Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Síða 14
1262, 1662, 2009. Svarthöfði hefur
loksins opnað augun fyrir samsærinu
gegn Íslandi.
Þetta virtist allt vera eðlilegt. Geir Haarde varð forsætis-ráðherra. Allt leit vel út, þar til allt hrundi skyndilega öllum
að óvörum. Samt ekki alveg öllum.
Geir Haarde náði að fela raunverulega stöðu efna-hagslífsins fyrir þjóðinni þar til það var of seint. Hann
hélt því statt og stöðugt fram að allt
væri í lagi og allt yrði í lagi. Fyrst eft-
ir hrunið virtist þetta hafa verið tær
ragmennska, firring og lygaárátta hjá
honum. En nú veit Svarthöfði svarið.
Byrjum á byrjuninni. Eftir uppgangstíma sjálfstæða þjóðveldisins náðu Norð-menn aftur yfirráðum yfir
Íslendingum árið 1262. Þeir misstu
okkur til Dana, sem komu á einveldi
árið 1662. Við náðum ekki frelsinu
nema með því versta af öllu illu: upp-
gangi Hitlers.
Fór engan að gruna neitt þegar eignir Glitnis í Nor-egi voru seldar á undir- verði til Norðmanna,
sem endurseldu þær svo á
margföldu verði? Fór engan
að gruna neitt þegar Geir
„Haarde�� gerði ekkert til að
koma í veg fyrir hrunið? Þegar
hann kappkostaði að hylma
yfir vandann, þar til það var of
seint? Það var eins og hann
vildi passa að hrunið
yrði örugglega
nógu mikið. Jafnvel mesta mögulega
vanhæfni getur ekki útskýrt þetta.
Svarthöfði kveikti ekki ljósið fyrr en á
föstudaginn, þegar norska bergmálaði
milli veggja í Seðlabankanum. Plottið
var fullkomnað.
Geir Haarde er sonur norsks símafræðings. Hann er í reynd jafnmikill Norðmað-ur og Íslendingur. Engan
skal undra að afleiðingar stórundar-
legrar hagstjórnar hans séu yfirtaka
Norðmanna á Seðlabankanum.
En Geir gat ekki klárað þetta einn. Stjórnarandstaðan myndi auðveldlega koma upp um jafnósvífið plott og
að fela hrunið efnahagslíf. Hann þurfti
að semja við stjórnarandstöðuna um
að láta bara eins og venjulega, þannig
að ekkert kæmist upp, ekki fyrr en það
væri of seint. Þetta reyndust vera þeir
sömu og mæltu fyrir því að íslensku
krónunni yrði hent og norsk króna
gerð að ríkisgjaldmiðli á Íslandi. En
stjórnarandstaðan þurfti einhver laun
fyrir viðvikið. Þess vegna samþykkti
Geir að hegða sér eins og firrtur kjáni
frammi fyrir þjóð-
inni og koma þannig af stað hand-
stýrðri öldu óánægju gegn sér, með
þeim afleiðingum að vinstri-grænir
kæmust í stjórn með stuðningi Fram-
sóknarflokksins.
Grunaði engan neitt þegar þingmenn fóru í gríðarlega langt jólafrí rétt eftir efna-hagshrunið? Eins og þeim
lægi ekkert á! Grunaði engan neitt
þegar þingmenn stjórnarandstöðu
vinstri-grænna tuðuðu bara í stað
þess að ljóstra upp um blekkinguna,
þannig að fólk heyrði hreinlega ekki
hvað þeir væru að segja? Setti enginn
saman tvo og tvo, á eftir einum og
með sex í miðjunni, þegar Steingrím-
ur Joð Sigfússon ákallaði norsku krón-
una, af öllum gjaldmiðlum?
Á föstudaginn var það sem sagt fullkomnað. Þá stóð norski forsætisráðherrann, með norskan útsendara sér
við hlið, og mælti til íslensku þjóðar-
innar á norskri tungu. Og nú er það
of seint. If you can’t fight them, join
them, sagði maðurinn. Ja, vi elskar
detta landet!
Þriðjudagur 3. mars 200914 Umræða
norska Plottið!
svarthöfði
spurningin
„Jú, ég er
örugglega
tuttugu árum of
gamall en
maður lætur
plata sig þegar
góðgerðarmál
eru annars
vegar.“
Þorgrímur
Þráinsson
keppti í fótbolta
um helgina með gömlum „all stars“-
leikmönnum gegn leikmönnum úr a-
og B-liði íslenska karlalandsliðsins í
Vodafone-höllinni að Hlíðarenda.
Leikurinn var liður í átakinu Karlmenn
og krabbamein en þeir gömlu létu í
minni pokann fyrir þeim ungu.
Ertu of gamall
fyrir þEtta?
sandkorn
n Kolbrúnu Bergþórsdótt-
ur, blaðakonu á Morgunblað-
inu, ærði óstöðuga í Frjálslynda
flokknum með greinarkorni í
Moggann
um helgina.
Þar fagnaði
hún því að
Frjálslyndi
flokkurinn
væri að lið-
ast í sundur
enda ætti sá
flokkur ekki
að vera til. Frjálslyndir eru froðu-
fellandi af bræði yfir pistlinum og
í gær fór Landsamband kvenna
í Frjálslynda flokknum fram á
afsökunarbeiðni frá Kolbrúnu.
Þá brást Sigurjón Þórðarson,
fyrrverandi þingmaður flokksins,
hinn versti við og moggabloggaði
um pistilinn og kallaði Kolbrúnu
„fordómafulla ruglutófu��.
n Sigmundur Ernir Rúnarsson,
frambjóðandi í prófkjöri Sam-
fylkingar í norðausturkjördæmi,
fær óblíðar móttökur eins helsta
kosningasmala Samfylkingarinn-
ar. Fjallkóngurinn, Guðmund-
ur Sigurðsson, gefur Sigmundi
falleinkunn á DV-bloggi sínu:
„Ekki er langt síðan Sigmundur
sagði frá því
í fjölmiðlum
að hann hafi
verið þjónn
auðmanna í
fjölmiðlum
. Sjálfur hrós-
ar hann sér
sem öflugum
blaðamanni
sem meðal annars hafi komið
upp um spillingarmál í kringum
Árna Johnsen þingmann. Þetta
heitir að pissa annarra manna
hlandi. Sigmundur Ernir kom
ekki á nokkurn hátt nálægt því
máli nema helst til að reyna að
fela það.��
n Meðal þeirra sem gætu átt góða
möguleika innan Samfylkingar
er Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
stjórnsýslufræðingur sem vill 5.-
7. sætið í Reykjavík. Sigurbjörg
þykir einkar skelegg og vakti
athygli á frægum borgarafundi í
Háskólabíói þar sem hún upplýsti
meðal annars að ráðherra hefði
varað hana við óþarfa hreinskilni.
Seinna kom á daginn að hún átti
við Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur, vinkonu sína. Væntanlega
kemur í ljós hvernig þeim gengur
að vinna saman eftir uppnámið
í vetur.
n Pressan.is þykir færa ferskan
blæ inn í flóru vefmiðla. Björn
Ingi Hrafnsson ritstjóri er vel
tengdur og skúbbin gjarnan stutt
undan. Þá nýtur hann liðsinnis
Steingríms
Sævars Ól-
afssonar,
fyrrverandi
fréttastjóra
Stöðvar 2,
sem nemur
guðfræði
milli þess
sem hann
hleður inn fréttum með félaga
sínum. Pressan er í grjótharðri
samkeppni við Eyjuna og þá ekki
síður amx.is sem stjórnað er af
frambjóðandanum Óla Birni
Kárasyni.
LyngHáLs 5, 110 reyKjaVíK
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dV.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50.
umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Fátt virðist
vaka fyrir
ráðherranum
annað en að eyðileggja.“
n Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra, um Ögmund Jónasson,
núverandi heilbrigðisráðherra. Guðlaugur segir
Ögmund engin svör hafa við vandanum en vera
bara að eyðileggja orðspor fagfólks sem hafi
unnið að því að leysa hann. – Morgunblaðið
„Með skárri
fréttum sem
landsmenn hafa
fengið í nokkurn
tíma eru þær að
Frjálslyndi flokkurinn sé
að liðast í sundur.“
n Kolbrún Bergþórsdóttir blaðakona um
Frjálslynda flokkinn. – Morgunblaðið
„Blaðamaðurinn virðist
falla í þann fúla pytt að
valda stétt sinni vanvirðu.“
n Segir í yfirlýsingu frá Landssambandi kvenna í
Frjálslynda flokknum sem furðar sig á
vanvirðingu Kolbrúnar Bergþórsdóttur í
greinarskrifum í sunnudagsmogganum. – DV.is
„Þetta er eigin-
lega það asna-
legasta sem ég
hef gert um
ævina.“
n Sagði Karen Lind Tómasdóttir,
fegurðardrottning Suðurnesja, um þátttöku sína í
fegurðarsamkeppnum nýlega. Hún situr enn
lengur uppi með titil sem hún kærir sig ekki um
því Fegurðarsamkeppni Suðurnesja hefur verið
frestað annað árið í röð. – DV.is
Sýndarveruleikinn Ísland
Leiðari
Orðræða Davíðs Oddssonar er ein-kennandi fyrir þá stjórnmálaum-ræðu sem hefur klofið íslenskt sam-félag undanfarin ár. Hún felur í sér
að stjórnmálamaður geti búið til raunveru-
leika með orðum sínum. Svo lengi sem hann
segir að honum sé ekki vantreyst af þjóð-
inni sé það þannig. Jafnvel skoðanakannan-
ir eru ekki marktækar, því hann segir að þær
séu ekki til, hafi verið falsaðar. Verstu mistök
stjórnmálamanna í dag eru að hans mati að
tala ekki kjark í þjóðina, með öðrum orðum,
að beita ekki áróðri jákvæðninnar á stærsta
efnahagsvanda síðari ára.
Sú trú að hægt væri að tala upp og niður
markaði var í öndvegi í ríkisstjórnunum sem
sjálfstæðismenn stýrðu. Gagnrýnin var talin
ófýsileg af yfirvöldum, óháð því hvort fótur
væri fyrir henni eða ekki. Gagnrýni var tekið
persónulega og henni svarað með persónu-
legum árásum. Gagnrýnendur voru ýmist
sagðir „vitlausir“, öfundsjúkir, hluti af „sam-
særi“ Baugs eða annarra gegn yfirvöldum, allt
eftir aðstæðum. Yfirvöld skiptu þjóðinni niður
í skotgrafir og þeir sem tjáðu sig opinberlega
urðu að þola að vera útmálaðir sem hand-
bendi annarra eða hluti af fylkingu sem væri
í stríði við yfirvöld af óljósri ástæðu.
Vegna þessarar áróðursstefnu gegn gagn-
rýninni umræðu skall íslenskt hagkerfi á vegg
án þess að bremsa, öllum að óvörum, eins
og Enron-land. Ef gagnrýni hefði þrifist með
eðlilegum hætti, án persónulegra gagnárása,
hefði skapast náttúrulegur þrýstingur á yf-
irvöld og banka til treysta undirstöður efna-
hagslífsins. Ef gagnrýni hefði ekki verið færð
á persónulegt plan hefði verið auðveldara að
vinna saman að lausn vandamála, sem þess í
stað skullu á okkur af fullum þunga.
Við fyrstu sýn kann að virðast vont að
hlutabréfaverð lækki og skuldatryggingar-
álag hækki, en það er hluti af náttúru-
legu ferli í frjálsu hagkerfi. Þess vegna er
breytingartillaga Höskuldar Þórhallssonar
framsóknarmanns á seðlabankafrumvarp-
inu nauðsynleg. Hann vill skylda bankann
til að vara við yfirvofandi hættu. Umræðu-
hefðin á Íslandi er hins vegar orðin slík að
Höskuldur var rægður og uppnefndur fyrir
vikið.
Áróðursstefna Davíðs birtist holdi klædd í
eina viðtali hans á árinu. Hann sagði fjármagns-
flutninga Kaupþings hafa leitt til hryðjuverka-
laga, en bresk yfirvöld segja að samtal við Árna
Mathiesen hafi leitt til þess. Hann sagðist hafa
sent bréf til lögreglunnar vegna kaupa sjeiks af
Katar í Kaupþingi og jafnframt vita af óeðlilegri
fyrirgreiðslu fjölda stjórnmálamanna í bönkun-
um. Hvers vegna sagði hann ekki frá því? Hvers
vegna neitar hann almenningi um upplýsingar
sem hann vísar til? Hefur hann sent fleiri bréf
á laun til lögreglunnar? Eða er hann að blöffa,
beita óljósum rógburði í áróðursskyni, eins og í
tilfelli hryðjuverkalaganna og við önnur tilefni
þegar hann er sjálfur gagnrýndur?
Andstaða fólks við Davíð byggist ekki á
persónu hans, heldur persónulegum rök-
um hans sjálfs gegn öðrum, rógburði, leynd
og endurteknum tilfellum gerræðislegrar
valdatöku og aðgerða. Eitt stærsta verkefni
okkar er að rísa upp úr skotgröfunum eftir
stríð Davíðs og læra að tala saman.
Jón trausti rEynisson ritstJóri skrifar. Eitt stærsta verkefni okkar er að rísa upp úr skotgröfunum eftir stríð Davíðs
bókstafLega