Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Qupperneq 4
Hagsmunasamtök heimilanna halda í kvöld opna félagsfundi víðs vegar um landið þar sem félags- menn verða hvattir til að kjósa um hvort samtökin eigi að hefja form- legt greiðsluverkfall. Atkvæða- greiðsla fer fram með rafrænum hætti í kjölfar fundarins og geta allir skráðir félagsmenn tekið þátt. Þeir eru nú um 2.100 en að sögn Þórð- ar Björns Sigurðssonar, formanns samtakanna, fjölgar þeim að jafn- aði um rúmlega tíu á dag. Um ástæðu þess að samtökin leggja í þennan leiðangur nú segir Þórður Björn: „Við teljum fullljóst að stjórn- völd ætla sér ekki að taka tillit til þeirra krafna sem við höfum lagt fram.“ Hann tekur fyrir að greiðsluverk- fall sé óábyrg aðgerð: „Það má kannski spyrja hversu óábyrgt það er að svara ekki kalli almennings í þessum mál- um.“ Guðrún Dadda Ásmundardóttir, varamaður í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna, telur líklegt að tillagan verði samþykkt og segist meðal ann- ars merkja það á viðhorfskönnun sem lögð var fyrir félagsmenn fyrir stuttu þar sem yfirgnæfandi meirihluti sagð- ist vilja fara út í hertar aðgerðir. Félagsfundirnir í kvöld verða haldnir á fimm stöðum á landinu; í Reykjavík, Keflavík, Akureyri, Selfossi og á Flúðum. Í drögum að ályktun sem greidd verða atkvæði um á fundunum segir að samtökin hvetji almenning á Íslandi til að grípa til greiðsluverkfalls til að knýja fram leiðréttingar á hús- næðislánum vegna forsendubrests af völdum kreppunnar. Allir fundargestir hafa atkvæðis- rétt og samþykki fundirnir ályktunina munu Hagsmunasamtökin skipa fimm manna verkfallsstjórn sem skipulegg- ur frekar framkvæmd greiðsluverk- fallsins. Í rafrænu kosningunum geta hins vegar aðeins félagsmenn kosið og býst stjórn samtakanna við að niðurstaða þeirra verði ljós á föstudag. Meðal þess sem greiðsluverkfall á að ná fram er að íbúðalán með við- miðum við gengi erlendra gjaldmiðla verði leiðrétt og yfirfærð í íslenskar krónur frá lántökudegi á gengi þess tíma. erla@dv.is þriðjudagur 23. júní 20094 Fréttir Leikstjóri sest á þing Valgeir Skagfjörð, Borgarahreyf- ingunni, tók sæti á þingi í fyrsta skipti í gær. Hann er varaþing- maður Borgarahreyfingarinnar í Suðvesturkjördæmi og tekur sæti Þórs Saari, sem getur ekki tekið þátt í þingstörfum næstu tvær vikur af persónulegum ástæðum. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, forseti Alþingis, tilkynnti í upp- hafi þingfundar að Valgeir tæki sæti á þingi. Hann vann dreng- skapareið að stjórnarskránni svo sem venja er þegar menn taka sæti á þingi í fyrsta skipti. Valgeir er leikstjóri og tónlistarmaður með meiru. Verðum að leita til dómara Með Icesave-samningun- um sem nú liggja fyrir afsala íslensk stjórnvöld sér rétti til að fá úrlausn hlutlausra dómstóla í málinu. Þetta seg- ir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari í aðsendri grein sinni í Morgunblaðinu í gær. Hann segir réttinn til að fá úrlausn dómstóla í málinu helgan í öllum siðmenntuð- um ríkjum. Þá segir hann það skyldu íslenskra stjórnvalda að tryggja þjóðinni rétt til að fá úrlausn málsins fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstólum. Datt og rotaðist í fjallgöngu Kona af erlendu bergi brotin slasaðist í Reykjadal þegar hún var þar á göngu á miðvikudag- inn. Konan mun hafa dottið og fengið höfuðhögg sem varð til þess að hún missti meðvitund. Leitað var eftir aðstoð björgun- arsveitar í Hveragerði. Erfitt reyndist að komast á á staðinn og var þyrla Land- helgisgæslunnar fengin til að sækja konuna. Konan var í hóp á gönguferðalagi. Var hún illa búin til göngu, berfætt í sandöl- um og kvartbuxum. Lítrinn yfir 190 krónur Bensínlítrinn fór yfir 190 krónur í gær þegar Olís hækkaði verð á bensíni um 12,5 krónur lítrann. Hækkunin er tilkomin vegna breytinga á vörugjöldum sem tóku gildi 28. maí síðastliðinn. Þær birgðir sem félagið átti fyrir hækkun kláruðust 18. júní síðastliðinn að því er fram kem- ur á heimasíðu Olís, en frá því að breytingin tók gildi hefur félagið flutt inn bensín í tvígang. Al- gengasta verð á landinu hjá Olís í sjálfsafgreiðslu er því 192,30 krónur lítrinn fyrir 95 okt. og 196,60 fyrir dísil. Félagsfundir í kvöld þorvaldur þorvaldsson, þórður Björn Sigurðsson og guðrún dadda Ásmundardóttir hjá Hagsmunasamtökum heimilanna segja ríkisstjórnina ekki koma til móts við kröfur fjöldans. Stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna segir félagsmenn vilja hertar aðgerðir: Kosið um greiðsluverkfall Andstaða nokkurra þingmanna VG við Icesave-samninga og umsókn um aðild að ESB gera ríkisstjórnina valta í sessi. Risavaxnir erfiðleikar í ríkisfjármálum og í atvinnu- lífinu auka enn álagið. Á meðan vex gremja kjósenda sem finna æ betur fyrir hrammi kreppunnar í formi skattahækkana, niðurskurðar, verðhækkana og eignarýrnunar. TiTringur vegna icesave Þegar heim var komið var flestum ljóst að niðurstaðan yrði afar óaðgengileg fyrir Íslendinga; niðurstaðan væri svo gott sem fyrirfram ráðin enda hefði Ísland aðeins tvo af fimm fulltrúum í nefndinni. Atli Gíslason, þingmaður VG, segist hafa alla fyrirvara á því að samþykkja samningana um ríkisábyrgðir vegna Icesave-reikninganna. Atli er í leyfi frá þingstörfum en kemur til starfa í lok vikunnar. Hann kveðst ekki hafa kynnt sér málið í hörgul og bíði með yfirlýsingar þar til hann hafi kynnt sér samninginn og frumvarpið sem lagt verður fram á Alþingi í vikunni. Atli tók afgerandi afstöðu gegn ríkisábyrgðum á skuldum vegna Icesave eða annarra innistæðna í íslensku bönkunum innan EES- svæðisins í umræðum á Alþingi 5. desember síðastliðinn. Nauðung þjóðarinnar Á fundi Árna Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, 4. nóvember síðast- liðinn með fjármálaráðherrum ESB- ríkjanna var ábyrgð Íslendinga rædd ítarlega. Úr varð að sett var á fót fimm manna nefnd, eins konar gerðardóm- ur, sem átti að miðla málum. Þegar heim var komið var flestum ljóst að niðurstaðan yrði afar óaðgengileg fyr- ir Íslendinga; niðurstaðan væri svo gott sem fyrirfram ráðin enda hefði Ísland aðeins tvo af fimm fulltrúum í nefndinni. Niðurstaðan varð sú að íslensku fulltrúarnir tóku aldrei þátt í starfi nefndarinnar sem komst reynd- ar að því að Ísland bæri ábyrgð á er- lendum innistæðum í íslenskum úti- búum innan EES-svæðisins. Þung spor fyrir VG Atli Gíslason sagði meðal annars í ræðu á Alþingi 5. desember síð- astliðinn: „Það er vitað að fulltrúar nefndra ríkja, Bretlands, Þýskalands, Hollands, Frakklands og Austurrík- is, með Evrópusambandið, óskabarn Samfylkingarinnar, í fararbroddi, gerðu þá ósvífnu kröfu til Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins að gera Icesave- ábyrgðina að skilyrði. Það er ósvíf- ið í alþjóðasamskiptum og það er undarlegt til þess að vita að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn, sem við höfum átt aðild að í sextíu ár, skuli setja slík óviðkomandi skilyrði. Og hvað hékk þá meira á spýtunni? Jú, það kom fram í ræðu utanríkisráðherra að önnur hótun hékk á spýtunni, það er að Evrópska efnahagssvæðið yrði í uppnámi ef við gengjum ekki að þessum samningum. Þetta eru ótrú- lega ósvífnar hótanir.“ Ögmundur Jónasson, heilbrigðis- ráðherra og flokksbróðir Atla, spyrðir í Morgunblaðsgrein í gær með svip- uðum hætti saman hagsmuni áð- ugreindra þjóða inna ESB, meinta hagsmunavörslu AGS í þágu þjóð- anna og andstöðu VG við Evrópu- sambandið og Icesave-samninga: „Fyrir mitt leyti hef ég lítinn áhuga á að að komast í nánari snertingu við „vinaríkin“ í ESB sem láta sér ekki nægja að stilla okkur upp frammi fyr- ir afarkostum heldur reyna að græða á ógæfu okkar. Um það bera sérstakar álagsvaxtaprósentur Icesave-samn- ingsdraganna vott, að ekki sé minnst á aðra þætti sem birtast í aðför þeirra að Íslendingum.“ Því má segja að ein tilraun að minnsta kosti hafi farið út um þúfur til þess að miðla málum innan nefnd- ar þar sem báðir aðilar áttu fulltrúa. Ljóst er einnig að dómstólaleiðin á engan hljómgrunn meðal þjóða sem Íslendingar þurfa að semja við. Líf ríkisstjórnarinnar í húfi Vangaveltur eru um það hversu djúprist andstaða Atla, Ögmundar og að minnsta kosti tveggja annarra þingmanna VG sé við Icesave-samn- inginn. Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor metur það svo að nái væntanlegt frumvarp um ríkisábyrgð á Icesave-reikningunum ekki meirihluta á Alþingi þýði það endalok núverandi ríkisstjórnar. Steingrímur J. Sigfússon, fjár- málaráðherra og formaður VG, þarf sjálfur að mæla með samþykkt frum- varps um ríkisábyrgðina síðar í vik- unni sem getur aldrei orðið öðruvísi en í rökrænu samhengi við samning- ana við Hollendinga og Breta sem þegar hafa verið birtir. Ögmundur Jónasson lýsti því í áð- urgreindri grein að hann ætlaði að samþykkja umsóknarbeiðni að Evr- ópusambandinu lýðræðisins vegna þótt hann yrði að taka sér tak. Þings- ályktunartillagan um aðildarumsókn að ESB og væntanlegt frumvarp um ríkisábyrgð á Icesave skera úr um líf- daga þeirrar ríkisstjórnar sem forysta VG hefur lagt ríka áherslu á að verði langlíf. JóhaNN haukssoN blaðamaður skrifar: johannh@dv.is ósætti innan þings sem utan icesave hefur verið mótmælt fyrir framan alþingi og innandyra kraumar óánægjan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.