Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2009, Side 14
Sálfræðingar skipta viðbrögð-um fólks við áföllum í fimm þrep. Svarthöfði sér stjórn-málamenn dansa á hverju þrepi. 1Afneitun. Bjarni Benedikts-son, sem vildi taka upp evru í samstarfi við Alþjóðagjald-eyrissjóðinn fyrir kosningar, er enn í afneitun. Hann getur ekki einu sinni horfst í augu við eigin ábyrgð á efnahagshruninu. Það eina sem hann sér er að hann vill ekki að þetta sé svona, eins og hann sagði í Sjónvarp- inu algerlega lausnalaust: „Ég hef sagt það frá upphafi að mér hefur litist illa á það sem ég hef séð og fjallað er um í þessu samhengi.“ 2 Reiði. Rólyndismaðurinn úr Kastljósinu, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur verið gripinn síbrjálæði. Sigmund Freud myndi líklega álykta sem svo að hann væri fastur á „anal“-stiginu, en líklegra er að hann sé að sækja sér fylgi hjá þeim landsmönnum sem eru á reiðiþrepinu hverju sinni. 3Kenna einhverju/einhverj-um um. Sig-mundur Davíð og Bjarni Bene- diktsson leika við hvurn sinn fingur við að benda á aðra. Bjarni minnir á mann sem kýlir annan og brjálast svo yfir því að hann liggi rot- aður. Hvers vegna hringir enginn á lækni!? Hvers vegna leyfðuð þið mér að slá hann!? Því eins og allir vita var það hann og hans flokksmenn sem bera ábyrgð á Icesave-ruglinu. 4Þunglyndi. Jóhanna Sigurð-ardóttir er svo niðurdregin að ígulker virðist hresst í saman-burðinum. Hún uppfærðist nýlega um þrep. Áður var hún í því að kenna Sjálfstæðisflokknum og Fram- sóknarflokknum um allt. 5Sátt. Steingrímur J. er lengst kominn allra stjórnmála-manna. Hann býr nánast við búddískt nirvana. Enda ekki undarlegt að hann sé sáttur, því önn- ur eins fullnæging hefur ekki átt sér stað á Íslandi. Hann hefur loksins náð að svala valdaþorsta sínum, eins og kameldýr sem finnur vin eftir 40 daga eyðimerkurgöngu. Reiðin rann af Steingrími um leið og hann fékk völd- in, en það er eins og hann hafi smitað Sigmund Davíð af hundaæði. Þjóðin hefur þurft að ganga í gegnum þetta ferli marg-sinnis síðastliðið ár. Alltaf er einhver stjórnmálamaður- inn á afneitunarstiginu sem nær að koma fólki í verstu mögulegu stöðu fyrir áföll: Að telja fólki trú um að ekkert sé vandamálið. „Það er allt saman á bara hefðbundnu róli,“ sagði Geir Haarde með hægð, nokkrum dögum fyrir allsherjarhrun efnahagskerfisins. Geir sagði iðulega að botninum væri náð, þar til hann ávarpaði skyndilega Guð og menn bæði í einu og varaði við þjóðargjaldþroti. En ekki fyrr en hann hafði brosað sínu blíðasta í upphafi útsendingarinnar, líkt og hann ætlaði að knúsa okkur en ekki kynna örlög þjóðarinnar. Steingrímur J. fullyrti að „glæsi-leg niðurstaða“ væri að nást í Icesave-málinu, en hún reynd-ist felast í 650 milljarða króna ábyrgðum á 5,5% vöxtum og ákvæð- um um að Íslendingar afsöluðu sér fullveldinu yfir öllum eignum sínum. Það er ekki nema von að þjóð-in lendi í áfalli við að trúa þessum mönnum og stökkvi á milli afneitunar, reiði og þunglyndis, og taki síðan annað slíkt ferli áður en sáttastiginu er náð. Það vill nefnilega til að stjórn-málamenn eru í þeim bransa að spila á tilfinningar fólks, eins og Ásta Ragnheiður á bjöllu. Afleiðingin er að þjóðin er í stöðugu sjokki. Enda er kannski þörf- in á raflostmeðferð meiri hjá Íslend- ingum en öðrum þjóðum. þriðjudagur 23. júní 200914 Umræða Sigmundur reiði svarthöfði spurningin „Það held ég bara. Að minnsta kosti himnesk forsjá.“ alþingismað- urinn Ólína Þorvarðardóttir skrifaði á bloggsíðu sinni um að hún dottaði undir stýri í Eyja- og Miklaholtshreppi. Ólína var á leið heim og er viss um að engill hafi hnippt í hana í tæka tíð áður en bíllinn fór út af en hann var kominn yfir á rangan vegarhelming. Var þetta himnaSending? sandkorn n Forystumenn stjórnarflokk- anna lögðu mikið kapp á það í stjórnarmyndunarviðræð- unum að stjórnin fengi á sig norræna ímynd, meðal annars með funda- höldum í Norræna húsinu. Nafnið nor- ræna stjórn- in hefur þó ekki náð að festa sig í sessi og nú segja menn að annað nafn gæti farið að festast við stjórnina, nefnilega tafastjórnin. Mikl- ar tafir hafa orðið á ráðningu seðlabankastjóra, tafir hafa orðið á að stefnan sé mótuð í ríkisfjármálum og uppgjör á eignum gömlu bankanna hefur tafist. Stjórnarliðar hafa sett sér tímamörk en ítrekað þurft að færa þau aftur og finnst nú sumum sem það séu tafir öðru fremur sem einkenni störf stjórnarflokkanna. n Stjórnarandstæðingar hafa margir hverjir gagnrýnt stjórn- ina fyrir að smámál komi helst til kasta Alþingis en djúpt sé á mikilvæg- ustu málun- um. Því er fróðlegt að skoða þing- mál sem lögð hafa verið fram á Alþingi nýlega. Einar K. Guðfinnsson spurði um raforkukostnað í dreifbýli, Siv Friðleifsdóttir lagði fram þingsályktunartillögu um land- nýtingaráætlun fyrir ferða- mennsku á miðhálendinu og Eygló Harðardóttir spurðist fyrir um neyslustaðal. Stjórn- arliðar létu sitt ekki eftir liggja, Helgi Hjörvar spurðist fyrir um kynningarstarf vegna hvalveiða og Þórunn Sveinbjarnardóttir lagði fram tólf fyrirspurnir til tólf ráðherra um kyn forstjóra og forstöðumanna. n Þrátt fyrir að nýbúið sé að til- kynna að verulega verði dregið úr ferðalögum þingmanna er ekki þar með sagt að allar ferðir verði slegnar af. Þannig voru ekki færri en sex íslensk- ir stjórn- málamenn samankomnir í Hamar í Noregi í gær. Þar fóru fram ráðherra- og þingmanna- fundir á vegum EFTA. Össur Skarphéðinsson utanríkisráð- herra fór fremstur í flokki en með honum voru þau Árni Þór Sigurðsson, Þorgerður Katr- ín Gunnarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Sigmundur Dav- íð Gunnlaugsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir. Meðal þess sem rætt var á fundinum var hugsanleg ESB-aðildar- umsókn Íslendinga og ákveð- ið að halda annan fund ef af verður. LyngháLs 5, 110 rEykjavík Útgáfufélag: útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og þórarinn þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Ekki hefur mér enn borist svarbréf frá Björ- gólfi Thor.“ n Illugi Jökulsson sem skrifaði Björgólfi Thor Björgólfssyni opið bréf þess efnis hvort hann myndi ekki borga það sem upp á vantaði í Icesave-skuldinni. – DV.is „Sendiherrann var afar fljótur að hugsa og reddaði leiknum fyrir okkur.“ Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, sem fekk lánaða derhúfu á markvörð leiksins frá sendiherra Íslands í Eistlandi. – Fréttablaðið „Ég er að verða pirraður hérna bara á meðan ég tala við þig.“ Ómar Stefánsson, oddviti framsóknarmanna í Kópavogi, segist bíða óþolinmóður eftir hugmyndum Sjálfstæðisflokksins um framtíð samstarfsins. – Vísir.is „Menn upplifðu hér á bílaplaninu að það væri í rauninni ekkert heilagt hjá honum.“ Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri um ökuníðinginn sem ók á dyr slökkviliðsstöðvarinn- ar í Skógarhlíð. – Vísir.is „Á þessum einstöku tímum gefur smæð þjóðfélagsins okkur forskot og samvinna og landamæraleysi innan hinna skapandi stétta getur leyst úr læðingi krafta sem koma öllum á óvart.“ Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður svarar gagnrýni Bandalags íslenskra listamanna vegna vals Reykjavíkurborgar á borgarlistamanni þetta árið. – Fréttablaðið. Einstök tækifæri Leiðari Kjöraðstæður eru nú til að hagræða í þjóðfélaginu, komandi kynslóðum til heilla. Íslenska góðærið var ekki sjálfbært og dæmt til að líða und- ir lok með hvelli, en nú þrýstir tvennt á þró- un í rétta átt: Núverandi ríkisstjórn verður að spara og hún gerir út á rauðgræna stefnu um sjálfbærni. Svo heppilega vill til að sjálfbærni í náttúruvernd fer oft til lengri tíma saman við fjárhagslega sjálfbærni. Skýrasta dæmið um að fjárhagsleg og nátt- úruvæn sjálfbærni fari saman er almennings- samgöngur. Ef þær eru styrktar minnkar inn- flutningur eldsneytis og bifreiða. Þær gera almenningi kleift að spara minnst hundruð þúsunda á ári. Árið 2007 vildi fólk fremur taka bílalán en taka strætó. Nú knýr nauðsyn fólk til að velja almenningssamgöngur. Aðstæður fyr- ir þjóðhagslegan sparnað og bættara umhverfi þessu tengt eru nánast fullkomnar. Ríkisstjórn- in gerir hins vegar ekkert til að bæta almenn- ingssamgöngur, þvert gegn hugmyndafræði sinni og þjóðhagslegri nauðsyn. Á hinn bóginn er strætó skattlagður af ríkinu. Annað tækifæri felst í því að losna und- an innfluttu bensíni með því að hefja rafbíla- væðingu landsins. „Allar forsendur til að inn- leiða rafbíla hérlendis eru fyrir hendi,“ segir í skýrslu Steingríms Ólafssonar frá september síðastliðnum sem Össur Skarphéðinsson setti í gang þegar hann var iðnaðarráðherra. Þar mælir höfundurinn með því „að leitað verði allra leiða við að innleiða rafbíla hérlendis“. Til skamms tíma græðir ríkissjóður hins vegar meira á bensíneyðslu í gegnum skattlagningu. Enn eitt tækifærið felst í því að innleiða fjár- mál einstaklinga sem námsgrein í grunnskól- um. Engin önnur námsgrein er jafnmikilvæg fyrir einstaklinga jafnt sem þjóðfélagið, jafnvel þótt hún skili engum ábata fyrir þjóðarbúið á allra næstu árum. Önnur tækifæri hafa sprottið upp úr okkar helstu vandamálum. Hrun efnahagsins fylgdi uppbrot á spilltu valdakerfi og krosseigna- tengslum auðjöfra. Að auki eflir veik króna útflutning og letur innflutning, með þeim af- leiðingum að Ísland var í tæplega tólf milljarða plús af viðskiptum sínum við útlönd fyrstu þrjá mánuði ársins. Landið sækir nú sjálfkrafa í átt að sjálfbærni, þótt umsnúningurinn sé mörg- um erfiður. Í forsætisráðherratíð sinni rak Geir H. Haarde ríkissjóð líkt og fyrirtæki, úr tengsl- um við langtímahagsmuni þjóðarinnar. Tak- markið var einfaldlega að afgangur væri af ríkissjóði, jafnvel þótt skuldir heimila og fyrirtækja yxu svo hratt á sama tíma að ekk- ert mætti út af bera. Innan hugmyndafræði Geirs rúmaðist að bankar legðu þjóðina að veði í gjaldeyrishappdrætti sem hlyti að taka enda þegar lánaflóðið snerist upp í útflæði afborgana. Tilfellið var að auðvelt reyndist að ná af- gangi á ríkissjóð þegar skattlögð neysla stór- jókst með hjálp lána og bankarnir skiluðu gervihagnaði. Þrátt fyrir aðsteðjandi vandamál, og kannski vegna þeirra, er nýja ríkisstjórnin í einstakri aðstöðu til að móta heilbrigt sam- félag til frambúðar. Til þess þarf hún hins vegar að hugsa út fyrir ríkiskassann. xxx ritStjóri Skrifar. Þrátt fyrir aðsteðjandi vandamál, og kannski vegna þeirra, er nýja ríkisstjórnin í einstakri aðstöðu bókstafLega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.