Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 30
30 Miðvikudagur 15. júlí 2009 fréttir
Sólskin eða
endurgreiðslu
Tvær franskar ferðaskrifstofur,
Pierre et Vacances og France-
Loc, lofa viðskiptavinum sínum
að kaupa sólskinstryggingu
og með því tryggja sér endur-
greiðslu ef rignir í meira en fjóra
daga á viku tímabili.
Í samvinnu við tryggingarfé-
lagið Aon France fá viðskiptavin-
ir endurgreiðslu vegna tapaðra
sólardaga og mun tryggingar-
félagið nota gervihnattamyndir
frá frönsku veðurstofunni til að
reikna út hve háa endurgreiðslu
viðskiptavinur getur farið fram á.
Votviðrasamt frí getur verið
rúmlega 70.000 króna virði og
fá viðskiptavinir senda ávísun
heim fljótlega eftir heimkomu.
Afsláttur fyrir
hjólreiðakappa
Gleðihús í Berlín hefur tekið upp
frumlega aðferð í baráttunni
gegn áhrifum kreppunnar og ná
um leið til nýrra viðskiptavina.
Aðferðin felst í því að bjóða
þeim sem koma á reiðhjóli afslátt
af þjónustu gleðihússins. Eigandi
hússins, Thomas Goetz, segir að
kreppan hafi bitnað illilega á við-
skiptum og vonar að afslátturinn,
5 evrur, hafi áhrif til góða.
„Þetta er gott fyrir viðskiptin,
gott fyrir umhverfið – og gott fyr-
ir stelpurnar,“ sagði Goetz.
Hljóðlát könnun-
arfarartæki
Við fyrstu athugun var ekkert
athugavert að sjá við kaup ind-
verska hersins. Yfirmenn í hern-
um fullyrtu að þeir hefðu eytt
10 milljónum rúpía, rúmlega
26 milljónum króna, í kaup á
hljóðlátum könnunarfarartækj-
um sem nota átti að baki víglínu
óvinanna.
Við nánari athugun kom hins
vegar í ljós að um var að ræða 22
golfbíla sem dreift var á golfvelli
sem heyra undir her landsins.
Ekki er langt síðan foringjar
í hernum fengu frjálsari hendur
hvað varðar fjárlög vegna barátt-
unnar gegn hryðjuverkum.
Norður-Afríkuvængur al-Kaída hef-
ur hótað hefndaraðgerðum gegn
kínverskum verkamönnum og hags-
munum Kínverja vegna múslima
sem létu lífið í óeirðunum í Urumqi í
Xinjiang-héraði í síðustu viku.
Með hótun samtakanna er brotið
blað í starfsemi þeirra því þau hafa
ekki áður með beinum hætti hótað
beinum aðgerðum gegn kínverskum
hagsmunum, að sögn áhættugrein-
ingarfyrirtækisins Stirling Assynt
í Lundúnum. Í skýrslu fyrirtækis-
ins segir að Islamic Maghreb, ein-
ing innan al-Kaída í Alsír, hafi sent
frá sér ákall um hefndaraðgerðir og
byggir fullyrðing Stirling Assynt á
upplýsingum frá einstaklingum sem
séð hafa ákallið. Þrátt fyrir þetta mat
greiningarfyrirtækisins er ekki tal-
ið að bein tengsl séu á milli úigúr-
múslima í Xinjiang-héraði og al-Ka-
ída. Einnig eru taldar hverfandi líkur
á að miðstjórn al-Kaída hyggi á árásir
innan Kína.
Tækifærissinnar
Að mati Stirling Assynt ber að taka
hótun Islamic Maghreb alvarlega:
„Þó al-Kaída Islamic Maghreb virð-
ist vera fyrsti vængur al-Kaída til að
segjast opinberlega ætla að ráðast
gegn kínverskum hagsmunum munu
aðrir líklega fylgja í kjölfarið.“
Að sögn Justins Crump, yfir-
manns hryðjuverkagreiningar Stir-
ling Assynt, eru fyrirhugaðar aðgerð-
ir Islamic Maghreb gegn kínverskum
hagsmunum alls ekki þáttur í fyr-
irætlunum al-Kaída. „Með tilliti til
herkænsku yrði afraksturinn nei-
kvæður með tilliti til þess að aðal-
hagsmunir þeirra eru í Afganistan og
Pakistan,“ sagði Crump í viðtali við
Guardian. Crump taldi að ákvörð-
un Islamic Maghreb væri að hluta
til „tækifærissinnuð“ og byggði á því
hve létt væri að beina spjótum gegn
Kínverjum og nýta þá reiði sem ríkir í
samfélögum míslima víða um lönd.
Leita kínverskra hagsmuna
Óeirðirnar í Xinjiang-héraði í síð-
ustu viku kostuðu 184 mannslíf og
samkvæmt opinberum upplýsingum
voru flestir hinna látnu Han-Kínverj-
ar sem féllu fyrir hendi úigúra. Fjöru-
tíu og sex úigúrar létust samkvæmt
kínverskum yfirvöldum, en úigúrar
fullyrða að talan sé mun hærri.
Hver sem fjöldi fallinna úigúra
er hefur kviknað mikil samúð með
þeim víða í heimi múslima, en úigúr-
ar búa við strangar hömlur með til-
liti til trúariðkunar og sæta misrétti á
vinnumarkaði.
Í skýrslu Stirling Assynt segir: „Al-
mennar aðstæður múslima í Kína
hafa hlotið hljómgrunn í samfélagi
þeirra sem aðhyllast heilagt stríð.“
Enn fremur segir að fjöldi aðgerða-
sinna vilji sjá aðgerðir gegn Kína og
að sumir leiti logandi ljósi að upplýs-
ingum um kínverska hagsmuni „sem
gætu nýst þeim sem skotmörk“.
Hlífðu Kínverjum
Nokkuð ljóst má telja að mat Stirling
Assynt er ekki úr lausu lofti gripið
því fyrir þremur vikum réðst Islamic
Maghreb á alsírska öryggissveit sem
sett hafði verið til verndar kínversk-
um verkfræðingum sem vinna við
þjóðvegaframkvæmdir.
Árásin kostaði líf tuttugu og fjög-
urra lögreglumanna, en engan Kín-
verja sakaði enda árásinni ekki beint
gegn þeim.
Sérfræðingar Stirling Assynt eru
ekki bjartsýnir á að slík miskunn
gagnvart kínverskum ríkisborgurum
verði viðvarandi og til framtíðar litið
muni árásir beinast að bæði öryggis-
sveitum og kínverskum verkfræðing-
um.
Undanfarnar vikur hefur Islamic
Maghreb staðið að röð banvænna
árása á erlenda ríkisborgara, en að
sögn bandarískra embættismanna
hefur Islamic Maghreb-hópnum
vaxið fiskur um hrygg með fjölda
liðsmanna sem snúið hefur heim frá
Írak.
Aukin fjárfesting Kínverja í
útlöndum
Hótanir Islamic Maghreb þykja und-
irstrika þá áhættu sem Kínverjar
standa frammi fyrir samfara aukinni
fjárfestingu á erlendri grundu.
Stirling Assynt áætlar að hundr-
uð þúsunda Kínverja stundi vinnu í
Mið-Austurlöndum og Norður-Afr-
íku og þar af um 50.000 í Alsír, og tel-
ur ekki loku fyrir það skotið að aðr-
ir al-Kaídahópar á Arabíuskaganum
myndu hugsanlega standa að árás-
um á kínversk verkefni í Jemen.
„Með tilliti til
herkænsku yrði
afraksturinn neikvæð-
ur með tilliti til þess að
aðalhagsmunir þeirra
eru í Afganistan og
Pakistan.“
Al-KAídA HótAr KínA
Brúðkaup í Suvereto, skammt frá Liv-
orno á Ítalíu, endaði með ósköpum
samkvæmt frétt í Corriere della Sera.
Ástæðan fyrir ósköpunum var sá
hefðbundni siður að fleygja brúðar-
vendinum frá sér og verður að segja
að í þetta skipti hafi lánleysi fylgt
siðnum.
Brúðhjónin höfðu leigt litla flugvél
og átti að henda vendinum úr vélinni
yfir hóp kvenkyns brúðkaupsgesta.
Það vildi þó ekki betur til en svo að
blómvöndurinn sogaðist inn í mótor
flugvélarinnar með þeim afleiðing-
um að eldur kviknaði og sprenging
fylgdi í kjölfarið.
Flugvélin steyptist niður á gisti-
heimili með þeim afleiðingum að
eini farþegi vélarinnar slasaðist al-
varlega.
Um fimmtíu manns sem voru á
gistihúsinu sluppu með skrekkinn og
sömuleiðis flugmaður vélarinnar.
Farþegi vélarinnar, maður að
nafni Isidoro Pensieri, hafði það hlut-
verk með höndum að fleygja vendin-
um út en talið er að blómin í vendin-
um hafi flækst saman við atganginn
með fyrrgreindum afleiðingum. Isi-
doro Pensieri hlaut margvísleg bein-
brot og höfuðáverka og var fluttur
með þyrlu á sjúkrahús.
Það verður að teljast mikil mildi
að ekki fór verr, en ljóst er að brúð-
kaupið mun seint líða úr minni brúð-
hjóna og gesta.
Fljúgandi brúð-
arvöndur Lítið lán
fylgdi gamalli hefð
í brúðkaupi á Ítalíu.
Mynd: pHoTos.coM
Brúðarvöndur olli flugslysi á Ítalíu:
Sogaðist inn
í mótorinn
Óeirðirnar í Urumqi í Xinjiang-héraði í síðustu viku munu draga dilk á eftir sér fyrir
Kínverja. Ein eining innan al-Kaída, í Alsír, hyggst sýna samúð sína með úigúr-múslim-
um í verki og hótar hefndaraðgerðum gegn kínverskum hagsmunum í Norður-Afríku.
KoLbeinn þorsTeinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is