrift Mogga er fordæmi Guðjón A. Kristjánsson, Frjáls- lynda flokknum, segir að Ís- landsbanki hafi afskrifað tvo milljarða króna þegar Morgun- blaðið var selt nýjum eigendum Árvakurs. Hann spurði Stein- grím J. Sigfússon fjármálaráð- herra um það á Alþingi í gær hvort ríkisstjórnin væri að gefa fordæmi og að líkt yrði farið með aðra fjölmiðla í fjárhagskrögg- um. Hann sagði að flestum væri kunnugt um að rekstur Frétta- blaðsins væri erfiður og það ætti einnig við um RÚV. Fjármálaráð- herra svaraði að sala Morgun- blaðsins væri algerlega í hönd- um viðkomandi banka og ekki væri um að ræða stefnumótun stjórnvalda, málin væru leyst á viðskiptalegum grundvelli. Nið- urstaðan væri að stór vinnustað- ur – Morgunblaðið – héldi velli. Stjórnin að falla á tíma Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra segir ljóst að þingið og ríkisstjórnin þurfi lengri tíma en til 12. mars til þess að afgreiða brýn mál sem varða endurreisn banka, fyr- irtækja og heimila. Í svari sínu á Alþingi í gær við fyrirspurn Geirs H. Haarde sagði hún að hægt væri að draga það til 27. mars að rjúfa þing fyrir kosn- ingar, en með réttu lagi ætti að rjúfa þing 45 dögum fyrir kjör- dag. Fram kom einnig í máli Jóhönnu að ekkert stæði í vegi fyrir því að þingið starfaði áfram þótt það yrði rofið og boðað til kosninga 12. mars. Tveir milljarðar í bætur Vinnumálastofnun greiddi tæpa 2 milljarða króna í at- vinnuleysisbætur til um 14 þúsund einstaklinga í gær. Fram kom á vef stofnunar- innar að það sé ekki öruggt að allir launaseðlar nái að skila sér í hús í dag þannig að nauðsynlegt sé að fylgjast með hvort greiðslan hefur borist. 16.411 einstakling- ar eru skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun. Fyrir mánuði greiddi stofnunin at- vinnuleysistryggingar til um 9.500 einstaklinga og hefur bótaþegum því fjölgað um 4.500 á einum mánuði. KynþáttAfordóMAr tALdir verA orsöKin Fjórtán ára nemandi í Grunnskóla Sandgerðis slasaðist alvarlega þeg- ar tveir skólafélagar hann réðust á hann á skólalóðinni fyrir helgi. Drengurinn sem ráðist var á fékk heilahristing, missti tímabundið heyrn á öðru eyra og tennur losn- uðu. Drengurinn hefur æft körfu- bolta og var nýlega valinn nem- andi vikunnar í skólanum. Árásin hefur verið kærð til lögreglu og fer inn á borð barnaverndaryfirvalda. Drengjunum tveimur sem réðust á hann hefur verið vikið tímabund- ið úr skóla en skólanefnd mun ákveða framhaldið. Hnefaleikakappi barði drenginn Annar árásarmannanna hefur æft með Hnefaleikafélagi Reykjaness og var útnefndur íþróttamaður árs- ins í Sandgerði árið 2007. Hnefa- leikafélag Reykjaness sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna árásarinn- ar og vonar að drengurinn verði áfram virkur og góður meðlimur í félaginu. „Hnefaleikafélag Reykjaness harmar það atvik sem átti sér stað þegar einn meðlimur félagsins varð uppvís að því að lenda í áflog- um. Umræddur meðlimur hefur verið fram til þessa virkur meðlim- ur og góður félagi í HFR, því hörm- um við þetta mjög, en vonum ein- dregið að svo verði áfram. Okkar afstaða er skýr til brota af þessu tagi. Við samþykjum ekki svona hegðun og lítur hnefaleikafélagið brot af þessu tagi mjög alvarlegum augum,“ segir í yfirlýsingunni. Nemendum brugðið Fanney Halldórsdóttir, skólastjóri grunnskóla Sandgerðis, segir skól- ann líta mál af þessu tagi mjög al- varlegum augum. „Við tökum mjög hart á svona málum og erum að vinna þetta mál af miklum þunga með félags- málayfirvöldum, fræðsluyfirvöld- um, yfirsálfræðingi Reykjanesbæj- ar og foreldrum,“ segir Fanney en hún vill ekki gefa upp hvort um eineltismál sé að ræða. „Ég held að þetta sé ekki rétti tíminn til að tjá sig um það.“ Fanney segir að nemendum skólans hafi vissulega verið brugð- ið þegar árásin átti sér stað. „Þetta gerðist í matarhléi nem- enda og auðvitað eru allir skelkað- ir þegar svona alvarleg mál koma upp.“ Kynþáttahatur á Suðurnesjum Samkvæmt fréttavef mbl.is var drengurinn kallaður „polli“ og var hann sagður af pólsku bergi brot- inn sem er ekki rétt en stjúpfað- ir drengsins er Pólverji. Heimildir DV herma að kynþáttafordómar hafi komið slagsmálunum af stað en kynfaðir drengsins vildi sem minnst um það segja. „Ég vil ekkert tjá mig um það á þessu stigi málsins,“ segir hann í samtali við DV. Snemma á síðasta ári fjallaði DV um samtökin Ísland fyrir Ís- lendinga, ÍFÍ, sem stofnuð voru í Reykjanesbæ. Voru samtökin tengd við árás á Pólverja í bænum og ýttu þau undir umræðu um vax- andi kynþáttafordóma á landinu. Jóhann R. Benediktsson, þáver- andi lögreglustjóri á Suðurnesjum, sagði þá í samtali við DV að um- ræðan bitnaði á grunnskólabörn- um útlendinga. „Ég þekki umræðuna um að þetta sé farið að bitna á börnum útlendinga í skólunum og við höf- um vitneskju um slík tilvik. Þannig hafa börnin orðið fyrir áreiti fyrir það eitt að vera ekki fædd á Íslandi. Þetta hafa verið afskaplega ósann- gjörn og döpur mál.“ Sagan endurtekur sig Þetta er önnur árásin sem á sér stað í grunnskóla á Suðurnesjum með stuttu millibili. Í nóvember á síðasta ári voru þrír fimmtán ára piltar handteknir eftir að þeir réð- ust hrottalega á samnemanda sinn fyrir utan Njarðvíkurskóla. Piltarn- ir létu höggin dynja á fórnarlamb- inu og spörkuðu ítrekað í höfuð hans meðan hann lá varnarlaus á jörðinni. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, lög- fræðingur hjá lögreglunni á Suð- urnesjum, sagði í samtali við DV í nóvember að árásin hefði verið sérstaklega hættuleg. „Hann var svo illa farinn að læknar gátu ekki greint hvort hann væri brotinn. Málið verður sent frá okkur til ríkissaksóknara í kjölfar- ið. Þeir eru grunaðir um sérstak- lega hættulega líkamsárás.“ lilja KatríN guNNarSdóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is Fjórtán ára nemandi í Grunnskóla Sandgerðis varð fyrir hrottalegri árás tveggja skóla- félaga sinna fyrir helgi. Drengurinn fékk heilahristing, missti heyrn á öðru eyra og tennur losnuðu. Annar árásarmannanna er virtur hnefaleikakappi á Suðurnesjum. alvarlega slasaður drengurinn sem ráðist var á hlaut alvarlega áverka en annar árásarmannanna er virtur hnefaleikakappi á suðurnesjum. myndin er uppstillt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.