Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2009, Qupperneq 6
6 miðvikudagur 5. ágúst 2009 fréttir
Létu undan
þrýstingnum
Finnur Sveinbjörnsson, banka-
stjóri Nýja Kaupþings, seg-
ir að viðbrögð ráðamanna og
almennings við lögbanni á
fréttaflutning RÚV um lán til
viðskiptavina Kaupþings hafi átt
stóran þátt í því að bankinn hafi
ákveðið að fallið frá lögbanns-
kröfunni. Þessu sagði Finnur frá
í fréttum Ríkisútvarpsins og lýsti
þar vilja sínum í þá veru að lög
um fjármálafyrirtæki væru end-
urskoðuð.
Lögbannið vakti hörð við-
brögð almennings, bloggara,
álitsgjafa og stjórnmálamanna
og virðist sem þrýstingurinn og
gagnrýnin hafi orðið til þess að
Kaupþing féll frá lögbannskröf-
unni.
Þrír í viðbót
hafa smitast
Alls hafa verið staðfest þrjú
tilfelli af svínaflensunni,
einnig þekkt sem inflú-
ensu A(H1N1) yfir verslun-
armannahelgina og er því
heildarfjöldi staðfestra tilfella
samtals 54.
Enginn hefur orðið al-
varlega veikur samkvæmt
upplýsingum frá Landlækn-
isembættinu. Fólkið er á aldr-
inum 16-25 ára, þar af er einn
útlendingur og tveir Íslend-
ingar með búsetu á suðvest-
urhorni landsins.
Sóttvarnalæknir hvetur
lækna til sýnatöku hjá sjúk-
lingum með inflúensulík
einkenni.
Sakar fjölmiðla
um að skálda
fréttir
„Einstaka fréttamenn virðast
leggja sig í líma við að snúa
staðreyndum á haus. Slík frétta-
mennska þrífst í skjóli tortryggni
sem er ráðandi í íslenskri fjöl-
miðlun,“ skrifar Karl Werners-
son, stjórnarformaður Mile-
stone, í harðorðri grein sinni í
Morgunblaðinu í gær. Í greininni
gagnrýnir hann umfjöllun um
Milestone í fjölmiðlum að und-
anförnu og sendir Stöð 2 meðal
annars tóninn. Sakar Karl frétta-
stofuna um ósvífnar lygar.
„Við erum búnir að svara fyrir
þessa frétt okkar og ég mun ekki
fara í neina gífuryrðasamkeppni
við Karl Wernersson hvað þetta
mál varðar,“ segir Óskar Hrafn
Þorvaldsson, fréttastjóri frétta-
stofu Stöðvar 2 og Vísis
Örn Úlriksson var úrkula vonar um að fá aðstoð í veikindum sínum þegar hann
ákvað að stela bíl og aka honum inn í lögreglustöð til að vekja athygli á stöðu sinni.
Hann segist fyrr um kvöldið hafa ætlað að fremja sjálfsmorð með því að sprauta
sig með morfínlyfi.
„ég ætLaði að
drepa mig“
„Ég ætlaði að drepa mig þetta
kvöld. Ég hef engan tilgang með lífi
mínu. Ég náði bara ekki að redda
mér 200 milligrömmum af Cont-
algini til að sprauta mig út í dauð-
ann. Það var það sem ég ætlaði að
gera. En svo tók ég ákvörðun um
að keyra þarna inn,“ segir Örn Úl-
riksson, geðklofasjúklingur á fer-
tugsaldri. Aðfaranótt sunnudags
ók hann stolinni bifreið inn í lög-
reglustöðina á Akranesi eftir að
honum var á Sjúkrahúsi Akraness
synjað um innlögn á geðdeild.
Borðaði á Kleppi
Örn hefur lengi glímt við geðrask-
anir og hefur ítrekað komist í kast
við lögin. Hann segist vera með
heilaæxli sem læknar neiti að fjar-
lægja þar sem það geti leitt til þess
að hann missi sjónina. Örn telur
það hins vegar fyrirslátt og væn-
ir þá lækna sem hafa annast hann
um að bera hag hans ekki fyrir
brjósti. „Ég er að verða brjálaður,“
segir hann.
Örn hefur á undanförnum
árum oft verið lagður inn á geð-
deild. Hann býr nú einn í félags-
legri íbúð á Akranesi og er fullur
vonleysis: „Ég bý bara einn og yf-
irgefinn. Það hringir aldrei neinn
í mig. Það heimsækir mig aldrei
neinn.“ Síðustu jól óskaði Örn eft-
ir og fékk að borða kvöldverð á
aðfangadag með vistmönnum á
Kleppi og fylgjast þar með messu
sér til upplyftingar.
„Þeir telja mig vera
hættulegan“
Á laugardaginn leitaði hann ásjár
lækna á Sjúkrahúsinu á Akranesi
og óskaði eftir innlögn. Hann segist
þá hafa verið afar langt niðri. Þeg-
ar honum var vísað frá greip hann
til þess örþrifaráðs að stela bíl sem
var við sjúkrahúsið og aka inn í
lögreglustöðina. Mikil mildi þyk-
ir að enginn slasaðist en bílskúrs-
hurð lögreglustöðvarinnar, sem
Örn ók í gegnum, er stórskemmd.
Tilgangur þessa var að sögn Arnar
að vekja athygli á bágri stöðu sinni
og fá inni á geðdeild.
Örn var vistaður á lögreglu-
stöðinni þá um nóttina en var síð-
an fluttur á geðdeild Landspítal-
ans í Reykjavík þar sem hann er nú
vistaður. Aðspurður hvernig hon-
um líði nú þegar hann hefur verið
lagður inn segir hann: „Mér líður
skelfilega.“
Honum finnst læknar ekki taka
neitt mark á honum og ekki vilja
taka á hans málum. „Þeir munu
segja að ég sé alvarlega geðveikur
maður,“ segir hann um mat lækna
á sér.
„Þeir telja mig vera hættulegan
en ég get lofað því að ég verð enn
hættulegri ef þeir fjarlægja þetta
æxli ekki,“ segir Örn.
Ekki metinn líklegur
til sjálfsskaða
Þórir Bergmundsson, fram-
kvæmdastjóri lækninga á Sjúkra-
húsinu á Akranesi, vill ekki dæma
um hvort vakthafandi læknir hafi
brugðist rangt við þegar hann vís-
aði Erni burt á laugardaginn. „Það
var ekki talin ástæða til að hann
myndi grípa til neins óyndisúrræð-
is en hann gerði það. Það var mat
viðkomandi læknis að hann væri
ekki líklegur til að valda sjálfum
sér eða öðrum skaða. En við getum
ekki alltaf séð það fyrir,“ segir Þór-
ir. Hann getur þó ekki tjáð sig um
mál Arnar sérstaklega þar sem það
varðaði við brot á trúnaðarskyldu.
Verkferlar innan sjúkrahússins
verða þó endurskoðaðir í kjölfar
atviksins. „Þeir eru í sífelldri end-
urskoðun. Við reynum alltaf að
gera betur,“ segir hann.
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Ég er að verða
brjálaður.“
Á ystu nöf Örn
Úlriksson hefur
lengi glímt við
geðsjúkdóma
og margsinnis
verið vistaður á
geðdeild. Hann er
nú á ystu nöf.
sviðsEtt mynd:
PHotos.com
Ekki metinn hættulegur Þórir Bergmundsson segir það hafa verið mat
viðkomandi læknis að Örn væri ekki líklegur til að valda sjálfum sér eða öðrum
skaða. mynd sigurður miKaEl
Fáir umsækjendur hjá Jafnréttisstofu uppfylla ströng skilyrðin um hæfni:
„Alls ekkert sérkennilegt“
Um tíu manns sóttu um starf lögfræð-
ings hjá Jafnréttisstofu og verið er að
fara yfir umsóknirnar. Ítarlegar hæfn-
iskröfur í auglýsingu um starfið vöktu
athygli en þar kom meðal annars
fram: „Algjörlega nauðsynlegt er að
viðkomandi hafi þekkingu og reynslu
af jafnréttismálum og hafi stundað
nám í kynjafræðum þar með talinn
kvennaréttur.“
Kristín Ástgeirsdóttir, fram-
kvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir
tiltölulega fáa uppfylla öll sett skilyrði
en hún hafi ekki nákvæma tölu yfir
það enn. „Margir þeirra sem sóttu
um eru nýútskrifaðir lögfræðingar
sem hafa þá litla sem enga reynslu.
En þarna eru rosalega flottar stelpur
að sækja um hjá okkur, og þarna eru
líka tveir eða þrír karlmenn,“ segir
hún. Kristín vonast til að ljúka því að
fara yfir umsóknirnar sem allra fyrst.
Í samtali við DV í júlíbyrjun sagði
Sigurður Líndal lagaprófessor að hon-
um þætti orðalag auglýsingar Jafnrétt-
isstofu heldur fastskorðað og jafnvel
gefa tilefni til þess að auglýsingin væri
sniðin að einum eða fáum einstakl-
ingum. Kristín þvertók fyrir það.
Ingibjörg Elíasdóttir sinnir starf-
inu nú en hún var ráðin tímabundið
og án auglýsingar til Jafnréttisstofu
fyrir hálfu öðru ári. Ingibjörg sækist
nú eftir fastráðningu og uppfyllir öll
sett skilyrði.
Kristín undrast gagnrýni á að sett
séu ströng skilyrði um reynslu og
menntun á sviði jafnréttismála fyrir
starf lögfræðings hjá Jafnréttisstofu.
„Það er alls ekkert sérkennilegt við
þetta,“ segir hún. Kristín bendir á að
menntun í kynjafræðum hafi átt und-
ir högg að sækja og berjast hafi þurft
fyrir því að hún yrði viðurkennd sem
sérstakt þekkingarsvið. Vanþekking
á jafnréttismálum hefur þar hamlað
þróuninni, að mati Kristínar. „Marg-
ir vilja ekki einu sinni viðurkenna að
það sé munur á stöðu kynjanna,“ seg-
ir hún.
erla@dv.is
Föstudagur 3. júlí 20096
Fréttir
Sandkorn
Eitthvað virðist þeim hjá
samskiptasíðunni Facebook
vera illa við fræga Íslendinga.
Skemmst er að minnast þess
þegar hin geðþekka fyrrver-
andi sjónvarpsþula Ragn-
heiður Elín
Clausen
var lögð
í rafrænt
einelti af
notendum
Facebook
og aðgangi
henn-
ar lokað.
En Ragnheiður er ekki ein í
heiminum því nú á dögunum
var Facebook-síðu stjörnu-
lögfræðingsins Sveins Andra
Sveinssonar eytt út. Hann var
ekki lengi að stofna nýja síðu
til að safna bæði gömlum vin-
um sem nýjum. Einn af vinum
hans er einmitt Ragnheið-
ur og gantast þau mikið með
óheppni sína á síðunni. Þá
heldur Ragnheiður því fram
að notendur Facebook séu
grænir af öfund út af skamm-
stöfunum nafna þeirra sem
eru vægast sagt eitthvað til að
öfunda þau af - REC og SAS.
Þeir hjá Facebook í Bandaríkj-
unum mega líklega prísa sig
sæla að Sveinn Andri sé með
húmorinn í lagi því stjörnu-
lögmanninum væri sjálfsagt í
lófa lagið að höfða á hendur
þeim hressilegt skaðabóta-
mál.
Uppljóstranir DV úr lána-
bók Kaupþings um stórt kúlu-
lán til Kristjáns Arasonar
hafa skekið þingsæti Þorgerð-
ar Katrínar Gunnarsdótt-
ur, vara-
formanns
Sjálfstæðis-
flokksins og
eiginkonu
Kristjáns, og
þær radd-
ir heyrast
nú á þingi
og víðar
að Þorgerði sé vart vært á Al-
þingi. Sjálfstæðisfólk í kjör-
dæmi Þorgerðar er margt
hvert með böggum hildar
yfir óförum varaformannsins
og þá ekki aðeins Þorgerðar
þar sem einhverjir geta vart
hugsað þá hugsun til enda að
Óli Björn Kárason taki sæti á
þingi en hann er varamaður
og næstur inn detti Þorgerð-
ur úr skaftinu. Veruleikaskyn
Óla Björns þykir nefnilega
oft býsna brogað en nú síðast
mærir hann rekstur Viðskipta-
blaðsins, sem hann ritstýrði
í eina tíð, á öfgahægrivef
sínum amx.is. Blaðinu var
haldið á floti með eftirminni-
legu kennitöluhoppi nýlega
og vandséð að rekstur þess
sé jafnglæsilegur og Óli Björn
vill vera láta.
Jafnréttisstofa auglýsir nú lausa til
umsóknar stöðu lögfræðings. Ingi-
björg Elíasdóttir sinnir starfinu nú
en hún var ráðin tímabundið og án
auglýsingar til Jafnréttisstofu fyrir
hálfu öðru ári. Hæfniskröfur í aug-
lýsingu Jafnréttisstofu vekja athygli
en þar segir: „Algjörlega nauðsyn-
legt er að viðkomandi hafi þekkingu
og reynslu af jafnréttismálum og hafi
stundað nám í kynjafræðum þar með
talinn kvennaréttur.“
Rígskorðuð auglýsing
Sigurði Líndal lagaprófessor þykja
skilyrðin of þröng. „Mér finnst þetta
of rígskorðað. Mér finnst að hugs-
anlega mætti túlka þetta þannig að
þarna væri verið að miða á einhverj-
ar örfáar manneskjur eða jafnvel einn
umsækjanda. Það er þannig keim-
ur af þessu. Mér finnst þessi auglýs-
ing of þröng og spurning hvort hún
stenst jafnréttislög. Ég ætla ekkert að
fullyrða um það en finnst eðlilegt að
spurt sé. Þetta er á gráu svæði,“ segir
Sigurður.
DV hafði samband við Ingibjörgu
Elíasdóttur og spurði hana hvort
þarna væri hennar starf auglýst eða
starf lögfræðings við hlið hennar en
Ingibjörg sagðist ekki vita það og
benti á að yfir stæðu skipulagsbreyt-
ingar hjá Jafnréttisstofu. Spurð hvort
henni finnist hæfiskröfur óhæfilega
þröngt skilgreindar í auglýsingunni
segir hún: „Ég hef ekki einu sinni séð
auglýsinguna.“
Ingibjörg vildi ekki svara þegar
blaðamaður spurði hvort hún hygð-
ist sækja um stöðuna ef það er í raun
hennar staða sem er þarna auglýst,
og sagði: „Ég átta mig ekki á því af
hverju þú ert að spyrja einu sinni,“
og vísaði á Kristínu Ástgeirsdóttur,
framkvæmdastýru Jafnréttisstofu.
Ekki auglýst áður
Kristín staðfesti að þarna væri laust
til umsóknar starf Ingibjargar. „Hér
starfar lögfræðingur sem var ráðinn
í afleysingar til að byrja með. Síðan
hefur dregist von úr viti að auglýsa
stöðuna eins og skylda ber til. Það er
því verið að auglýsa stöðu sem hefur
ekki áður verið auglýst,“ segir Krist-
ín.
Hún bendir á að Ingibjörg hafi
þegar aflað sér verulegrar reynslu í
starfinu. „Það þarf að koma einhver
rosalega frábær umsókn til þess að
einhver geti bolað henni út,“ segir
Kristín.
Hún neitar því þó að tiltekinn ein-
staklingur hafi verið hafður í huga við
gerð auglýsingarinnar. „Nei. Þarna
er kona í starfi sem lögfræðingur
sem hefur aflað sér mikillar reynslu
og hefur mjög mikla kosti og er góð
reynsla af. En ef það kemur umsókn
sem stendur henni framar þá víkur
hún, samkvæmt lögum og reglum,“
segir Kristín.
Stuttur umsóknarfrestur
Að mati Kristínar er orðalag auglýs-
ingarinnar ekki óheppilegt og alls
ekki skynsamlegra að tala þar um
„æskilega“ reynslu og þekkingu í stað
„algerrar nauðsynjar“. „Nei, þetta eru
bara kröfurnar,“ segir hún.
Auglýst var eftir sviðsstjóra Jafn-
réttisstofu í árslok 2006. Um þekk-
ingu og reynslu af jafnréttismál-
um sagði í auglýsingunni: „Þekking
á kynjafræði mikilvæg. Þekking og
reynsla á sviði jafnréttismála og al-
þjóðasamstarfs æskileg.“
Auglýsingin nú birtist á Starfatorgi
30. júní. Umsóknarfrestur er heldur
stuttur, 19 dagar, þar af 13 virkir dag-
ar. Auk þess er krafist að umsækjandi
geti hafið störf „nú þegar“.
Spurð hvort hún eigi von á mörg-
um umsóknum segir Kristin: „Það
eru nokkrir búnir að hafa samband
og spyrjast fyrir. Það er bara komin
ein skrifleg umsókn,“ segir hún.
Sigurður setur einnig spurninga-
merki við þennan stutta umsóknar-
frest og bendir enn fremur á að nú
séu margir mögulega áhugasamir
lögfræðingar í sumarfríi.
Hann bendir á að hann sé ekki
nógu hæfur til að sækja um en tek-
ur þó fram að hann hafi ekki áhuga
á stöðunni „Ég hefði nú aldrei fengið
starfið, miðað við auglýsinguna. Nei,
nei. Og þó er ég með tvö háskólapróf.
Það dugir ekki til,“ segir Sigurður.
„Það þarf að koma
einhver rosalega
frábær umsókn til þess
að einhver geti bolað
henni út.“
JAFNRÉTTISSTOFA
„Á GRÁU SVÆÐI“
Ingibjörg Elíasdóttir
Sigurður Líndal
Kvennaréttur og Kynjafræði
„Algjörlega nauðsynlegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af jafnréttismál-um og hafi stundað nám í kynjafræðum þar með talinn kvennaréttur.“
- Úr auglýsingunni
n Kvennaréttur er ekki skylda í grunnnámi í lögfræði við Háskóla íslands heldur ein fjölda valgreina í meistaranáminu.
n Haustið 1996 var í fyrsta sinn boðið upp á 30 eininga grunnnám í kvennafræð-um við félagsvísindadeild Hí. tveimur árum síðar var nafninu breytt í kynjafræði. Við Hí er boðið upp á meistaranám í kynjafræði.
ERLa HLynSdóttIR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Kröfur í auglýsingu Á við Ingibjörgu
Embættispróf í lögfræði
reynsla af lögfræðistörfum
Þekking og reynsla af jafnréttismálum
Nám í kynjafræði að baki
Nám í kvennarétti að baki
góð kunnátta í ensku og norðurlandamálum
getur hafið störf „nú þegar“
n Ingibjörg Elíasdóttir uppfyllir þröngt skilgreindar
hæfniskröfur jafnréttisstofu og býr að því að hafa
starfað þar síðustu misseri. Mynd JafnRéttISStofa
uppfyllir öll sKilyrði
Ekki nógu hæfur sigurður líndal lagaprófessor yrði aldrei ráðinn lögfræðingur hjá jafnréttisstofu þar sem hann uppfyllir ekki hæfniskröfur. „Og þó hef ég tvö háskóla-próf,“ segir hann en sækist þó ekki eftir stöðunni.
Mynd HEIða HELgadóttIR
Ánægð með Ingibjörgu Kristín Ástgeirsdóttir segir þá reynslu sem Ingibjörg Elíasdóttir hefur aflað sér með störfum fyrir jafnréttisstofu dýrmæta og vega þungt. Ingibjörg fékk starfið án auglýsingar. Mynd 365 / gVa
2. júlí 2009
Þrír teknir fyrir
búðarrán
Tveir karlmenn á þrítugsaldri
voru handteknir í heimahúsi
í fyrrinótt, grunaðir um aðild
að vopnuðu ráni í verslun
11-11 við Skipholt í Reykjavík
á tólfta tímanum á mánu-
dag, frídag verslunarmanna.
Yfirheyrslur yfir mönnunum
leiddu til handtöku þriðja
mannsins. Þeir hafa allir ját-
að verknaðinn og telst málið
upplýst.
Mennirnir réðust inn í 11-
11-verslunina vopnaðir hnífi.
Þeir ógnuðu starfsfólki, tóku
með sér þýfi og óku síðan á
brott.