Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2009, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2009, Blaðsíða 22
föstudagur 6. mars 200922 Fókus um helgina Grín oG Glens Aðdáendur Shakespeares ættu ekki að missa af kynningarfundi sem hefst í dag klukkan 14.30. Fundurinn er í tengslum við frumsýningu á Þrettándakvöldi eftir William Shakespeare. Leikhópurinn sem sam- anstendur af reynsluboltum og leikurum úr Nemendaleikhúsinu munu bregða á leik fyrir gesti með gríni og glensi og veita innsýn í þetta merka verk. Frumsýningin á Þrettándakvöldi er 13. mars næstkomandi. MöGuleikhúsið í GerðuberGi Möguleikhúsið frumsýnir á sunnu- daginn barnaleikritið Alli Nalli og tunglið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Leikritið er byggt á sam- nefndri bók sem kom út fyrst árið 1959 og er eftir Vilborgu Dagbjarts- dóttur. Alli Nalli og tunglið var henn- ar fyrsta barnabók. Verkið segir frá ungum stúlkum sem taka að sér að passa börn. Þær hafa gaman af því að segja börnunum sögur af fyrsta stráknum sem þær pössuðu, Alla Nalla. Aðgangseyrir er 1500 krónur og hefst sýningin klukkan 14. hrinGir háMarksstærð Ívar Valgarðsson opnar einkasýn- ingu í öllum sölum Listasafns ASÍ við Freyjugötu. Sýningin hefur hlotið heitið Hringir hámarks- stærð og samanstendur af fjórum rýmisverkum. Öll eru þau ólík innbyrðis en tengjast sjónrænt og formrænt á ýmsa vegu. Verkin eru í mismunandi stærðum en það stærsta leggur undir sig allan stóra salinn. Að þessu sinni ein- kennast efnistök Ívars af áherslu- pennum, innanhússmálningu, neoni og myndböndum. Sýning- in hefst á morgun klukkan 17. Goth báðuM MeGin Hljómsveitin Skátar hefur gefið út vínylplötuna Goth báðum meg- in. Platan átti að koma út í október í fyrra en vegna hruns bankanna í byrjun október dróst útkoman lít- illega. Platan var tekin upp á rúmri helgi í ágúst á síðasta ári af Inga Þór Ingibergssyni í Stúdío Lubba í Keflavík og í æfingahúsnæði sveit- arinnar Kimono. Platan er aðeins fáanleg í fimm hundruð eintökum og er umslag plötunnar hannað af Baldri Birnissyni. Í tilefni af útkomu plötunnar hafa meðlimir sveitarinn- ar sett nýtt lag, Pantee Lions, inn á Myspace-síðu þeirra félaga. Tölvuleikjaunnendur eru nostalgíu- drullusokkar. Það er bara þannig. Það er nánast sama hvaða stórvirki líta dagsins ljós, leikir sem ögra hugmyndum okkar um tölvugerða grafík og dægradvöl, að mati sannra tölvuleikjaunnenda eru gamlar kempur á Nes, Snes og Sega allt- af betri. Síðan þegar leikirnir eru gefnir út aftur, eða maður loks fær tækifæri á að spila þá, áttar maður sig á því hvað það er nauðsynlegt að halda þeim í réttri fjarlægð svo gljá- inn fari ekki algjörlega af þeim. Oft hefur svo verið reynt að endurgera þessa leiki með tiltölulega misjöfn- um árangri. Nú er kominn Street Fighter 4 þar sem farnar eru nýjar leiðir til að vekja gömul bros. Leik- urinn er allur í tvívídd eins og þeir fyrri, en búið er að hressa heldur betur upp á lúkkið. Nánast ölll brögð og allt gamla gúmmelaðið er ennþá til staðar og þeir sem eru með sterkt vöðvaminni í fingrunum ættu að vera brjótandi rassgöt hviss bang. Það er skemmst frá því að segja að þetta allt saman hvellvirkar. Það er ógeðslega gaman að spila Street Fighter, persónurnar svo skemmti- lega hallærislega miklar erkitýpur, saga hvers og eins eins og í mynda- sögublaði. Og að slást við vini sína er vægast sagt fullnægjandi reynsla, hvort sem það er í stofunni heima eða á netinu. Hins vegar er ég enn- þá á því að tölvuleikir verði betri með ári hverju og því alveg óþarfi að dásama þetta meira. Svo er tón- listin líka ömurleg, valskjárinn ekki nógu þéttur og nýju persónurnar eru borderline-aumingjar. Síðan er ég miklu betri í nýjum leikjum held- ur en gömlum. Dóri DNA skotheld nostalgía „Þetta er í raun bara ég að segja sög- ur og fæ fullan sal af fólki í hend- urnar. Það er svo mitt verkefni að halda athygli þess, hreyfa við því og skemmta í tvo tíma,“ segir Ein- ar Kárason rithöfundur um sögu- stundina Stormar og styrjaldir. Þar fer Einar mikinn á Sögulofti Land- námssetursins í Borgarnesi er hann segir gestum sögu Sturlungu. Einar hefur á undanförnum ára- tug kafað djúpt í sagnaheim Sturl- ungasögu sem er samansafn margra mismunandi rita um Ísland á 13. öld. Sturlunga hefur verið innblástur Ein- ars í tveimur skáldsögum. Þær heita Óvinafagnaður sem kom út árið 2001 og Ofsi sem kom út árið 2008. Ofsi hlaut Íslensku bókmenntaverðlaun- in 2009 sem besta skáldsagan. Einstakt söguefni „Ég er með gífurlega gott söguefni sem ég sæki í Sturlungu. Svo að þetta er bara spurning um hvort mér takist að koma kjaftinum utan um orðin og böndum á hugsunina,“ en Einar segir sögu sína blaðlaust eins og um sögustund heima í stofu væri að ræða. „Þetta er í raun alls ekki ósvipað því þegar fólk kemur saman í stofu og sest niður til þess að hlusta á góða sögu.“ Þar fetar Einar í fótspor höfunda eins og Snorra Sturlusonar og Sturlu Þórðarsonar þegar þeir fluttu verk sín. Því ólíklegt er að þeir hafi dreift út skinnhandritum meðal áheyrenda sinna. Einar hefur verið að segja sögur blaðlaust í tæpa hálfa öld að eigin sögn og ætti því ekki að vera í vand- byrjaði í bíltúr Einar Kárason rithöfundur stendur fyrir sögustundum í Landnámssetrinu í Borgar- nesi þar sem hann fer yfir Sturlungasögu. Það hafa fáir kynnt sér þennan blóma- og umbrotatíma í íslenskri sögu betur en Einar. Hugmyndin að sögustundunum kvikn- aði þegar Einar sat í bíl að segja sögu. Hann vinnur einnig að því að klára kvikmynda- handrit ásamt Óskari Jónassyni leikstjóra. Street Fighter 4 Útgefandi: Capcom Tegund: Bardagaleikur Spilast á: Ps3 og X360 tölvuleikir Street Fighter 4 „tölvuleikjaunnendur eru nostalgíudrullusokkar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.