Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. júlí 2009 fRéttIR 1. Mannauður er framtíð lands- ins, því þarf að gera fólki auðvelt að mennta sig á meðan kreppan gengur yfir. Styrkja háskólana í landinu og viðhalda háu menntaframboði á öll- um stigum. Nýsköpun, töluvert hefur verið gert í nýsköpunarmálum síðustu ár og þarf að auka hér við, gefa sprotafyr- irtækjum fyrirgreiðslur til að þau geti ráðið fólk til sín. Þá þarf að aðstoða sprotafyrirtæki sem eru tilbúin með vöru að koma henni á markað. Öll okkar stórkostlegu fyrirtæki Actavis, Össur, Marel ... byrjuðu sem sprotar, og það eru margir aðrir nýir sprotar þarna úti. Varast þarf að fara út í „atvinnubóta- vinnu“ þar sem fólk er að „moka sand til að moka sand“, heldur nýta okkar mannafl til starfa sem hafa til- gang til lengri tíma litið. 2. Gagnaver (netþjónabú) eru mér hugleikin, þetta er næsta stóriðja Íslands. Græn ímynd landsins, orka úr iðrum jarðar, vel menntaðir sér- fræðingar, eitt besta orkuafhending- ar öryggi í heimi, góður infrastruktur til gagnaflutninga; allt þetta er lykill að árangri Íslands í samkeppni um næstu staðsetningu gagnavera. Landbúnaður er lykill að matvælaör- yggi, bæði á tímum efnahagsþreng- inga og einnig vegna gæða og eftir- lits. Því meir sem við framleiðum hér því minni innflutningur. Lyftum íslenskum landbúnaði aftur á þann stall sem hann á skilið. Við eigum óhemjumikla óbeislaða orku, sem við getum nýtt mun bet- ur með því að rafvæða bílaflotann. Setjum takmarkanir á innflutning á eldsneytisbifreiðum, og veitum fyrir- greiðslur fyrir rafbíla. 3. Minnka yfirbygginguna í ríkis- rekstri. Við erum búin að búa til skrímsli úr þessu ríkisbákni okkar sem þarf að vinda ofan af. Leitum allra leiða til að einfalda kerfið og gera alla starfsemi hins opinbera skilvirkari. Leggja niður varnarmálaskrifstofu, loftrýmiseftirlit annan eða þriðja hvern mánuðuð er „joke“ sem hefur engann tilgang og kostar okkur allt of mikið. Ísland er herlaust land og hefur ímynd friðarsinna í samfélagi þjóðanna, byggjum okkar ímynda áfram á friði og samfélagsvitund. Stoppum hvalveiðar, strax! Það er óþolandi að eitthvað eitt fyrirtæki geti eyðilagt áratuga uppbyggingu í ferðamannaþjónustu. Hvalveiðar fortíðarhugsun og eiga eingöngu að vera stundaðar í sátt við aðrar þjóðir. Ferðaþjónusta er framtíðar-atvinnu- grein á Íslandi, gerum allt til að auka fjölbreytni og styrkja greinina. JónAs tRyGGVAson framkvæmdastjóri titan Global ehf: Stoppa hvalveiðar Strax fInnUR GeIRsson forstjóri nóa siríus, doktor í haG- fræði oG fyrrum formaður samtaka atvinnulífsins: MarkaðSöflin njóti Sín 1. Mikilvægast er að huga að bættum starfsskilyrðum fyrir- tækja, en þannig dregur helst úr atvinnuleysi. Stjórnvöld eiga að senda út skilaboð sem hvetja fyrir- tæki til dáða og þar með atvinnu- sköpunar. Sættir við alþjóðlegt samfélag og endurreisn banka- kerfis eru mikilvægt innlegg í þessu sambandi. 2. Gengislækkun krónunnar ein og sér hækkar útflutningsverð- mæti og dregur úr innflutningi. Þetta sjáum við í formi stöðugt hagstæðari vöruskiptajöfnuðar. Best fer á því að markaðsöflin fái að njóta sín og forðast ber sértæk- ar ráðstafanir sem ætlað er að efla útflutning og hefta innflutning. 3. Varast að festa í sessi ýmsar aðgerðir sem kunna að vera tíma- bundið nauðsynlegar til að ná betra jafnvægi í ríkisfjármálum. Á Íslandi býr duglegt, vel menntað og skynsamt fólk sem þarf að búa við frjálsræði til að njóta sín og fullvissu um að því verði ekki refs- að fyrir að leggja sig fram. Þannig eykst hagkvæmni helst. 4. Krónan er til trafala framförum á sviði viðskipta og viðheldur aga- leysi sem hefur komið okkur í koll. Við verðum að taka upp annan al- þjóðlega viðurkenndan gjaldmiðil sem hentar best viðskiptahags- munum okkar. Góðar líkur eru á því að evran sé sá gjaldmiðill og útlit fyrir að aðild að Evrópusam- bandinu sé nauðsynleg forsenda fyrir því að taka hann upp. 1. Gefa nýjum fyrirtækjum skattfríð- indi og kost á bókhaldsaðhaldi í til- tekin ár til þess að fókusera og byggja upp reksturinn. Leyfa ráðningu at- vinnulausra með einungis launa- greiðslum úr atvinnuleysissjóði með gegnsæju bókhaldi. Rýmka reglur atvinnuleysissjóðs, auka svigrúm en herða refsingar ef brotið er. 2. Uppbygging iðnaðar sem krefst takmarkaðra fjárfestinga í erlendum gjaldeyri, ferðaiðnaðar, tækniiðnað- ar, lífrænnar ræktunar. Spennandi sparnaður og sjálfkrafa samdráttur innflutnings. Kynna hæðir og lægðir efnahagslífs þjóðarinnar. Hvernig getum við í daglegu lífi haft áhrif á efnahag landsins? Bjargfastur þáttur eftir veðurfregnum. 3. Algjör nauðsyn. Íslenska ríkis- stjórnin verður að styðja tilkomu fag- legs og forvitnilegs sjónvarpsþáttar um þjóðmál sem sameinar og hvetur þjóðina til dáða. Skapa skýra atvinnu- málastefnu í samráði við þjóðina og festa í stjórnarskrá þannig að ekki verði breytt nema með þjóðarat- kvæðagreiðslu. 4. Nú er gengi íslensku krónunnar hagstætt fyrir uppbyggingu innan frá, það væri alveg eftir okkur að henda henni út og setja upp hærri þrösk- ulda. Ný mynt er ekki tímabær núna. Ný mynt, nýjar skuldbindingar, ekk- ert val mögulegt að svo stöddu. Undur íslenkrar náttúru Eldfjallagarðar á Reykjanesi eru milljarða virði fyrir íslenskan efna- hag. Mikill undirbúningsvinna liggur þegar fyrir, framhald krefst ákvörð- unar, hönnunar og framkvæmdar. Risa verkefni sem má taka stig af stigi, byggja upp ævintýraviðverustaði fyrir heilsárs uppákomur (sömuleiðis fyrir okkur). Heilsubrunnurinn Ísland Snúum vörn í sókn, nýtum okkar þróaða heilbrigðiskerfið og færni hjúkrunarfólks sem atvinnutæki- færi. Skorum á Robert Wessman að leggja inn heilsuverkefnið sem hann er að huga að í Keflavík, gera það að þjóðarátaki í sameign hans og þjóð- arinnar allrar. Lífræn ræktun Við eigum landrými, við eigum orku, Hollendingar eiga reynslu í blóma- rækt og háþróað „logistic“ kerfi. Sameiginlegt framtak. Heimurinn gerir sífellt háværari kröfur um holl- ustufæði, við getum afgreitt. Ísland er ímynd hollustu og gæða í hugum flestra, gerum út á okkar tækifæri. GeRÐUR PálMADóttIR kaupmaður í hollandi: lífræn ræktun Til að hraða sem mest endurupp- byggingu er mikilvægt að tryggja að til staðar sé samkeppnisrekstur þar sem fyrirtæki sýna ábyrgð og láta langtímasjónarmið ríkja yfir skammtímasjónarmiðum. Þetta þýðir einnig að það sama þarf að vera til staðar hjá ríkinu. Tryggja að lánshæfismat landsins uppfylli lágmarksmarkmið um uppbyggingu atvinnulífs og að fjármálamarkaði sé komið á fót á ný þannig að hann virki með eðli- legum hætti. Ríkið tryggi samráð við lánshæfismatsfyrirtækin. Án alþjóðlegs lánstrausts verður leiðin torsótt vegna þess hve fjár- frekir innlendir atvinnuvegir eru. Afnema þarf gjaldeyrishöft svo fljótt sem unnt er þannig að fyrir- tæki og einstaklingar geti stundað eðlileg viðskipti milli landa. Allt þetta kallar á endurheimt trausts í landinu. Til þess að ná því trausti þurfum við að horfast í augu við mistök okkar og draga af þeim lærdóm. Þann lærdóm þurfum við að nýta til að byggja upp traust atvinnulíf. Rannsókn á hruninu er því grundvallarforsenda upp- byggingar, samhliða endurreisn hornsteina kerfisins. Þeir sem uppi standa eftir h run fjármálamarkaða þurfa jafn- framt að leggja fram afl til upp- byggingar með fjárfestingu í væn- legum tækifærum. Leikreglur þurfa því að vera eins skýrar og hægt er. Við höfum áður unnið okkur út úr miklum vanda og við munum gera það aftur. Gjaldmiðillinn er hluti af stærri pólitískri spurningu sem er sú hvar Ísland kýs að skipa sér í samfélagi þjóða; að vera innan Evrópusambandsins eða utan? Ég segi já við spurningu um aðild með fyrirvara um ásættan- lega samn- inga. Sú af- staða mótast ekki síst af þeim hörm- ungum sem sjálfstæður gjaldmiðill og peningamála- stefna síðustu ára hefur átt þátt í að skapa. BJARnI áRMAnnsson, fjárfestir oG fyrrverandi forstjóri Glitnis. já við eSB KOMDU Í ÁSKRIFT Hringdu í síma 515 5555 eða sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða farðu inn á www.birtingur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.