Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Síða 24
Miðvikudagur 15. júlí 200924 austurland
Veisluþjónusta - Brúðkaup - Smurbrauðsþjónusta
Fundir - Grillveislur - Bar - Dansleikir
Við getum allt!
Valaskjálf
Skógarlönd 3 | 700 Egilsstaðir
Sími 470 9700 | www.valaskjalf.is
13.ágúst fm 957 með trúbbakvöld
14.ágúst fm 957 ball með súpergrúbbunni
15.ágúst DJ Elli Mý þeitir skífum
21.ágúst tónleikar með Hvanndalsbræðum
22.ágúst Hljómsveitin Buff spilar á Ormsteitis balli
Dagskrá í ágúst á Ormsteiti
„Það eru komnir fimm laxar úr Jöklu
nú þegar, sem er framar öllum mín-
um vonum,“ segir Þröstur Elliðason,
sem nú er leigutaki Jökulsár á Brú,
Jökulsár á Dal eða einfaldlega Jöklu,
eins og hún er kölluð í daglegu tali. „Á
þessum tíma hef ég meira selt þetta
sem silungsveiði,“ bætir hann við.
Jökla er vatnsfallið sem nú hefur
verið virkjað með Kárahnjúkavirkj-
un. Á meðan vatni er safnað í Háls-
lón er enginn jökullitur á vatni Jöklu,
heldur er hún þá hefðbundin dragá í
stærri kantinum.
„Við höfum ekki gert ráð fyrir mikl-
um veiðiskap þarna svona snemma,
en fyrsti laxinn kom á land 1. júlí.
Auðvitað eru þarna fyrirtaks veiðiár í
Jökulsárhlíðinni sem renna út í Jöklu.
Þarna er ég að tala um ár á borð við
Fögruhlíðará, Kaldá og Laxá,“ seg-
ir Þröstur, sem nú hefur hafið seiða-
sleppingar á svæðinu.
Veiðistaðir birtast
Þegar ekið er út Jökuldalinn má
glögglega sjá að í Jöklu sjálfri eru
margir fyrirtaks veiðistaðir. Ekki er
þó alveg útséð með möguleikana.
„Við vitum ekki nákvæmlega hversu
langt laxinn getur eða vill ganga. Það
eru þarna nokkrir staðir sem geta
reynst laxinum erfiðir yfirferðar,“
segir Þröstur. „Það er alltaf að skap-
ast ný reynsla.“
Þröstur sleppir gönguseiðum í
Jöklu með sama hætti og gert er í
Breiðdalsá og í Rangánum, eins og
þekkt er orðið. „Við tökum í klak á
svæðinu og viðhöldum þannig stofn-
inum. Ég þurfti engu að síður að
fá heimild til þess að nota seiði úr
Breiðdalnum eitt árið, svona til þess
að sparka þessu í gang.“
YfirfallsVatn úr Hálslóni
Þegar Hálsón fyllist fer yfirfallsvatn
úr Brúarjökli að flæða niður farveg
Jöklu. Þá minnka möguleikar stang-
veiðimanna í Jöklu sjálfri enda þótt
hliðarárnar séu veiðanlegar eins og
áður. „Jökla fór á yfirfallssvatn 19.
ágúst í fyrra.“ Þetta árið varð vatns-
staða Hálslóns þó lægri en almennt
var búist við þannig að Jökla verður
mögulega veiðanleg lengra fram eftir
sumrinu.
„Það má ekki gleyma því að ár
eins og Kaldá og Fögruhlíðará eru
miklar ágætis veiðiár. Því var stund-
um haldið fram að það væri enginn
lax í Fögruhlíðará en þar tókum við
dálítið af laxi í klak í fyrra. Ég held
að heildarveiðin hafi verið hátt í tvö
hundruð laxar.“
Fiskiræktin á svæðinu hófst fyr-
ir alvöru fyrir tveimur árum. „Ég
gerði þó örlitla tilraunsleppingu fyr-
ir þremur árum,“ segir Þröstur. „Þetta
eru einhverjir tugir þúsunda göngu-
seiða á hverju ári.“
áfram í rólegHeitum
Á svæðinu eins og það er skipulagt
í dag eru leyfðar fjórar til sex stang-
ir í veiði. „Það blasir þó við að ef
fiskræktin gengur upp er þetta stórt
svæði sem þolir talsvert meira veiði-
álag. En við erum auðvitað bara að
þreifa okkur áfram í rólegheitunum.“
Fyrst í stað notaðist Þröstur við fé-
lagsheimilið Hálsakot í Jökulsárhlíð
sem veiðihús. „Nú erum við búin að
byggja það nánast upp á nýtt þannig að
þar verður hægt að bjóða upp á þjón-
ustu þegar fram í sækir. Þarna erum
við með sjö tveggja manna herbergi,
setustofu, gott eldhús og verönd.“
n Fimm laxar voru komnir úr Jöklu og
hliðarám hennar þegar DV ræddi við Þröst
Elliðason, leigutaka árinnar, í vikunni.
Hann segir þetta vera býsna snemmt á
þessu svæði. Náttúran komi sífellt á óvart.
Á meðan ekkert yfirfallsvatn kemur í Jöklu
úr Hálslóni er Jökla tær dragá og svæðið í
rauninni óplægður akur. Fiskrækt hófst
með gönguseiðasleppingum í hitteðfyrra.
laxinn snemma á ferðinni
„Á þessum tíma hef ég
meira selt þetta sem sil-
ungsveiði.“
Jökla tær Nýir veiðistaðir
komu upp úr kafinu þegar
jökulvatni var miðlað til
Kárahnjúkavirkjunar.
Sleppitjörn Nokkrum tugum
þúsunda gönguseiða hefur verið
sleppt í Jöklu, tvö ár í röð.
H&N-myNdIR SIGTRyGGUR
Þröstur Elliðason
Þröstur segir rólega
farið af stað en
bindur vonir við
Jöklusvæðið.