Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Qupperneq 18
Miðvikudagur 15. júlí 200918 tóMstundir Hreindýraveiði hefst í dag. Heimilt er að skjóta 1.333 hreindýr sem er sami kvóti og í fyrra en sam- setning á milli svæða og kynja er ekki sú hin sama. Fyrsta kastið má aðeins skjóta tarfa en veiði á kúm hefst svo 1. ágúst. Jóhann Guttorm- ur Gunnarsson hjá Umhverfisstofn- un á Egilsstöðum útskýrir að veðrið sé einn stærsti einstaki áhrifavald- urinn í því hvernig veiðarnar ganga, þar eð alræmd þokan geti sett strik í reikninginn. „Jafnvel þótt það sé prýðilegt veður hér á heiðunum á Héraði get- ur verið svartaþoka niðri á fjörð- um,“ segir hann. Stór hluti veiði- manna vill ekki koma á veiðar fyrr en einhvern tímann eftir 20. ágúst. Þá til þess að komast á gæsaveiðar í sömu ferð. „Þetta hefur gert það að verkum að stundum hefur mynd- ast nokkurs konar biðraðastemning við veiðarnar, sem er nú líklega ekki það sem veiðimenn eru að sækjast eftir.“ Með allt á hreinu Til þess að veiða hreindýr þurfa veiðimenn að hafa leyfi fyrri stærri rifflum. Þá mega þeir sækja um hreindýraveiðileyfi hjá Umhverf- isstofnun, en um það bil þrjár um- sóknir eru um hvert úthlutað leyfi. Því er um nokkurs konar happ- drætti að ræða. „Þegar menn hafa fengið veiðileyfið þurfa þeir að út- vega sér leiðsögumann sem hefur hlotið leyfi Umhverfisstofnunar til að leiðsegja á hreindýraveiðum og á veiðarnar þurfa menn að hafa með sér útgefið hreindýraveiðleyfi, skot- vopnaleyfi, veiðikort og lánsheim- ild ef þeir kjósa að fá skotvopn að láni,“ segir Jóhann. Leiðsögumenn með réttindi eru um áttatíu talsins og segir Jóhann að mönnum ætti því ekki að reynast erfitt að skipuleggja veiðarnar. „Það kemur brátt að því að haldin verða fleiri námskeið fyrir leiðsögumenn, en eins og stendur er verið að bíða eftir endurbótum á veiðilöggjöfinni og reglugerðum sem snúa að hrein- dýraveiðum.“ Stórt veiðiSvæði Veiðisvæðin eru níu talsins og ná frá Vopnafirði og suður í Suðursveit. Hlutverk Jóhanns er meðal ann- ars að fylgjast með veiðunum og fá þannig yfirsýn yfir það hverjir eru á veiðum og hvar hreindýrahóparnir halda sig. „Þetta getur verið nokkur hasar þegar margir eru á veiðum, en þýðir fyrst og fremst að ég er mikið í símanum,“ segir hann. Leiðsögu- menn koma sér í samband við Jóhann og tilkynna hverja þeir eru að fara með til veiða og á hvaða svæð- um. Jóhann læt- ur svo leiðsögu- mennina vita hvar sést hefur til dýra og hvar veitt var dag- inn áður. „Þetta flýtir fyrir veið- unum og eykur samvinnuna.“ Þegar blaða- maður heim- sótti Jóhann á skrifstofu Um- hverfisstofnunar á Egilsstöðum var hann í óða önn að útbúa veiðileyfin. „Nú þarf að koma þessum leyfum í pósti til veiðimannanna.“ halda Sig fyrir auStan Aðspurður hvort ekki hafi frést af hreindýrum utan veiðisvæðanna níu, svarar Jóhann að vissulega hafi heyrst um slíkt. Hins vegar virðast dýrin ekki nema land utan Aust- urlands- ins. „Það er skemmst að minnast frétta frá því í fyrrasum- ar af hrein- kú sem var sögð halda sig á Arnar- vatnsheið- inni. Mér var sagt að þessi kýr hafi verið ljósmynd- uð en aldrei sá ég þessa mynd,“ segir Jóhann. Hann bendir á að engu að síður séu jöklar og fallvötn ekki sérstakir farartálmar fyrir hreindýrin. „Það er helst að þau fari ekki suður fyrir Breiðamerkurlón, sem er ágætt, því þar er varnarlína sauðfjársjúkdóma. Hins vegar er það þekkt að hrein- dýr fari vestur fyrir Jökulsá á Fjöll- um. Þau synda léttilega yfir,“ seg- ir hann. Hreindýrum líkar ekki vel við rafmagnsgirðingar, „hins veg- ar stökkva þau yfir allar venjulegar girðingar ef þau ætla sér“. Skrautlegar flökkuSögur Sögusagnir um veiðiþjófnað á hreindýrum hafa lengi lifað með þjóðinni. „Sennilega á hann sér stað og það er mikið til af flökku- sögum. Það er nú líklega óhætt að draga aðeins frá þessum sögum. Hins vegar fundust tvö dýr á suð- austurhorninu í nóvember í fyrra sem höfðu verið skotin og skilin eft- ir skammt frá þjóðvegi. Þetta bendir auðvitað til þess að veiðiþjófnaður eigi sér stað. Hins vegar er ekki hægt að notast við sögusagnir til þess að leggja fram kærur.“ Þegar Jóhann er beðinn um dæmi um frásögn af veiðiþjófn- aði fer hann undan. „Þetta eru mý- margar sögur frá ýmsum tímum og ómögulegt að vita hvað er til í þeim. Ætli ég reyni ekki frekar að skrásetja eitthvað af þessum sögum þegar ég er hættur að vinna við þetta,“ segir Jóhann að lokum. sigtryggur@dv.is hafin n Heimilt er að veiða 1.333 hrenidýr í sumar sem er sami kvóti og í fyrra. Dreifingin er þó ekki sú sama á milli veiðisvæða. Ásókn í leyfi viriðst ekki hafa dalað þrátt fyrir kreppu, að mati Jóhanns Gunnarssonar hjá Umhverfisstofnun á Egilsstöðum. Hann er sá sem fylgist með því hvar veiðimenn og hjarðir halda sig á veiðitímanum. Hreindýraveiðin HreindýraHJörð Það er helst alræmd Austfjarðaþoka sem hamlar hreindýraveið- um. Veiðmönnum er því ráðlagt að skammta sér ekki of nauman tíma til veiðanna. JóHann Gunnarsson „Sennilega á veiðiþjófnaður sér stað og það er mikið til af flökkusögum.“ Veiðileyfin Leyfi á tarf og kú. Veiðimenn þurfa að hafa pappírana í lagi. Hjáleigan Café Opið daglega 12-18 Léttar veitingar í boði Velkomin! Opið daglega 10. júní – 10. sept. kl. 10 - 18 Velkomin í Minjasafnið að Bustarfelli í Vopnafirði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.