Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2009, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2009, Blaðsíða 38
föstudagur 6. mars 200938 Helgarblað „Eltur hvert sem ég fer“ Paul Einar var síðar fluttur í ann- að fangelsi þar sem öryggisgæsla er minni, hann er ekki lengur skil- greindur sem hættulegur fangi og hafa lögfræðingar hans tvívegis fengið dregið úr öryggisgæslu hans. Næstu mánuði þarf hann aðeins að afplána 9 daga í mánuði í fangelsi. Hann upplifir sig þó ekki sem frjáls- an mann. „Öll símtöl mín eru hleruð af lögreglunni, ég er eltur hvert sem ég fer og mér og fjölskyldu minni hafa borist hótanir sem ég tek mjög alvarlega.“ DV ræddi símleiðis við Paul Ein- ar á miðvikudaginn, en upphaflega hafði verið áætlað að viðtalið færi fram viku fyrr. Ekki náðist í hann á þeim tíma og útskýrir Paul Einar að fyrirvaralaust þann dag hafi hann verið handtekinn. Hann telur það vera hluta af því mikla eftirliti sem hann segist vera undir. Yfirvöld hafi meira að segja aðgang að Facebook- síðu hans. Hann segir fjölmiðla í Bretlandi hafa fjallað á mjög ósanngjarnan hátt um málið og þrátt fyrir tilboð um við- töl hefur hann alltaf neitað að tjá sig við þá. „Umfjöllunin var mjög hlut- dræg, fjölmiðlar voru undir áhrifum frá lögreglunni og Buckingham-höll. Þeir notuðu hvert tækifæri sem þeir höfðu til þess að grafa upp fólk úr fortíðinni til þess að tjá sig um mig. Fólk sem ég þekkti ekki einu sinni, jafnvel stelpur sem ég hafði sofið hjá fyrir löngu og hef ekki hitt í mörg ár. Eða þá fólk sem ég fór í taugarnar á. Flestir þeirra sem hafa lýst mér í fjöll- miðlum þekkja mig ekki.“ Stoltur Íslendingur Hann segist tjá sig við DV nú vegna þess að hann ætlar sér að snúa heim til Íslands. „Ég klára afplánun í mars á næsta ári, en samkvæmt breskum lögum geta fangar sem eiga bein tengsl við önnur lönd farið fram á að vera fluttir þangað. Ég hef sjálfur skrifað dómsmálaráðuneytinu bréf og Giovanni di Stefano, lögmaður minn, hefur einnig gert það,“ segir hann. „Ég bíð nú eftir viðbrögðum frá þeim. Ég álít sjálfan mig fyrst og fremst vera Íslending, en ekki Eng- lending. Ég er mjög stoltur af arfleifð minni, ég hef margoft verið á Íslandi og bjó þar árið 2001. Ég hef einnig mikið stundað næturlífið í Reykja- vík,“ segir hann. Paul Einar á í föðurlegg ættir að rekja til Íslands en afi hans var þekkt- ur útgerðarmaður og var sæmdur heiðursmerkjum af Englandsdrottn- ingu. En örlögin höguðu því þannig að barnabarnið situr nú í fangelsi fyrir fjárkúgun gegn frænda hennar hátignar. Paul Einar er af hinni svokölluðu Fylkisútgerðarætt sem hóf togaraút- gerð á Íslandi í lok síðari heimsstyrj- aldar. Afi hans, Páll Aðalsteinsson, gerðist útgerðarmaður í Grimsby á Englandi þar sem hann stofnaði af- kastamikla útgerð í lok 4. áratugar síðustu aldar. Á Englandi eignaðist Páll son, Aðalstein Einar Aðalsteinsson, með konu sinni Svönu Aðalsteinsson. Aðalsteinn Einar giftist síðar skoskri konu, Elisabeth Strachan, og eignað- ist með henni tvo syni, annar þeirra er Paul Einar. „Á meðan ég starfaði í tískuheim- inum tók ég upp nafnið Ian Strachan vegna þess að það er auðveldara að bera það fram heldur en Paul Einar Aðalsteinsson. Ég skrifaði tískugrein- ar í tímaritið Skin og einnig fyrir ann- að tímarit í Mið-Austurlöndum. En allir þekkja mig sem Paul Einar. Þrátt fyrir neikvæða fjölmiðlaumfjöllun hefur aldrei neinn sem ég þekki kall- að mig illum nöfnum. Frekar hef- ur fólk komið upp að mér, klappað mér á bakið og sagt „vel gert“ sem mér finnst fáránlegt. Því ég gerði ekki neitt.“ valgeir@dv.is „Í sannleika sagt kom mér vel saman við alla þarna inni. Ég átti aldrei í neinum vandræðum. Mað- ur verður að passa vel upp á sjálfan sig og sýna engin merki um veikleika, en ég komst ágætlega af.“ Krúnukúgari Paul Einari og Linley markgreifa var vel til vina. Hann hitti ljósmyndara fyrir utan heimili Elísabetar Bretadrottningar, frænku Linleys. MYND BERGUR FINNBOGASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.