Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 22
Miðvikudagur 15. júlí 200922 austurland
Veitingastaðurinn Víkin
Höfn í Hornafirði
Laugardagskvöldið 18. júlí
munu snillingarnir í Hljómsveitinni Dísel
halda uppi biluðu stuði... eins og
þeim einum er lagið.
Frábær upphitun fyrir verzlunar- mannahelgina =)
Skilríki takk.Aðgangseyrir 1800 kr.
Eldhúsið er opið alla daga frá hádegi til 22:00.
Pizzur og brauðstangir.Kjötréttir – fiskréttir – smáréttir - salöt
súpur - samlokur – hamborgarar – humarréttir – humarloka
humarsúpa – eftirréttir.
Víkin | Restaurant/Bar | Víkurbraut 2 | 478 2300
Listahátíðin LungA hófst formlega
á mánudag en hún stendur fram á
sunnudag á Seyðisfirði. Rík áhersla
er lögð á list fyrir ungt fólk og list-
sköpun en ævintýralegt andrúmsloft
skapast jafnan á hátíðinni. Þetta er í
tíunda skipti sem hátíðin er haldin
og er hún farin að festa sig í sessi sem
ein af skemmtilegri menningar- og
sumarhátíðum sem boðið er upp á.
Ýmsar uppákomur verða á dag-
skrá í vikunni en hápunktar hátíð-
arinnar eru sem fyrr á föstudags-
og laugardagskvöldinu. Á föstudag
stendur útgáfufyrirtækið Kimi Rec-
ords fyrir tónleikum þar sem fram
koma Björt, Króna, Miri, Sudden
Weather Change, Swords of chaos
og Reykjavík! Á laugardaginn er svo
aðalviðburður hátíðarinnar þar sem
GusGus, Jagúar, Mugison, B.Sig og
Skakkamanage koma fram.
Fjölmargir þekktir listamenn hafa
komið fram á hátíðinni í gegnum
tíðina en í fyrra lék til dæmis hinn
heimsfrægi Andres Trentemöller
fyrir dansi í Herðubreiðinni ásamt
Kasper Bjorke.
asgeir@dv.is
LungA Menningar- og
listahátíð sem haldin er í tíunda
sinn á Seyðisfirði.
Listahátíð unga fólksins hafin á Seyðisfirði:
lunga
í fullum gangi
Björt Sigfinnsdóttir Einn stofnenda
og forsvarsmanna LungA.