Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Qupperneq 12
þriðjudagur 3. mars 200912 Fréttir
Bandarísk gervifrjóvgunarstofn-
un hefur valdið deilum með því að
bjóða fólki sem hyggur á barneign-
ir upp á þann möguleika að velja
ákveðna eiginleika, til að mynda
augnlit og hárlit afkvæmisins.
Um er að ræða LA Fertility Inst-
itutes, gervifrjóvgunarstofur dokt-
ors Jeffs Steinberg, sem var frum-
kvöðull gervifrjóvgunartækninnar á
áttunda áratug síðustu aldar. Stein-
berg reiknar með að á næsta ári
fæðist barn með eiginleika sem
foreldrar hafa sjálfir kosið. Stofn-
un Jeffs Steinberg býður foreldrum
einnig að velja kyn barns.
Forðast flökkugen
Tæknin sem Steinberg hyggst
beita byggist á því að læknar prófa
frumu úr fósturvísi áður en hon-
um er komið fyrir í legi móðurinn-
ar. Læknarnir velja síðan fósturvísi
sem ekki ber til dæmis gen ætt-
gengs sjúkdóms eða í þessu tilfelli
fósturvísi sem hefur til að bera þá
eiginleika sem foreldrunum finnst
eftirsóknarverðir, til dæmis blá
augu og ljóst hár.
Að sögn Steinbergs er ekki ólík-
legt að pör óskuðu þjónustu stofn-
unarinnar með tilliti til bæði lækn-
isfræðilegra og útlitstengdra mála.
Sem dæmi nefndi Steinberg að
væntanlegir foreldrar kynnu að
kjósa að barn þeirra hefði örlítið
dekkri húðlit til að draga úr líkum
á húðkrabbameini ef þeir ættu fyr-
ir barn sem hefði fengið sortuæxli.
Einnig gæti óskin verið einfaldari,
til dæmis ljóshærður drengur.
Engin trygging
Á vefsíðu stofnunarinnar segir að
ekki allir sjúklingar séu þess um-
komnir að undirgangast þau próf
sem nauðsynleg eru og „við ábyrgj-
umst ekki „fullkomna forspá“ hvað
varðar augn- eða hárlit“.
„Ég myndi ekki segja að þetta
væri varhugaverð leið. Þetta er
ókortlögð leið,“ sagði Jeff Steinberg.
Að hans sögn hefur getan til að
bjóða upp á þessa þjónustu verið til
staðar í fjölda ára, en verið hunds-
uð af læknasamfélaginu. „Það er
tímabært fyrir alla að draga höfuðið
upp úr sandinum,“ sagði hann.
„Keypt úr hillu“
Gillian Lockwood, breskur frjó-
semissérfræðingur og meðlimur
siðanefndar Konunglega fæðinga-
og kvensjúkdómaháskólans, setti
við það spurningarmerki hvort það
væri siðferðilega rétt að nota vís-
indin með þessum hætti.
„Ef þetta nær því stigi að við get-
um ákveðið hvaða gen eða gena-
samsetning eru ábyrg fyrir bláum
augum eða ljósu hári, hvað hyggj-
umst við gera við alla hina fóstur-
vísana, sem enda eins og ég, rauð-
hærð með græn augu?“
Gillian Lockwood varaði við því
að „breyta börnum í verslunarvöru
sem þú kaupir úr hillu“.
Sætustu nefin
Josephine Quintavalle, hjá Comm-
ent on Reproductive Ethics, er
þeirrar skoðunar að vert sé að stíga
varlega til jarðar í þessum málum.
„Þetta er óhjákvæmilega varhuga-
verð leið í frjósemismeðferð sem
lyktar með því að mun fleiri fóst-
urvísar verða framleiddir en hægt
er að koma fyrir. Þetta verður alltaf
spurning um val. Velur þú áttbura
eða þá sem eru með sætustu nef-
in?“
Þess má geta að í Bretlandi er
bannað með lögum að velja kyn
og mögulegir valkostir miðast ein-
göngu við heilsu og heilbrigði
barns.
Kona getur verið faðir
Á Ítalíu er bannað samkvæmt þeim
lögum sem lúta að frjóvgunarað-
gerðum að búa til umfram magn
fósturvísa eða framkvæma próf
sem miða að vali á eiginleikum
barns og sagði Josephine Quinta-
valle að það væri ein örugg leið til
að koma í veg fyrir að farið væri inn
á þá háskabraut.
Í apríl taka gildi ný lög í Bret-
landi sem gera mæðrum sem und-
irgangast gervifrjóvgun kleift að
nefna hvern sem er „föður“ barns-
ins á fæðingarvottorðinu. Jafnvel
aðra konu. Einu takmarkanirnar
verða ef um er að ræða of nátengda
og blóðtengda manneskju eða ef
hinn aðilinn samþykkir það ekki.
Fyrirætlanir gervifrjóvgunarstofnunar í Bandaríkjunum um að gefa verðandi for-
eldrum kost á að velja eiginleka afkvæmisins hafa vakið blendnar tilfinningar. Var-
að er við því að gera börn að „verslunarvöru“ sem valin er úr hillu og settar fram
spurningar um hvort nota eigi vísindi með þessum hætti.
Sérhönnuð börn
Sem dæmi nefndi Stein-
berg að væntanleg-
ir foreldrar kynnu að
kjósa að barn þeirra
hefði örlítið dekkri húð-
lit til að draga úr líkum
á húðkrabbameini ef
þeir ættu fyrir barn sem
hefði fengið sortuæxli.
Einnig gæti óskin ver-
ið einfaldari, til dæmis
ljóshærður drengur.
KolbEinn þorStEinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Vefsíða lA Fertility
institutes jeff
steiberg segir að
sérhannað barn muni
fæðast á næsta ári.
Ungbarn sumir foreldrar
vilja ráða hárlit og augnlit
afkvæma sinna.
Forseti Venesúela hefur yndi af því að tala og finnur fyrir því:
Hugo Chavez sagt að þegja
Það eru ekki margir sem gætu kom-
ist upp með að segja Hugo Chavez,
forseta Venesúela, að þegja. Á
sunnudaginn upplýsti Chavez að
einkalæknir hans hefði ráðlagt hon-
um að hvíla raddböndin í þrjá daga
svo hann losnaði við særindi í hálsi
sem hafa hrjáð hann. Þess má geta
að ræður forsetans verða gjarna
nokkuð langar, jafnvel allt að fimm
klukkustundum eða lengur.
„Ég hef orðið fyrir nokkrum
áhrifum vegna kröftugrar, óstöðv-
andi og stöðugrar notkunar þessar-
ar fallbyssu sem ég er með og lækn-
irinn hefur sagt mér að þegja,“ ku
Chavez hafa sagt frammi fyrir hlæj-
andi áheyrendum.
Chavez fór ekki í grafgötur með
að þögn væri ekki besta læknisráðið
fyrir hann. „Ég sagði „sjáðu til, vinur,
gerðu það sem þú getur en hvernig á
ég að geta farið eftir þessu úrræði?“
Þrír dagar án þess að mæla? Ég ent-
ist einn, ekki einu sinni einn,“ sagði
Chavez í upphafi vikulegs sjón-
varpsþáttar síns.
Snurða hljóp á þráðinn í sam-
skiptum Venesúela og Spánar. Jó-
hann Karl Spánarkonungur reyndi
að þagga niður í Chavez á ráðstefnu
árið 2007.
Hugo Chavez gerir oft og tíðum
grín að eigin málæði og á það til,
án teljandi árangurs, að stytta ræð-
ur sínar. Undanfarna mánuði hefur
Chavez háð tvær kosningabaráttur
og hafa þær sett mark sitt á háls for-
setans eftir tugi klukkustunda ræðna
þar sem hann hefur bætt um betur
og hrópað og jafnvel tekið lagið.
Í sjónvarpsþætti sínum á Chavez
til að tala svo klukkustundum skipt-
ir og í janúar talaði hann stanslaust
í um sjö klukkustundir þegar hann
ávarpaði þingið.
Óhætt er að segja að undanfar-
ið hafi Chavez fengið tækifæri til að
láta gamminn geisa, því í nóvember
fóru fram almennar kosningar og
strax í kjölfarið dembdi hann sér í
baráttu fyrir breytingum á stjórnar-
skránni sem þjóðin kaus um. Hugo
Chavez náði sínu fram og stjórn-
arskrárbreytingarnar gera honum
kleift að bjóða sig fram til forseta
landsins eins oft og honum þókn-
ast.
Hugo Chavez Langar
og tíðar ræður eru
farnar að segja til sín.
níu ára ólétt
að tvíburum
Mál níu ára stúlku hefur skekið
brasilískt samfélag. Samkvæmt
frétt á fréttasíðu G1 mun stúlkan
undirgangast fóstureyðingu en
hún gengur með tvíbura. Stúlk-
an mun hafa sætt kynferðislegu
ofbeldi af hálfu stjúpföður síns
um árabil.
Í ljós kom að hún var barns-
hafandi eftir að komið var með
hana á sjúkrahús í Recife í norð-
urhluta landsins vegna kvið-
verkja og er hún komin fjóra
mánuði á leið. Fóstureyðing er
bönnuð í Brasilíu, nema ef um
er að ræða afleiðingu nauðgunar
eða ef líf móður er í hættu.
Stjúpfaðir stúlkunnar var
handtekinn í síðustu viku þegar
hann reyndi að flýja land.
Eftirlýstur vildi
ganga í lögreglu
Lögreglan í Kaliforníu handtók
eftirlýstan ræningja og væri það
ekki í frásögur færandi nema
fyrir þá sök að handtakan átti sér
stað á lögreglustöð þegar ræn-
inginn kom þar inn til að þreyta
inntökupróf í lögregluna.
Ræninginn, Romeo Mont-
illano, rændi í desember 2008
stórmarkað og hafði lögreglan
leitað hans síðan. Lítinn bilbug
virtist vera að finna á Romeo
þegar lögreglan handtók hann
og setti í járn vegna fyrri afbrota
því hann spurði hvort hann gæti
ekki samt sem áður þreytt inn-
tökuprófið.
borgar ekki fyrir
stolnar styttur
Tvær bronsstyttur, úr dánarbúi
tískufrömuðarins Yves Saint
Laurent, voru slegnar hæstbjóð-
anda í París í síðustu viku og
nú hefur kaupandinn gefið sig
fram. Þar er um að ræða Kín-
verja, Cai Mingchao, sem gerði
tilboð í stytturnar í gegnum síma
og hann hyggst ekki greiða um-
samið verð sem er um 2,3 millj-
arðar fyrir hvora styttu.
Styttunum mun hafa verið
stolið af breskum og frönskum
hermönnum árið 1860. Og Cai
er ráðgjafi stofnunar sem vinn-
ur við að endurheimta stolna
listmuni. Cai segir að ákvörð-
un sín byggist á föðurlandsást.
Ekki liggur fyrir hvar stytturnar
eru niðurkomnar eða hvort þær
verða boðnar upp að nýju.