Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Síða 17
þriðjudagur 3. mars 2009 17Sport
Guðjón Þórðarson stjóri mánaðarins í daG? Valið á besta knattspyrnu-
stjóra febrúarmánaðar í ensku 1. deildinni verður tilkynnt í dag en þar er líklegt að Íslendingurinn
guðjón þórðarson hjá Crewe alexandra hreppi hnossið. Hann er líklegur til þess að fá fullkomna
kosningu hjá valnefndinni sem stýrt er af fyrrverandi leikmanninum og yfirmanni hennar, Chris
Kamara, að því er kemur fram á stuðningsmannasíðu Crewe. guðjón tapaði fyrsta leik sínum í
febrúar fyrir Leyton Orient, 1-0, en eftir það fylgdu fjórir sigrar í röð með markatölunni 10-1.
Hann rakaði saman tólf stigum í febrúar sem er jafnmikið og lið southend en markatala
Crewe er betri ásamt því að sigrarnir komu Crewe úr fallsæti. Crewe leikur í dag gegn
Carlisle en Crewe leikur alls átta leiki í marsmánuði.
Liverpool, Arsenal og Chelsea eru öll
í eldlínunni í ensku úrvalsdeildinni
í kvöld. Heil umferð fer fram í kvöld
og á morgun en um helgina komst
Chelsea í annað sætið á kostnað
Liverpool sem tapaði fyrir Boro og
virðist nú vera líklegra í baráttunni
við Manchester United um titilinn.
Arsenal sem ávallt er rómað fyrir
magnaða knattspyrnu hefur nú gert
fimm jafntefli í röð í deildinni og ekki
skorað mark í síðustu fjórum leikj-
um. Stoke henti út líflínu fyrir Ars-
enal um helgina þegar það jafnaði
í uppbótartíma gegn Aston Villa en
Villa-menn voru á leiðinni að stinga
Arsenal af í baráttunni um meistara-
deildarsæti. Munurinn er því sex stig
í stað átta og á Arsenal ennþá mögu-
leika. En til þess að nýta hann verður
liðið að skora mark.
Liverpool gerði sitt besta í að af-
henda Manchester United Eng-
landsmeistaratitilinn um helgina
þegar liðið tapaði fyrir Middles-
brough, 2-0. Boro hafði ekki unn-
ið í fimmtán leikjum fyrir sigurinn
á Liverpool og aðeins skorað eitt
mark í síðustu tíu leikjum. Chelsea,
sem mætir Portsmouth í kvöld, og
Liverpool eru bæði sjö stigum á eftir
Manchester United og verða að fara
að innbyrða sigra til að United sigli
ekki lygnan sjó að titlinum. Liver-
pool mætir Sunderland heima og
Arsenal heimsækir WBA.
Fernando Torres er ennþá frá
vegna meiðsla sem hann hlaut í 1-
0 sigri Liverpool á Real Madrid en
Nabil El Zhar var einn í framlínu liðs-
ins í tapinu gegn Middlesbrough.
Vinni annaðhvort Liverpool eða
Chelsea eða bæði sína leiki minnka
þau forskot Manchester United
niður í fjögur stig. Englandsmeist-
ararnir leika svo á morgun gegn
Newcastle og eiga leik til góða gegn
Portsmouth sem frestaðist um helg-
ina vegna þátttöku liðsins í úrslita-
leik deildarbikarsins. tomas@dv.is
Þrír leikir eru í ensku úrvalsdeildinni í kvöld:
skorar arsenal mark?
tveir dómarar
til viðbótar
Á fundi stjórnar alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins um helgina var
ákveðið að prófa á næsta tímabili
fleiri dómara í knattspyrnuleikjum.
Tillaga hafði borist stjórn frá franska
og ítalska knattspyrnusambandinu
um að hafa tvo aðstoðardómara til
viðbótar við hverja endalínu til að
aðstoða aðaldómarann við að sjá
barning í teignum eða dýfur innan
hans. „Við munum vinna fram í júní
við að finna deild sem hentar þessari
tilraun út tímabilið 2010. Árið 2011
stefnum við svo að því að ná
niðurstöðu,“ sagði framkvæmda-
stjóri FiFa, jerome Valcke, eftir fund
stjórnarinnar.
michel Platini, forseti Evrópska
knattspyrnusambandsins, uEFa,
hefur lengi verið fylgjandi fjölgun
dómara og styður þessa tillögu heils
hugar. upphafleg hugmynd hans
var að bæta við öðrum dómara en
svo var hann kominn niður í fjóra
línuverði sem væru þó allir við
endalínurnar. að hafa þá fyrir aftan
mörkin líst honum vel á þótt ekki
hafi það verið hans hugmynd og
vonast Platini til að þetta verði
fullmótað fyrir Evrópukeppnina árið
2012.
Hatton ræðst
á kviðinn
Hnefaleikakapparnir manny
„Pacman“ Pacquiao og ricky
„Hitman“ Hatton hittust í fyrsta skipt-
ið á blaðamannafundi fyrir
stórbardaga þeirra í Las Vegas sem
fram fer 2. maí. Pacquiao vann
gulldrenginn Oscar de La Hoya í
sínum síðasta bardaga en Hatton
þurfti að sæta sínu fyrsta tapi á
ferlinum þegar hann var rotaður af
Floyd mayweather jr. manny
Pacquiao sagði á fundinum að hann
þyrfti eflaust að breyta framgöngu
sinni í hringnum þegar hann mætir
boxurum eins og Hatton sem er
nautsterkur og alls óhræddur við að
fá á sig högg.
Hatton sagðist sjálfur vita hvar
veikleikar mannys Pacquiao liggja.
„manny tekur illa við höggum í
kviðinn. Ég hef séð hann kveljast
mikið og ég er nú oft erfiður
viðureignar þegar kemur að þeim.
manny mun þurfa að þola mun meiri
sársauka í þessum bardaga en hann
er vanur,“ sagði Hatton og bætti við
að hann væri búinn að bæta við sig
fleiri eiginleikum í hringnum.
„Í bardaganum gegn manny
Pacquiao munuð þið sjá mig sem
hnefaleikara með frábæra vörn,
stungur, mikla hreyfingu á höfði og
fótum ásamt mun meiri eftirfylgni í
höggunum.“
umsjón: Tómas þór þórðarsOn, tomas@dv.is
„Við höfum spjallað saman en bolt-
inn er hjá Kaupþingi,“ segir Gísli
Gíslason, formaður rekstrarfélags
ÍA, en bankinn íhugar nú tillögur
Skagamanna um þolanlega lend-
ingu beggja aðila varðandi samn-
ing sem Kaupþing sneri baki við
eftir efnahagshrunið. Kaupþing
var aðalstyrktaraðili ÍA en hefur
tilkynnt félaginu að hann ætli ekki
að standa við samninginn.
„Kaupþing er að skoða tillög-
ur sem við höfum sent þeim varð-
andi að ná lendingu í þessu máli.
Við vonumst til þess að Kaupþing
standi með okkur út þetta ár en
það er ein af tillögunum sem við
höfum lagt til,“ segir Gísli. „Í sjálfu
sér verður ekkert vandamál að
finna styrktaraðila á treyjuna en
það er allt á „hold“ á meðan við
göngum frá þessu.“
Ekki sáttir en vilja semja
Samningur Kaupþings við ÍA átti
að gilda út árið 2010 og skrifar
Gísli um riftinguna í pistli sínum
á heimasíðu ÍA: „[...] Hins veg-
ar er skuld við Kaupþing, sem
við treystum á að verði leyst með
samkomulagi við bankann, en
hann hefur tilkynnt að hann ætli
ekki að standa við gerðan samn-
ing sinn sem átti að gilda út árið
2010. Sú tilkynning bankans er
stjórninni ekki að skapi því þrátt
fyrir vanda bankakerfisins treyst-
um við því að Kaupþing ræði við
okkur um lausn málsins án þess
að við þurfum að grípa til frekari
ráðstafana svo sem skuldajöfn-
un.[...]“
Til að ná lendingu eins og
áður segir hafa Skagamenn sent
Kaupþingi málamiðlunartillögur.
„Það er höggvið verulega að okk-
ur ákveði Kaupþing að snúa bak-
inu við samningnum að öllu leyti.
Kaupþing hefur styrkt okkur frá
1991 og samstarfið hefur verið
afar farsælt. Í ljósi þess viljum við
nú koma til móts við Kaupþing og
ná lendingu sem er þolanleg fyrir
báða aðila,“ segir Gísli.
Margir standa við sitt
ÍA féll úr Landsbankadeildinni á síð-
asta tímabili en með sölu á Birni Berg-
manni Sigurðarsyni og Bjarna Guð-
jónssyni náði félagið að brúa bilið
tekjulega. Reksturinn í fyrra kom út 4
milljónir króna í mínus og skuldir fé-
lagsins eru 10,8 milljónir skrifar Gísli
í pistli sínum. Toyota-umboðið rifti
einnig samningi sínum við ÍA en sex
sterkir styrktaraðilar á borð við HB
Granda og Símann ætla að standa við
sitt. Eins og hjá mörgum liðum hafa
laun leikmanna verið lækkuð til þess
að ráða við kostnað næsta árs sem
áætlaður er um 40 milljónir.
Eftir efnahagshrunið rifti Kaupþing banki samningi sínum við knattspyrnufélagið ÍA
sem féll úr efstu deild, þá Landsbankadeild, á síðasta tímabili. Bankinn íhugar nú
tillögur Skagamanna sem vilja endilega ná mjúkri lendingu í málum sínum við einn
sinn helsta styrktaraðila undanfarin ár.
ía vill kaupÞinG
út tímabilið
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Mikilvægar tekjur Ía seldi
Björn Bergmann til Lilleström
sem hjálpaði félaginu mikið.
MyNd dANíEl RúNARSSON
Robin Van Persie Verður að fara að finna markaskóna ætli arsenal sér í meistara-
deildina. MyNd GETTy IMAGES