Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2009, Blaðsíða 33
RúRik til OB Íslenski framherjinn Rúrik Gíslason var í gær keyptur til eins af stærstu
liðunum í Danmörku, OB frá Viborg sem leikur í dönsku 1. deildinni. Rúrik gerði samning út
tímabilið 2014 en hann hafði leikið með Viborg frá árinu 2007 eða síðan hann kom þang-
að frá Charlton á Englandi. Rúrik hefur staðið sig afar vel með Viborg og skorað 17 mörk
í 47 leikjum fyrir liðið. OB hefur verið eitt sterkasta lið Danmerkur undanfarin ár og með
liðinu leikur meðal annars Kamerúninn Eric Djemba-Djemba sem eitt sinn var á mála hjá
Manchester United. „Þessi félagaskipti gera mikið fyrir mig. Þetta er ný og spennandi reynsla
fyrir mig og ég vona að þetta muni gera mér gott,“ sagði Rúrik eftir undirskriftina í gær en
hann mun leika í treyju númer 21 hjá félaginu.
UMsjón: tóMas ÞóR ÞóRðaRsOn, tomas@dv.is
spORt 15. júlí 2009 miðvikudaguR 33
„Fyrir mót hefðum við sætt okkur við
þessi 30 stig eftir fyrri umferðina,“
segir Heimir Guðjónsson, þjálfari
Íslandsmeistara FH, sem er langefst
í Pepsi-deild karla þegar deildin er
hálfnuð. Reyndar hefur FH leikið
einum leik fleira en önnur lið vegna
þátttöku sinnar í forkeppni meist-
aradeildarinnar, unnið hann að sjálf-
sögðu, og er með 33 stig, tólf stigum
á undan næsta liði.
FH hefur ekki tapað leik á ár-
inu, ekki einu sinni í deildarbikarn-
um sem liðið hampaði taplaust. „Við
töpuðum samt fyrsta leiknum gegn
Keflavík sem var ágætis áminning
um það að við erum ekki ósigrandi
eins og blaðaumfjöllun hafði ver-
ið fyrir mót,“ segir Heimir. „Við vor-
um ekki búnir að tapa á vormótun-
um þannig að þetta var fín áminning
um að við þyrftum að hafa fyrir hlut-
unum. Síðan þá hefur verið stígandi
í liðinu og það spilað betur eftir því
sem liðið hefur á mótið. Við erum
nokkuð ánægðir með þessa fyrri um-
ferð en áttum okkur alveg á að það
er ekki gert upp fyrr en í september,“
bætir Heimir við en hvað hefur hann
verið ánægðastur með hingað til?
„Í flestum leikjum hefur ver-
ið sterk liðsheild á bak við sigrana.
Menn hafa unnið leikina saman
og hjálpað hver öðrum á vellinum.
Þetta snýst um að byggja upp sterka
liðsheild. Svo vil ég meina það að
við séum með góða blöndu. Í liðinu
eru reyndir menn, ungir og ferskir og
svo leikmenn á svona millibilsaldri
ef það má orða það þannig. Þetta er
mjög fín blanda að hafa.“
Söderlund gefur meiri vídd
FH bætti aðeins einum leikmanni
við sig fyrir mótið, Norðmanninum
Alexander Söderlund sem Heimir
er ánægður með. Pétur Viðarsson,
ungur miðvörður sem var á láni hjá
Víkingi í fyrra, hefur einnig komið
sterkur inn í liðið og verið eins og nýr
leikmaður.„Við sáum það náttúrlega í
fyrra að það voru efnilegir leikmenn
að koma upp sem stóðu sig vel. Við
mátum það því þannig að við þyrftum
í sjálfu sér ekkert að styrkja liðið mik-
ið. Pétur Viðars var náttúrlega lánað-
ur í fyrra því hann kom seint í apríl og
fór í ágúst. En núna fer hann ekkert
aftur í sumar og því vildum við hafa
hann áfram. Hann hefur staðið sig
mjög vel. Við vorum í miklum vafa í
fyrra hvort við ættum að láta hann á
lán en eftir á að hyggja var það gott
því hann fékk fína reynslu af að spila
með Víkingi,“ segir Heimir.
„Síðan vildum við fá meiri vídd í
okkar sóknarleik og Alexander Sö-
derlund býður upp á það. Hann er
afar sterkur að halda boltanum á
meðan liðið færir sig upp völlinn á
meðan hinir framherjarnir okkar vilja
meira fá boltann í svæðin og nýta sér
sinn hraða. Þannig að hann myndar
gott mótvægi við hina sóknarmenn-
ina. Við ákváðum að þetta væri nóg
og einnig ætluðum við að reyna að
byggja á því sem ungu strákarnir
gerðu í fyrra,“ segir Heimir og bætir
við: „Svo má ekki gleyma að við eig-
um inni Dennis Siim en við erum að
vona að hann geti farið að æfa aftur í
næstu viku.“
Breyttar áheyrslur
Heimir er á sínu öðru ári sem aðal-
þjálfari FH en hann gerði liðið að Ís-
landsmeisturum í fyrra á fyrsta ári.
Hann viðurkennir að hann hafi gert
litlar breytingar á skipulagi liðsins,
þó einhverjar, en hann hafi þó breytt
æfingum á undirbúningstímabilinu.
„Þegar við Jörundur tókum við
breyttum við töluvert áherslunum á
æfingum yfir undirbúningstímabil-
ið. Leikur liðsins breyttist kannski
ekki mikið enda er liðið búið að
spila þetta sama 4-3-3 kerfi í tíu ár
og gengið vel. Því er engin ástæða
til að breyta því þannig séð en með
nýjum þjálfara koma alltaf einhverj-
ar áheyrslubreytingar. Hjá okkur var
það sérstaklega að halda boltanum
innan liðsins og á æfingum í vetur
náðum við upp ágætis tempói í okk-
ar leik,“ segir Heimir.
Tekinn út af standir þú þig
ekki
Heimir hefur sýnt mikla hörku
þegar kemur að skiptingum í
leikjum og margar ákvarðanir
hans hafa vakið athygli. Þó hafa
þær undantekningalaust skil-
að árangri en stefna Heimis er
afar einföld og auðskilin í því.
Hann vill að leikmenn séu á
tánum þegar kemur að því að
berjast um stöðurnar í liðinu.
„Ég hef bara ákveðna
stefnu og við hjá FH að ef
leikmenn eru ekki inni á
vellinum til þess að hjálpa
liðinu er einfaldlega betra
að nota menn sem eru til-
búnir í það. Þegar þú ert
með stóran hóp þarf
einfaldlega að vera
samkeppni um
stöðurnar í liðinu
og einn af lyklun-
um að því er að
sýna mönnum
að ef þeir standa
sig ekki inni á vell-
inum verða þeir
teknir út af. Það
myndar það að
menn verða til-
búnir að leggja
hart að sér til
þess að halda sæti
sínu í liðinu,“ segir
Heimir.
Eigum góðan möguleika
FH mætir Aktobe frá Kasakstan í
fyrstu umferð forkeppni meistara-
deildar Evrópu á miðvikudaginn og
svo aftur viku seinna. Illa hefur geng-
ið að safna upplýsingum um liðið
og því logið upp á FH að Hafnfirð-
ingarnir hafi ekki viljað senda þeim
spólu af sér. Aktobe er í góðu formi
heima fyrir og er efst í deildinni, rétt
eins og FH. Það hefur unnið tólf af
fjórtán leikjum sínum hingað til.
„Við höfum verið að reyna að afla
okkur upplýsinga um þetta lið. Það
sem hefur sést í fréttunum um að
við höfum ekki sent þeim einhverja
spólu er náttúrlega tóm vitleysa því
þeir hafa ekki sent okkur neitt. Við
vitum eitt og annað um þetta lið.
Þetta er sterkt lið
en eitt af yfir-
lýstum mark-
miðum FH er
að gera vel í Evr-
ópukeppninni
og það breytir
engu hvort við
þurfum að fara
til Kasakstan eða
eitthvað ann-
að. Ég met þetta
þannig að þetta
er 50-50 leikur. Ég
segi að ef við spil-
um vel og sýnum
þessa sterku liðs-
heild sem við höf-
um verið að gera
eigum við góða
möguleika á því að
fara áfram,“ segir
Heimir Guðjóns-
son.
Þegar fyrri umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu, Pepsi-deildarinnar, er lokið er
FH langefst með tólf stiga forskot á næsta lið. Heimir Guðjónsson, þjálfari liðs-
ins, er á sínu öðru ári en hann gerði liðið að Íslandsmeisturum í fyrra. Hann
er ánægður með leik liðsins hingað til en segir það enn eiga ýmislegt inni.
„Verður að Vera
samkeppni um
stöðurnar“
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Langefstir Heimir Guðjónsson
er með FH-drengina langefsta á
toppi Pepsi-deildarinnar.
Eini tapleikurinn FH hefur aðeins tapað
einum leik í ár í öllum mótum. Fyrsta leik
Pepsi-deildarinnar gegn Keflavík.