Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Qupperneq 8
8 miðvikudagur 15. júlí 2009 fréttir
Heimildarmaður DV á fundi forsvarsmanna Seðlabankans og
Landsbankans 5. október telur víst að Davíð Oddsson hafi mis-
skilið Mervyn King, forstjóra Englandsbanka. Óhugsandi sé að
King hafi talið forsvaranlegt að innistæður væru ótryggðar og
hefðu lítið hald í tryggingarsjóði viðkomandi landa.
Dýr misskilningur
ef sannur reynist
Davíð Oddsson, þáverandi seðla-
bankastjóri, hitti að minnsta kosti þrjá
forystumenn Landsbankans ásamt
seðlabankastjórunum Ingimundi
Friðrikssyni og Eiríki Guðnasyni á
fundi sunnudaginn 5. október síðast-
liðinn. Á fundinum var einnig ritari
frá Seðlabankanum sem ritaði fund-
argerð. Samkvæmt heimildum DV
gerðu bankastjórar Landsbankans
áhyggjur sínar af þjóðnýtingu Glitnis
nokkrum dögum áður að umtalsefni.
Þjóðnýtingin hefði skapað óróa varð-
andi Icesave-reikningana í Bretlandi.
Því væri vel við hæfi að íslensk stjórn-
völd lýstu yfir að ríkið ábyrgðist allar
innistæður líkt og aðrar þjóðir, þar á
meðal Írar, Grikkir og Hollendingar,
höfðu gert án þess að stofnað yrði til
útgjalda.
Á fundinum mun Davíð hafa nefnt
samtöl sín við Mervyn King, forstjóra
Englandsbanka. Einn fundarmann-
anna, sem DV hefur rætt við, seg-
ir að Davíð hafi haldið því fram að
King hefði ekki gert kröfu um að rík-
ið ábyrgðist innistæðurnar. Heimild-
armaðurinn fullyrðir að King hljóti að
hafa meint það svo að ábyrgð félli ekki
á íslenska ríkið ef lögsagan yfir Icesa-
ve yrði tafarlaust flutt yfir til Bretlands.
Með öllu sé óhugsandi að King hafi
meint það svo að lágmarksinnistæð-
ur væru ótryggðar. Misvísandi túlkun
Davíðs hafi síðar bakað ekki aðeins
bankamönnum, heldur einnig Geir H.
Haarde, þáverandi forsætisráðherra,
og Árna Mathiesen, þáverandi fjár-
málaráðherra, túlkunarvanda meðal
annars í frægu samtali Árna við Alas-
dair Darling, fjármálaráðherra Breta,
strax eftir helgina örlagaríku.
Óbirt gögn
Davíð Oddsson sagði í þættinum Mál-
efnið á Skjá einum í fyrrakvöld að til
væru afrit af samtölum hans við Merv-
yn King, líklega í fórum rannsóknar-
nefndar Alþingis. Hann endurtók í
þættinum að Mervyn King hefði efn-
islega sagt í umræddum samtölum
að ef Tryggingarsjóður innistæðu-
eigenda réði ekki við vandann myndi
hann (Mervyn) ekki gera kröfu um að
ríkið ábyrgðist innistæðurnar. Kvaðst
Davíð hafa þakkað Mervyn fyrir.
DV hefur leitað eftir að fá afrit af
þessum samtölum Davíðs og forstjóra
Englandsbanka en án árangurs. 17.
mars lagði DV fram eftirfarandi fyrir-
spurn í fjórum liðum hjá Seðlabank-
anum:
Ræddi Davíð Oddsson við Merv-
yn King í síma á fyrstu dögum októ-
bermánaðar sl.? Ef svo: Er til upp-
taka af símtali DO og MK? Ef ekki er
til upptaka af umræddu símtali inn-
an Seðlabankans? Er til minnisblað
um þetta símtal og efni þess? Kannast
einhver innan Seðlabankans við að
Davíð hafi rætt efnislega samtal sem
hann er sagður hafa átt við Mervyn
King í upphafi októbermánaðar?
Spurningum ósvarað
Engin svör hafa borist enn frá Seðla-
bankanum. Sambærilegar spurningar
voru einnig lagðar fyrir Bank of Eng-
land í níu liðum 11. mars síðastliðinn.
Tveimur dögum síðar svaraði bank-
inn að samkvæmt starfsvenjum væri
ekki hægt að afhenda upptökur eða
annað efni af einkafundum og einka-
samtölum sem tengdust einstökum
fjármálastofnunum.
Samkvæmt því sem rakið var úr
úttekt Fridu Fallan, sérfræðings hjá
sænska seðlabankanum, í DV í gær er
almennt viðurkennt, þrátt fyrir ágalla
í regluverki ESB um ábyrgð á inni-
stæðum, að á endanum sé heimaland
gjaldþrota banka og þar með ríkið
tryggjandi innistæðna til þrautavara.
Fallan telur hins vegar ágallana á kerf-
inu svo mikla að Íslendingar eigi sér
drjúgar málsbætur. Rétt hefði verið að
Þróunarbanki Evrópu hefði tekið þátt í
að endurfjármagna íslensku bankana
og gallar kerfisins hefðu átt að knýja
Breta og Hollendinga til að taka á sig
hluta byrðanna af falli bankanna. Slík
niðurstaða hefði skapað Íslandi betri
stöðu en unnt var að fá með samning-
um við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
JÓhann hauKSSOn
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Seðlabankastjórinn
fyrrverandi Fullyrt er að
Davíð Oddsson hafi misskilið
Mervyn King, forstjóra Bank
of England, með herfilegum
afleiðingum.
Icesave Þótt hart sé deilt um Icesave-
samninginn eru fæstir þeirrar skoðunar
að unnt sé að vefengja lagalega ábyrgð
á lágmarksinnistæðum.
Með öllu sé óhugsandi
að King hafi meint það
svo að lágmarksinni-
stæður væru ótryggðar.